Skagahraðlestin óstöðvandi

Það verður gaman að sjá Skagamenn og Selfyssinga í efstu deild á næsta ári. Held að fátt komi í veg fyrir það að þessi tvö lið fari upp. Jú jú önnur lið reyna að narta í hæla Selfyssinga en er hræddur um að það verði ekkert annað en vægt nart og dugi engan veginn til til að fella þá. Skyldi þó ekki vera að 2 landsbyggðarlið taki sæti tveggja borgarliða. Ætla ekki að gráta það að svo stöddu.
mbl.is Skagamenn óstöðvandi - Enn tapar HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó fyrr hefði verið

Með þennan flotta mannskap sé ég nú ekki mikið pláss fyrir stubbinn Shaun Wright Philips. Verðum við ekki að segja að Wigan sé líklegast sem næsti við komustaður, nema Brighton komi með tilboð í kappann hann myndi ekki segja nei við því.

Það verður gaman að sjá hvernig City mun vegna í vetur - kominn meiri pressa í herbúðir liðsins en verið hefur. Árangurinn í fyrra flottur en menn vilja stíga frekari skref í átt að toppsæti úrvalsdeildarinnar. Það verður ekki auðvelt en alls ekki útilokað.


mbl.is City ætlar að selja Shaun Wright-Phillips
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottur árangur

Það virðist vera nett birta yfir yngri landsliðunum í fótboltanum hjá okkur um þessar mundir. Það er náttúrulega bara hið besta mál og vonandi að framhald verði á. Leyfi mér að spá að við náum 1 og 3 sæti. sem er ekkert annað en glæsilegt, nema Finnar komi með óvænt útspil Wink
mbl.is Ísland I spilar um gullið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KR-ingar feti framar...

...á vellinum þetta sumarið. En mörgum kílómetrum á undan flestum þegar kemur að útsendingarmálum frá leikjum - frábært framtak þarna á ferðinni. Langar samt að hryggja þessar elskur með því að segja þeim að ég mun ekki hlusta Wink   ....en veit um nokkra sem munu pottþétt gera það.
mbl.is KR-ingar lýsa beint frá Tbilisi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ansi margir........

..... í veglegu svitabaði þessa stundina yfir ástandinu er ég smeykur um. En var þetta ekki bara viðbúið? Margir búnir að fara hamförum í vitleysunni síðustu ár og hafa lifað í sínum eigin heimi. ......Hlutabréf í Prentsmiðjunni og Sjónvarpsvísi hafa en ekki lækkað, enda svo sem verið í lágmarki síðustu ár.
mbl.is Algjört hrun á mörkuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað að frétta úr Árbænum?

Þetta var aldeilis góður sigur á lærisveinum Óla Þórðar, sem er sennilegast en að þruma yfir sínum mönnum. Ekki leiðinlegt að taka 3 stig þarna og það í kveðjuleik Eiðs Arons að sinni með uppeldisfélaginu sínu. Vona að pilti gangi sem allra allra best á nýjum slóðum. Þar fetar hann í fótspor bæði Hlyns Stefáns. og núverandi leikmanns ÍBV Ian Jeffs. Frábært að ná svona sigri. Tala nú ekki um þegar Valsmenn ná ekki að knýja fram sigur í sinum leik. FH-ingar að rétta úr kútnum og narta í hælana á þremur efstu. EN þetta er ekkert flókið Eyjamenn þurfa bara að vinna sína leiki og eiga ekkert að vera að hafa áhyggjur af öðrum. Við eigum Valsmenn heima um helgina. Gott væri að vinna það og skilja þá eftir með sárt ennið. Gaman að sjá að gamla brýnið T. Guð setur 2 kvikindi.  ....jæja nú er Óli sennilega að klára ræðuna sína og því tímabært að loka þessu bloggi - áfram ÍBV alltaf, alls staðar og um alla eilífð.
mbl.is Eiður Aron kvaddi ÍBV með sigri í Árbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótímabær fullnæing.....

...fjölmiðla í þessu Ellen máli er ansi skemmtileg. DV með viðtal við personu og allt - þetta er snilldin ein ef svo má að orði komast.  Smáborgaraháttur Íslendinga í hnotskurn. Allt á hliðina ef sagt er að einhver "þekkt/ur" er sagður vera á landinu.
mbl.is Leiðrétt: Ellen DeGeneres ekki á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt alveg hreint

Verða ð swegja að mér finnst  það með miklum ólíkindum eð ekki skuli fleiri vera búnir að skrifa undir.  .....koma svo gott fólk! Kynnið ykkur þetta og skrifið svo undir ef ykkur líkar, sem ég er nokkuð viss um.

http://undirskrift.heimilin.is/


mbl.is Yfir 15 þúsund undirskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn stendur sig en.......

