Halló.....

Gætum við fengið að sleppa því að spila gegn Afturleingu? Fyrst eyðileggja þær bikardrauminn og nú held ég að þær hafi endanlega séð til þess að allir draumar um einhverja dollu í ár séu úr myndinni.
mbl.is ÍBV tapaði í Mosfellsbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stoppinu lokið?

Spurning hvort að með komu Péturs ljúki stoppinu í 1. deild vorið 2012. Liðið var fínt síðasta vetur og nú hafa þessir tveir refir bæst við og ef það er ekki til að styrkja liðið þá lýst mér ekki á þetta. Nú er bara að taka Þjóðhátíðina í móralskan undirbúning og síðan að halda áfram að koma sér í topp form fyrir átökin í vetur.
mbl.is Pétur Pálsson frá Danmörku í ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þykir mér þetta sérstakt!

Þarna er sagt að leimmaðurinn sé búinn að ná samkomulagi við Rosenborg - sem er svo sannarlega hið besta mál - en svo kemur að félögin seú ekki búin að semja um kaupverð? Ég í einfeldni minni hélt nú að menn kláruðu að kaupa leikmenn áður en þeir semdu við þá um kaup og kjör!!!  Hvað er manni að yfirsjást? Hvað gerist ef tilboð Válerenga í leikmanninn er miklu betra en tilboð Rosenborgar?
mbl.is Veigar búinn að semja við Rosenborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eigum við að segja?

Eigum við að leyfa okkur að vera jákvæð og segja að hann skori 10 mörk í vetur? viljið þið fara hærra? ...eða lægra?

Við vitum öll að hann hefur margt fram að færa þó ekki hafi hann verið sá iðnasti við að finna netmöskvana síðastliðin vetur.


mbl.is Torres: Ég mun skora
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fremstar meðal jafningja - í beinni á Eurosport2

Þessar stelpur hafa aldeilis náð frábærum árangri svo ekki sé meira sagt. Komnar í undanúrslit á EM. Mæta þar firnasterku liði Spánverja.  Vona að þeim gangi vel stelpunum. Hef fulla trú á að þær leggji senjoríturnar.  Skilst að leikirnir verði í beinni á Eurosport2

Planið hjá stelpunum:

The match schedule of the final tournament is as follows:

Thursday 28 July
Semi-final 1: Iceland – Spain (at 14.00)
Semi-final 2: Germany – France (at 18.00)

Sunday 31 July
3rd place play-off match (at 14.00)
Final (at 18.00)

All times are local.


mbl.is U-17 Guðmunda: Tveir menn rétta manni sokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert liggur á!

Eiður kemur nú sennilegast til með að klára tímabilið með okkur en verður síðan jafnvel færður úr stað og sendur erlendis. Hann er samningsbundinn og fer því ekki nema menn fá viðunandi tilboð en það hefur greinilega ekki gerst enn. Hann hefur verið sprækur síðustu tvö sumur pilturinn. Klárlega einn af ásunum í liðinu. Legg til að eitthvert lið komi inn með gott tilboð sem taki gildi um leið og tímabilið hér er liðið - þá ná menn saman!!!
mbl.is ÍBV hafnar öðru tilboði í Eið Aron
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fall fararheill?

Spurning hvort þetta verði til þess að Víkingar vakni endanlega af Þyrnirósarsvefni og i gyrði sig i brók í deildinni. Það fer hver að verða síðastur að landa þeim stigum sem þarf til þess að lyfta sér úr fallbaráttunni. Þetta er alveg vinnanlegur vegur og rúmlega það en eins og allir vita þá þá þrengir hver tap leikur á snörunni.  Það verður gaman að sjá hvernig Bjarnólfi og Tomma tekst til við að leysa þetta verkefni.
mbl.is Bjarnólfur: Átti ekki von á svona skelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mögnuð knattspyrnuþjóð

Þessi fámenna þjóð á ótrúlega sögu í tuðrusparkinu. 15 suður ameríkutitlar, 2 heimsmeistaratitlar og ef minnið svíkur mig ekki þá hafa þeir allavega tvisvar orðið ólýmpíumeistarar 1924 og 1928 - á þeim tíma er talað um að ÓL hafi verið einskonar óopinbert heimsmeistaramót í tuðrusparki.  Já já auðvitað er sumt af þessu eitthvað sem unnið var til fyrir mörgum árum en akkúrat þannig verður sagan til. þetta gerist ekki allt á einni nóttu. Auðvitað hafa komið döpur skeið hjá þeim, eins og öðrum, en vonandi eru þau ekki að fara að sjást í bráð.

Til hamingju stuðningsmenn Úrugvæa hvar sem þið eruð á jarðskorpunni.

Verður gaman að heyra í þeim núna sem alltaf eru að gera grín af því að ég skuli halda með þeim í öllum mótum.


mbl.is Úrúgvæ sigursælasta lið Suður-Ameríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3 góð stig

Þetta var frábært. Glæsilegt að landa 3 stigum þarna. Staða okkar i deildinni bara alveg með miklum ágætum. En nýtum við víti og ekki er Tryggvi að taka spyrnuna. Hann væri kominn en nær markametinu ef að hann blessaður fengi en að taka vítirnar. EN þetta met er aukaatriði fyrir félagið árangur liðsins er aðalatriðið. Metið er Tryggva mikilvægt, og það gæti dottið inn.

En nú er að skokka sig niður eftir þennan leik og gera sig kláran í undanúrslit í bikar gegn Þór á miðvikudaginn fyrir norðan. Það verður ekki auðvelt töpuðum fyrir þeim fyrir norðan fyrr í sumar. Svo tóku þeir Víkinga í bakaríið fyrr í dag þannig að menn verða að koma á tánum til leiks, ekkert flóknara en það. Úrslitaleikur í boði


mbl.is Tveggja marka sigur ÍBV á Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta lagast.....

....bara spurning um hvenær það verður.  Hugsið ef eitthvað verður að veðri og  vindi þegar t.d. Þjóðhátíð skellur á.
mbl.is Fyrstu ferðir Herjólfs falla niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna hér...

Hvað skal segja. Litríkur ferill. litskrúðugt einkalíf - bara flest allt var litskrúðugt, en þó kannski ekki allt á þann hátt sem að við myndum vilja sjá það hjá okkur sjálfum.  Flugið á ferlinum var nokkuð en náði samt aldrei þeim hæðum sem margir vonuðust til, til þess var líferni söngkonunnar of lirtíkt. Eiturlyfin tóku hana blessaða alla leið - því miður

Verð að láta eitt lag fljóta með ....í minningu þessarar ágætu söngkonu.


mbl.is Amy Winehouse er látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ævar vertu rólegur drengur

Það er nú allt í lagi að kíkja norður í nokkra daga en að missa sig svona svakalega Ævar það er nú eitthvað sem að maður vildi ekki heyra af.  Ætli Ingólfur Einis hafi verið mættur þarna líka og hjálpað til? Hættuleg blanda svo ekki sé meira sagt Smile
mbl.is Erill hjá lögreglu á Mærudögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjöldraga þetta lið

Ef að það næst í þetta lið þá á að kjöldraga. Meiri djöfuls viðbjóðurinn sem gengur yfir heimsbyggðina, endalaust og alltaf.
mbl.is Hryðjuverkasamtök segjast ábyrg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband