19.3.2011 | 14:05
Hverjir eru Ejamenn?
Ég veit að þetta voru mínir menn og ég er þess viss að þjálfari HK Tómas Ingi Tómasson hélt með sínu gamla liði, ÍBV, í leiknum!!!! En gott að menn eru að hrista af sér slenið frá síðustu leikjum. Liðið þarf að vera á tánum eftir 6 vikur þegar blásið verður til leiks á Íslandsmótinu.
klukkan 14:02 stóð
Ejamenn sterkari en HK
ÍBV lagði HK 4:1 í Lengjubikar karla í knattspyrnu í Kórnum í dag, en staðan í leikhléi var 2:0 fyri rEyjamenn.
Ian Jeffs reið á vaðið með marki á 40. mínútu, Tryggvi Guðmundsson náði síðan að setja hann á síðustu mínútu fyrri hálfleik. Brynjar Gauti Guðjónsson kom ÍBV í 3:0 með marki á 55. mínútu en Hólmbert Friðjónsson minnkaði muninn á 71. mínútu leiksins. Guðmundur Þórarinsson átti síðan lokaorðið með marki á 78. mínútu.
![]() |
Ejamenn sterkari en HK |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2011 | 13:25
Gunnar Steinn á leið til ÍBV
![]() |
Gunnar Steinn í stuði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.3.2011 | 08:33
Kraftur í kauða

![]() |
Kári með 4 mörk gegn Balingen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2011 | 08:30
Loksins, loksins
![]() |
Tók leikhlé eftir 42 sekúndur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2011 | 21:09
Aumkunarverð þjóð
Það verð ég að segja að ef þetta er rétt þá kemur hér en og aftur í ljós hversu aumkunarverð þessi blessaða þjóð er. Líf fjölda manns lagt í rúst í boði ríkisins. Við erum ekki að tala um eitthvert eitt eða tvö ár í vinnu við erum að tala um líf einstaklinganna, sumir hafa jafnvek horfið á brott fyrir eigin hendi eftir að hafa ekki þolað það er þeim hafði verið gert. Til að kóróna þetta þá er okkur sagt núna að hafa bæturnar lægri en hjá þeim er tóku málið út. Hverslags viðbjóður er þetta. Hvað er í kollinum á þessu liði?
Gleymum ekki að það voru lögfróðir menn og konur og sérfræðingar sem tóku málið út - hvað var það fólk að hugsa? Eiga þetta ekki að vera sérfræðingar í þessum málum? Er þetta fólk ekki að segja með þessu að þetta hafi í raun ekki verið neitt neitt?
Svo skulum við snúa teningnum við og horfa á annan vinkil. Þá var fjöldi manns sem missti sig í fjármálabulli og skuldar milljóna tugi og jafnvel milljarða og í staðinn fyrir að loka á það lið þá fær það afskriftir hjá vinum og kunningjum í bankakerfinu - og allir brosa - aumkunarvert - Ekki gleyma því líka að sumt þetta bankahark hefur lagst illa á sálina á fólki sem aðeins fór eftir ráðleggingum þeirra er í bönkunum störfuðu, en fóru jafnvel með rangt mál til að fá bónusinn sinn. Bankamaðurinn fær svo jafnvel afskriftir en ekki kúnninn - þetta er rotið samfélag - vægast sagt.
.....spurningin er í raun þessi: Hvar endar þetta?
![]() |
Nefndarmenn fá meira en þolendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.3.2011 | 15:05
Lítið annað um þetta að segja en.....
Sighvatur Jóns varð ekki neinum til tjóns þegar hann flakaði sundskýluna hans Ragga Rakara seint um kvöld heima hjá Braga, sem er ekki lengur á fluginu. Óli Venna var að kenna Friffa, sem er ekki lengur í Eyjabúð, að spila innibandí eins og Gunnar Heiðar, sem er ekki lengur í ÍBV eins og fluga á vegg og reif í sitt skegg með badmintonspaðanum hans Óskars í Áhaldaleigunni. Huginn Helga hoppaði hæð sína og fór að blása því hann vildi ekki mása og sagði að Óskar prentari væri pjása þannig að aðrir hlæji sig hása. Pása. ...................
Maggi Braga var með kraga í nokkra "daga og nætur" eftir Geir Reynis, sem tók hælkrók á Gulla Grettis sem var eitthvað að sýsla hjá Sýsla án þess að tala við Gilla sem finnst ekki gott silfur gulli betra, nema síður sé. Fóru þeir allir að spila bobb saman, því það er svo gaman fyrir alla, nema Stebba Óla, sem féll í bobb-skóla því hann var alltaf að hjóla milli nýárs og jóla.
Mari fékk sér bollastell og sagði bara "go-to-hell" við Berg bakara sem þoldi ekki Hvata flakara né Ragga rakara og hengdi bakara fyrir smið, fékk sér svið, og snéri sér við og hitt þar fyrir Gauja Rögg, sem var fyrir og með bögg þó hann hafi ekki fengið sér lögg, já ekki einu sinni smá dögg. Fór því bakarinn uppá Klif, fékk sér verkjalyf og hringdi í Sif, þó ekki Friðleifsdóttur, þar sem hann var sóttur á þyrlu og sendur heim til Hóla þar sem hann fékk að máta kjóla af honum Óla fyrrverandi hafnarverði.
![]() |
American Idol græðir mest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.3.2011 | 14:18
Upp skal haldið!
