6.7.2011 | 13:05
Heyr heyr sko Eimskip
Múgæsingin í kringum þessar ferjusiglingar er orðinn óþolandi. Gjörsamlega genginn út yfir allan þjófabálk. Ágætt dæmi var um daginn þegar það kom upp bilun í vél. Eitthvað sem vel getur gerst. EN það var eins og við manninn mælt Facebook nötraði, bæjarlífið fór næstum því á hliðina og fjöldi manns þurfti að taka bæði róandi og svefnlyf til þess að festa blund þá um kvöldið, þrátt fyrir að þetta fólk hafi ekkert ætlað sér að fara með skipinu þennan dag. Þetta er komið út í algjört rugl. Það er á stundum eins og fólk geti ekki opnað nestisboxið sitt án þess að hrauna yfir Eimskip og Herjólf, sérstaklega þó starfsfólkið sem þar vinnur.
Það hlýtur að vera hagur allra að öryggið sé sett á oddinn - ekki satt. Ég hef enga trú, miðað við mín kynni af áhafnarmeðlimum, eða öðrum er þessu tengjast, að þeir vilji bara sigla i Þorlákshöfn, eða þaðan af lengra. Í hvert skipti sem að maður nær að króa þetta lið af þá er þetta fólk að vonast til þess sama og við hin að fært sé í Landeyjahöfn sem flesta daga ársins.
Höfnin er bara ekki alveg klár og hugsið ykkur hver staðan væri ef að það hefði verið farið í að fá þann Herjólf sem á teikniborðinu var og hann hefði verið kominn hingað þegar Landeyjahöfn opnaði!!!!!
Hvet fólk til að skoða ferðaáætlunin hér á myndinni - þetta er fyrir nokkrum árum síðan. Kannski áttum við bara að halda okkur við þetta þetta dugaði þá og íbúafjöldinn var svipaður
Herjólfur - Þjóðbraut milli lands og Eyja
![]() |
Skipstjórar Herjólfs fái vinnufrið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.7.2011 | 10:56
Lognið á undan storminum!!!
![]() |
Allt að róast við Heklu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2011 | 08:43
Nú brosir minn!!!
![]() |
Sól í kortunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.7.2011 | 08:11
Eru menn nú alveg vissir?
![]() |
Magnús bestur í fyrstu 8 umferðunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.7.2011 | 20:49
Hver andskotinn gengur á?
![]() |
Anna Björg með tvö í sigri Fylkis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.7.2011 | 17:14
Þetta verður forvitnilegt
![]() |
Hamann ráðinn knattspyrnustjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2011 | 22:04
Hinar hæfustu lifa!!!!!

![]() |
Þungir menn með færri sáðfrumur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.7.2011 | 16:03
Oft er fjör í Eyjum......
.......en kannski ekki alltaf það fjör sem að maður vill heyra af.
Þrátt fyrir þessar "hrakfarir" var náttúrulega líka fullt af hlutum í gangi sem fóru vel og glöddu, augu og eyru, hug og hjörtu - gleymum ekki þeim hlutum. það eru þeir sem munu lifa í minningunni, en ekki sá sem brá sér út á lífið og þurfti að taka með sér hafnaboltakylfu, já eða hníf. ....er ég kannski að misskilja þetta eitthvað eru svona verkfæri kannski að verða staðalbúnaður fyrir ferðir á skemmtistaði!!!!!
![]() |
Ráðist tvisvar á sama manninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.7.2011 | 09:47
Farnir á taugum
Held að nú séu leikmenn St. Patrick's Athletic Football Club farnir á taugum og ná þeim árangri að tapa þremur leikjum í röð á 8 dögum þegar þeir lúta í gras gegn ÍBV í Dublin á fimmtudaginn. ...hef trú á mínum mönnum ...koma svo
Það verður líka gaman að sjá hvernig bikardrátturinn fer í hádeginu. Held að við fáum útileik gegn KR. Synd að stelpurnar skuli ekki hafa klárað Aftureldingu. En nú höldum við bara með Aftureldingu í bikarnum já stelpunum!
![]() |
St. Patrick's tapaði toppslagnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.7.2011 | 19:06
Glæsilegt
Frábært að fá sigur í þessum leik. Vona að menn séu heilir eftir þennan leik. Nú tekur við afslöppun á morgun og svo flug til Íralnds á þriðjudaginn til að taka seinni leikinn í þessari umferð Evrópudeildarinnar. Frábært að vera komnir með liðið í undanúrslit - Til hamingju með þetta Heimir, leikmenn og knattspyrnuráð.
Gaman líka að sjá að það eru 3 lið komin áfram og þau eru öll af landsbyggðinni. BÍ/Bolungarvík, Þór frá Akureyri og svo Eyjamenn. Svo er spurningin hvort það verða KR-ingar eða Keflvíkingar sem taka fjórða sætið í undanúrslitunum.
Gaman að sjá að Þórsarar eru komnir þetta langt, sérstaklega í ljósi þess að margir settu liðið í hakkavél í upphafi móts.
![]() |
Eyjamenn í undanúrslitin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.7.2011 | 16:46
Magnað!
![]() |
Söguleg úrslit á Ísafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.7.2011 | 12:34
Aðkomupakk!!!
Það vatnar alveg í þessa frétt að þetta hafi allt verið utanbæjarmenn (aðkomupakk) sem var með þessi læti - hahahaha
.....nei nei ég er nú viss um að við áttum nokkra þarna, ef ekki bara vel flesta
![]() |
Erill í Vestmannaeyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.7.2011 | 07:34
Aumkunarvert yfirklór
Algörlega er þetta amkunarvert yfirklór. Hver sendi þessi fréttatilkynningu? Hún er ekki undirrituð af einum né neinum innan bankans. Það getur hver sem er komið yfir að gera svona bréfsefni og sendi frá sér. Sendi Guðmundur Kristjánsson þetta? Eða bara einhver vinur hans í bankanum? Algjörlega stórkostlegt að segja að frétt RÚV sé full af hinum eða þessum rangfærslum og ályktunum og hlaupa svo á bak við næsta stein og segjast ekki mega segja neitt.
Það er náttúrulega ótækt að verið sé að afskrifa milljarða hjá þessum spjátrungum og svo halda þeir eftir verðmætustu bitunum. Hverslags lið stjórnar bankanum? Hverra hagsmuna er það að gæta? Er þetta ekki ríkisbanki? Bankinn okkar? Er hann kannski bara sumra? Hvað hefði bankinn geta fengið mikið upp í afskriftirnar með sölu þessara bréfa. Eða annarra sem hlýft hefur verið??
Það er náttúrulega fyrir neðan allar hellur að bankinn skuli hafa selt Guðmundi Kristjánssyni og co. bréf sem hann átti. Án þess að bjóða hanná opnum markaði og reyna að hámarka þannig virði hlutarins. Gaman væri nú að vita á hvaða verði þessi hlutur fór. Bankinn hlýtur að mega greina frá því.
Skondið að hér á landi er allt við sama heygarðshornið og stendur ekki til að breyta neinu. Svona aumkunarvert yfirklór um alvarlegar athugasemdir, og það án nánari skýringa frá Landsbankanum eru gott dæmi um það.
RÚV liðar sem og aðrir fjölmiðlar hljóta að krefjast nánari skýringa frá Landsbankanum. Bankinn getur ekki kvatt málið svona.
![]() |
Alvarlegar athugasemdir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)