Ef eitthvað er.......

....að marka þetta eins og það lítur út á sjónvarpsskjánum - þá má alveg slökkva aftur.  Vona að þetta líti betur út þegar maður er þarna á svæðinu og sér þetta.

Vandinn að listaalítan er búinn að hæpa þetta svo svakalega að fólk bjóst jafnvel við fullnæingu þegar ljósin voru tendruð, en engin stuna heyrðist!!!

...og hvað var þetta með ræðuna hjá henni Diddú? Mikið vildi ég að þessi elska hefði frekar tekið lagið


mbl.is Glerhjúpur Hörpu tendraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sandkassi Lilju!

Flott að sitja bara úti íhorni og benda á hina og þessa. Hvað vill Lilja gera varðandi málefni skólans?

Er sjálfgefið að peningum sé dælt þarna inn á meðan verið er að skera niður annarsstaðar? Er eþtta ekki einkarekinn skóli? ....en jú með ríkisstyrk. Táknar það að menn eigi bara að geta farið fram á meira og meira þegar þeir hafa jafnvel ekki staðið sig í rekstrinum? Nú hefég alls ekkert á móti kvikimyndaframleiðendum nemendum í skólanum eða þeim er reka skólann. En er almennt grundvöllur fyrir rekstri svona skóla á Íslandi? Erum við bara einfaldlega ekki alltof fá til þess að geta rekið svona stofnun? Menn geta kannski byrjað á að spyrja sig hvernig hefur reksturinn gengið síðustu ár? Hver er staðan í dag? Af hverju er staðan eins og hún er í dag? 

Með fullri virðingu fyrir öllu þessu fólki þá sé ég ekki af hverju það ætti að auka  styrkinn við skólann um einhverja milljóna tugi á meðan verið er að skera stórlega niður í þjónustu sem ríkið á svo sannarlega að standa fyrir. - sorry


Ekki pláss......

...fyrir einn öflugasta bakvörð landsins í Grindavíkurliðinu? Sérkennilegt að byrja á því að smyrja á drenginn þvílíku lofi að meira að segja Óli Jóh. landsliðsþjálafari vaknaði, en tala svo um örlitlu síðar að hann geti ekki bókað sæti í liðinu. Til hvers að sækja pilt sem er jafn öflugur og Jósef Kristinn er ef hann á ekki öruggt sæti í liðinu meðan hann er heill?   ....held að leikheimild á Jósef Kristinn sé bara en einn naglinn í kistu Fram og Víkings.
mbl.is „Einn öflugasti bakvörður á landinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessuð Harpan

En dásama tónlistarmenn og aðrir listamenn Hörpuna. Á meðan er bygging hennar gagnrýnd víða um land og talað um bruðl og sóun á peningum á þessum síðustu og verstu. Heyri samt ekki betur á þeim er í Hörpuna hafa komið að þeim þykir vel hafa tekist til. Efast reyndar mjög margir um rekstrarmöguleikana á slíku mannvirki í Reykjavík, á Íslandi, og eru því ekki vissir um að fénu hafi verið vel varið. Það þykir of mikill 2007 blær á þessu.  ...en það er nú kannski samt að vissu leyti vandamál þjóðarinnar. Það er að segja að fólk virðist bara vilja falla aftur inn í þeir skýjaborgir er hér voru reistar á þeim tíma. Þrátt fyrir að hafa upplifa að vindurinn feykti borginni þeirri fjandans til.

Ég á nú eftir að skoða þetta mannvirki. Sjá einhvern viðburð þarna. Veit bara ekki hvað það á að vera.


mbl.is Harpa er mikil hvatning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki benda á mig!

Ég hef ekkert með málefni skólans að gera og því tilgangslaust að benda á mig. Aftur á móti finnst mér sorglegt þegar þessi mál þróast á þennan hátt. Ef að staða skólans er eins slæm og rætt er um þýðir lítið að horfa bara til ríkisstjórnarnir og Alþingis og biðja um meiri styrki. Átti þetta ekki að vera einkareikið batterí, með smá ríkisstyrk? Hefur styrkurinn verið afnuminn? Misstu menn sig í einhverju öðru við reksturinn? Sinntu menn rekstrinum ekki sem skyldi? Þessi skóli hefur skilað fínu fólki frá sér á því leikur enginn vafi í mínum huga en menn hljóta að verða að endurmeta reksturinn, skólagjöld og fleira þegar svona illa er komið fyrir skólanum.

Það á ekki að þurfa að láta þetta mál fara í einhvern upphrópanaleik sem skilar engu. Sorglegt að allt þetta fólk sem vill láta bendla sig við fagmennsku geti ekki unnið betur, og komið heiðarlega fram.


mbl.is „Það er bara ekki rétt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt á réttri leið!

Bara Eistar sem standa í vegi fyrir því að toppsætið sé okkar. Við hljótum að fara að ná því fljótlega. Græðum ekkert á að hýrast á topp 10 listanum bara til að vera með. Við viljum toppsætið. helst strax!
mbl.is Næstmest verðbólga á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært!!!