...aumkunarvert var að hlusta á framkvæmdastjóra ÍSÍ í kvöldfréttunum á Stöð2. Hún gat ekki einu sinni svarað því hvort henni þætti Crossfit íþrótt. ......er Crossfit kannski meira í ætt við frímerkjasöfnun?  Hvurslags aulaskapur er þetta þó að íþróttin sé ekki en samþykkt af alþjóða ólympíunefndinni þá getur þetta vel verið íþrótt - ekki vera svona þröng í hugsun. Í mínum huga er þetta ekki bara íþrótt heldur er þetta ein af áhugaverðustu íþróttagreinunum. íþróttagrein sem er snilldarlega sett upp. íþróttagrein sem allir geta tekið þátt í. Gengur út á að keppa fyrst og fremst við sjálfan sig, bæta eigin árangur. Auðvitað verða til keppnir í þessari íþróttagrein eins og öðrum og sumir skara meira fram úr en aðrir - þannig er lífið. Mögnuð grein sem vert er að gefa gaum.

Forsetinn gerði vel í að senda þessari mögnuðu íþróttagkonu hamingjuóskir frá þjóðinni - hún hefur svo sannarlega unnið inn fyrir slíkri kvðju.


mbl.is Forsetinn sendir Annie Mist heillaóskir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjaftæði, hreint og klárt

Þessar fréttir af Wesley og United eru bara orðrómur og ekkert til í þeim. Sir Alex sagði það sjálfur. Smile Svo sagðist hann sáttur við leikmannahópinn og til í slaginn!!!!   .....var hann kannski bara með póker andlitið uppi þegar hann sagði þetta? Halo


mbl.is Sneijder færist nær Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var mikið!!!!!

Nú sé ég fyrir mér að gróðurhúsaáhrifin og ræktin komi til Eyja og það með fullum þunga. Brátt munum við sjá Eyja-tómata og gúrkur og svo framvegis - ji hvað það verður gaman!!!!!!

Samt ó þarfi að vera í svona órækt eins og kannabisefnum - þó svo að tekjurnar af því séu sennilega meiri en af tómötunum!!!!


mbl.is Kannabisræktun í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Buffaður í Herjólfsdal - vitni óskast

Það var lífsreynsla að lenda í þessu! Sunnudagurinn, dagurinn sem mótshaldarar voru á nálum og voru við öllu búnir. Í þetta skiptið vegna ábendinga um að veðrið gæti rokiðupp í leiðinda vindverki. Það gerðist sem betur fer ekki. Flest virtist ganga eins og í sögu. Dagskráin gerði sig og vel það. Sigurvegarar í söngvakeppni, Mamma Mía leikfélagsins, Flott dagskrá í Boði Buff þar sem að Andrea Gylfa, Egill Ólafs. og Ragga Gísla tóku lagið - mörg gleðilögin þar. Svo kom Bubbi og rak enda hnútinn á prógramm sitt með því að fá Buff-ið til að spila með sér í þremur lögum. Brekkusöngurinn gekk sinn gang, en ekki varðeldurinn, það sem ég sá af honum, en þurfti að bregða mér aðeins út að innrukkunarhliði á meðan á honum stóð og heyrði því óminn af honum, sem alltaf er góður - blysin og Lífið er yndislegt á sínum stað. Já og nokkur rakettu skott.

Agent Fresco keyrðu síðan upp fjörið strax eftir miðnætti - magnaðir tónleikar hjá þeim og þeir voru fengu verðskuldað meira, meira, meira að spilamennsku lokinni. Svo tóku Buff-liðar við og voru með flotta sýningu - voru alveg frábærir, ekki dauð stund í 2 tíma - frábær keyrsla, frábær flutningur og mikil gleði. Takk fyrir mig Hannes og félagar. Að standa fyrir framan sviðið í brekkunni og njóta var unaður. Frábært sánd - ótrúlegt ljósasjóv, og eins og ég sagði áðan flutningurinn snilld. Maður var hreinlega Buffaður. Svo tók meistari Páll Óskar við og ég ætla ekki að fjalla um stuðið á honum einu sinni enn. - Veit ekkert hvenær partýið hætti  því ég pillaði mig út úr dalnum um hálffjögur og keyrði heim.

Sem betur fer gekk flest eins og ísögu þessa helgin. Fréttir af nauðgunarmálum sem ég las áðan eru ekki gleðifréttir en vonandi næst í hnakkadrambið á þeim viðbjóðum er þarna voru að verki.

Langar bara í lokin að þakka þeim fjölmörgu er lögðu leið sína til Eyja fyrir komuna, verið velkomin aftur. Öllum sem ég hitti þakka ég skemmtileg heitin.


mbl.is Gengur vel að flytja þjóðhátíðargesti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað

Þetta er alveg sjúklega flottur árangur hjá Annie Mist. Það er ekki eins og að þetta sé að verða heimsmeistari í Yatzy eða einhverju slíku. Hrikalega erfiðir dagar og hrikalega greinar og það þarf nú aldeilis að toppa sjálfan sig til að ná árangri eins og þarna er gert.

Til hamingju með þennan stórkostlega árangur Annie Mist.

Íþróttamaður ársins er sundinn, þósvo að ég sé ekki viss um að þessi grein, Crossfit, gefi sigurvegaranum rétt til að taka þá nafnbót samkvæmt einvherjum reglum.


mbl.is Ég gæti ekki verið ánægðari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.