![]() |
Tillen til Selfyssinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2011 | 13:12
Veisla framundan
Þetta lítur vel út og það er klárt að víða verður bjór í krús og snakk á borði þegar viðureignirnar fara fram. Áhugavert, og verður örugglega skemmtilegt, að sjá Chelsea mæta Man U. var nú að vona að sá möguleiki yrði í stöðunni að Barcelona og Madrid gætu mæst í úrslitum en það þýðir ekkert að æsa sig yfir því það verður ekki. - Ætla svona í gamni að spá í hverjir fara áfram
Drátturinn í 8-liða úrslitunum:
Real Madrid - Tottenham
Chelsea - Manchester United
Barcelona - Shakhtar
Inter - Schalke
Leikirnir í átta liða úrslitunum fara fram 5/6. apríl og 12/13. apríl.
Leikirnir í undanúrslitum yrðu þá:
Man Utd - Schalke
Real Madrid - Barcelona
![]() |
Chelsea mætir Manchester United |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.3.2011 | 09:47
Eyjamenn engum líkir....
...nema sjálfum sér!!!
Það er ekki í hverju bæjarfélagi þar sem: Jói í Lifró heldur á hamri meðan Siggi Gumm situr á kamri. Elliði bæjó leikur Jón spæjó. Kristín Jóh. og Maggi skó fara fer helst ekki á sjó. Halli er kenndur við bedda. Kiddi Gogga, Ingó Arnars og Frikki Sæ stofna Gospel-kór og vekja bæjarbúa með englasöng á sunnudagsmorgnum ......á ég að halda áfram?
En tek heilshugar undir þarna með Kristínu margir hafa sýnt þolinmæði mikla varðandi málefni Landeyjahafnar, en sumir hafa þó misst sig gjörsamlega á götum úti. Sorglegast er þó að sjá fólk missa sig í umræðunni í þau skipti er skipið fer ekki og fremst fer þá jafnan fólk sem ætlaði ekki með skipinu þann daginn!!! - Legg nú bara traust mitt á skipstjórnarmennina, þeir bera ábyrgðina á skipinu og eru fyllilega færir um það.
Ég reyndar ekki frægur fyrir að æsa mig yfir þessu enda sjaldnast á ferðinni - heimakær með eindæmum - en málið snýst ekki bara um mig - sem betur fer. En það er fullt af fólki sem vill ferðast hér á milli, og að sjálfsögðu vill maður að það verði svo gott sem hnökralaust og í föstum skorðum að ferðast þetta.
....vonandi sjáum við fram á bjartari tíma. Við fundum öll fyrir því hér í Eyjum í fyrra hverslags slagkraftur kom með opnun þessarar hafnar, nú erum við farin að sakna hans.
Áfram Ísland
![]() |
Eyjamenn sýnt langlundargeð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.3.2011 | 23:12
Frábærar fréttir?
![]() |
Tókst að tengja rafmagn við Fukushima |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2011 | 20:50
....og heimurinn horfir á
Alltaf umdeilanlegt hvenær grípa á inn í ákveðin ferli, en andskoti er ég hræddur um að karlinn linni ekki látum fyrr en búið verður að þurrka liðið útaf kortinu. ......ef umheimurinn gerir ekkert núna þá þegir hann í smástund, en byrjar svo að kaupa af Gadaffí olíu og selja honum vopn!!!!!
![]() |
Hótar árásum á Benghazi í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.3.2011 | 13:31
Til hamingju Gunnar Heiðar
Það verð ég að segja eins mikið og mig langaði til að sjá kauða í ÍBV-búningnum í sumar að þá "lýst mér betur" á þetta. Það er ekki hægt að vera að koma heim að spila þegar svona möguleikar standa manni til boða. Vona bara að allt gangi vonum framar í búningi félagsins. Sá kappann spila með Halmstad þegar best lét á sínum tíma, árið eftir að ég náði samkomulagi við Halmstad um söluna á honum þangað, vona bara að svipaðir tímar snúi aftur fyrir þig á sænskri grundu. Gott líka ef þjálfarinn þekkir þig og veit hvað í þér býr, það hjálpar.
Megi þér ganga sem allra best. ÍBV er ekki að fara neitt, þannig að þú kemur bara til okkar eitthvað síðar á ferlinum, og verður velkominn.
![]() |
Gunnar Heiðar samdi við Norrköping |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.3.2011 | 09:07
Óþarfa panik!!!!
Í guðanna bænum farðu nú ekki að draga hina pólitísku panik inn í íþróttahreyfinguna Ívar. Við töpuðum og við unnum. Það gerist. Þetta var ekki okkar dagur þarna í Þýskalandi. Liðið er gott það vitum við en þeir sem draga vagninn verða ekki yngri með árunum og kannski þarf að fara að spila öflugu B-liði í nokkra leiki svona til hliðar við A-liðið til að móta menn fyrir framtíðina. Svo gæti farið að við misstum af bæði EM og Ólympíuleikunum en ég hef þá trú að við missum í versta falli af ólympíuleikunum. Við vinnum þessa 2 leiki sem að við eigum eftir í riðlinum fyrir EM og það mun koma okkur áfram. Í úrslitakeppni EM þurfum við svo að taka með okkur 4-5 yngri spilara sem eiga að taka svo við kyndlinum.
Förum ekki á taugum - það er ekki sjálfgefið að við séum alltaf á meðal þeirra bestu, öll lið ganga í gegnum lægðir.
![]() |
Hvað er á seyði hjá íslenska landsliðinu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)