Liðið er í tómu tjóni og þá er um að gera að byrja að þinna hópinn með því að lána pilta hingað og þangað. Er ekki nær að ná tökum á spilamennskunni og halda hópnum saman?
mbl.is Lánaður til Hönefoss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær sundmaður

Sigmundur Davíð er frábær sundmaður!!! Skil þetta ekki alveg menn eru lagðir af stað í umræðu/aðlögunarferlið, eða hvað menn vilja kalla þetta, og gengur bara nokkuð vel að því er mér skilst. Er ekki nær að klára þetta í stað þess að stoppa núna og ætla svo að byrja aftur seinna. Hætta að væla endalaust yfir þessu og byrja að berja á öðrum málum - af aldeilis nógu er að taka.
mbl.is Vill ESB-umsóknina á ís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mávarnir skitu á smáfuglana!!!

Húmoristar sem vinna á Mogganum. Eins og Cardiff hafi átt eitthvað meiri séns þó Aron Einar hefði verið með - hahaha!  Cardiff voru einfaldlega bara teknir í nefið. Mávarnir drulluðu yfir smáfuglana. Vona þó að Aron EInar komist fljótt á flot. Ekki veitir Cardiff af. Smile

3 leikir 3 sigrar. Þar af tveir á útivelli. Maður getur ekki farið fram á meira á fyrsta ári í nýrri deild. Við erum næstum því búnir að bjarga okkur frá falli nú þegar með þessari spilamennsku. Borgar sig samt ekki að fagna of snemma. Ansi margir leikir eftir. En  best að njóta á meðan maður getur - ekki satt?

Kalli í Toppnum getur verið ángæður með Derby County svona í upphafi og Viðar málari og Guffi Kristmanns.með Southampton. Maggi Watford er samt örugglega ekki eins kátur og við hinir. En það er nóg eftir.

1Southampton369
2Brighton349
3Derby339
4Middlesbrough337
5West Ham346
6Crystal Palace326
7Cardiff316
8Blackpool316
9Millwall325
10Reading314
11Peterborough304
12Portsmouth304
13Nott'm Forest3-14
14Leeds303
15Birmingham203
16Ipswich3-13
17Leicester3-23
18Hull3-33
19Bristol City3-43
20Burnley2-21
21Barnsley3-31
22Watford3-51
23Coventry3-30
24Doncaster3-30

mbl.is Cardiff tapaði án Arons Einars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt skaðlegt hjá Villa!!!

Það er nánast sama hvað er gert það er allt skaðlegt að mati Villa. Seðlabankinn gerir núna skaðlega hluti, Leikskólakennarar að gera skaðlega hluti. Ríkisstjórnin gerir skaðlega hluti. Er viss um að hann getur komist að því að allt er skaðlegt, ja nema að hækka kannski launin hans!!!

Menn sem sjá skrattann í hverju horni, í öllu sem gert er,  eru ekki þær málpípur sem á þarf að halda í samfélaginu.


mbl.is Segir vaxtahækkun skaðlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínn endir!!!

Yrði það ekki bara fínn endir á góðum ferli hjá Hirti Júlíusi að skila liðinu í efstu deild og koma svo bara inn af enn meiri krafti á skjánum, en þar hefur hann bara bestnað. Svo er þetta líka spurning hvað gera aðrir eldri leikmenn Skagamanna gera. Hef trú á að þeir stilli líka skónum sínum upp á hillu!


mbl.is Hjörtur: Reikna ekki með að spila með ÍA í úrvalsdeildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru menn alveg að missa sig?

Manni finnst leiguverðið vera komið algjörlega út úr kú. Trúi því ekki að ég sé einn um að finnast það. Einhver nefndi við mig að það væri bara ódýrara að reyna að kaupa sér íbúð heldur en að standa í þessu. Er þá ekki markaðurinn orðinn ansi skakkur ef svo er? ....já og svo tók aðilinn fram að flestir vildu fá þetta greitt svart, en það er svo sem engin breyting þannig hefur það verið ansi lengi. Ef fólk er að heimta þetta svart er þá ekki eðlilegt að leiguverð sé lægra en ella? ....það hefði ég haldið.
mbl.is Einbýlishús til leigu á tæpar 6 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju gulir og glaðir

Þá er það komið á hreint. Þá geta Skagamenn farið að huga að því að styrkja lið sitt fyrir átökin næsta sumar svo menn nái að tryggja sæti sitt í deildinni til frambúðar. Er hræddur um að aðeins of margir í þessu liði séu komnir á aldur og munu ekki standast átökin í efstu deild. Ferskir fætur munu óskast og það verður gaman að sjá hvernig menn vinna í því.

Til hamingju Skagamenn. Nú er bara að vona að það verði annað landsbyggðarlið sem nælir sér í hitt sætið.


mbl.is Skagamenn aftur upp í úrvalsdeild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband