Ský fyrir sólu

Það er ekki mikil birta frá mínum mönnum þessa dagana. Það eina jákvæða við leikinn í gær var að Steve Nash kom aftur inn í liðið. En tap og menn komnir í 50/50 hlutfall og því en á brattann að sækja ef að menn dreymir um úrslitakeppnina. Hornets einmitt síðasta lið inn ef ég man rétt, eins og staðan er núna,  og með þessum sigri bættu þeir bara stöðu sína. Held að mínir menn geti farið að huga að því hvað þeir ætli að gera þegar sumarleyfin hefjast já þeim liðum er ekki komast í úrslitakeppnina.
mbl.is Allt í sóma í Oklahoma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir hlutir gerast hægt!

Þetta verður allt í lagi þegar fram sækir. Menn þurfa bara að sýna örlítið meiri þolinmæði, veit að það er erfitt hjá mörgum, sérstaklega þeim sem stöðugt er á þvælingi milli lands og Eyja en fyrir mig sem fer þetta kannski 2-3 á ári þá veldur þetta ekki miklum truflunum. Hef einu sinni notað höfnina fram og til baka og þvílíka bótin sem þetta er, ég ætla ekki einu sinni að reyna að lýsa því. Bið fólk að sýna örlítið meiri biðlund, vera í góðu skapi og vera tilbúið að takast á við framtíðin í samgöngumálum okkar Eyjamanna með bros á vör. - það er svo miklu auðveldara.
mbl.is Bjartsýni ríkir um Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sir Shut your mouth!!!

Hefði nú ekki búist við svona hörðum dómi, en kannski er það
réttlætanlegt var hann ekki á skilorði? Þetta kennir karli kannski að
hafa hægt um sig á næstunni, þó ég sé ekkert sérstaklega að reikna með
því.  Einn skrautlegasti gaurinn á svæðinu sir Alex og aldrei lognmolla í
kringum hann. Er þegar farinn að kvíða þeim tíma þegar karlinn sest í
helgan stein.
mbl.is Ferguson úrskurðaður í fimm leikja bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Van der Sar ótrúlegur

Það verð ég að segja að ég er mest hissa á að hann skuli bara ekki fara fram á að liðið fái að sitja hjá!!!! Hélt að hann vildi vera öruggur áfram í keppninni þá er nú um að gera að fá Tottenham eða Chelsea í 8 liða úrslitunum.  Annars held ég að United fá lið frá austur-Evrópu í þessum drætti.
mbl.is Van der Sar: Ekki Chelsea eða Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sveðjur og spjót

Það er ég ansi hræddur um að allskyns svona yfirlýsingar eigi eftir að koma í bakið á mönnum í Evrópu, já og víðar, þegar um allt losnar í þessum löndum. Vesturlandaþjóðir búnar að moka í hina og þessa sjóði hjá valdhöfum, sem kúga fólkið í sínu landi, og jafnvel einhverjir af valdhöfunum lagt eitthvað á móti í sjóði eins og þarna um ræðir. Það gæti því margt miður skemmtilegt, ja allavega fyrir suma, átt eftir að koma fram í dagsljósið á næstunni.
mbl.is Segir að Líbía hafi fjármagnað kosningabaráttu Sarkozy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning um að finna.....

....númerið hans og hafa í simaskránni svo menn geti hringt í hann þegar næst á að boða saman landsliðshópinn. Hlýtur að vera svigrúm fyrir ný andlit eftir skandalinn í Þýskalandi um síðustu helgi Wink
mbl.is Enn einn stórleikurinn hjá Gunnari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin trú!

Hef enga trú á árangri að þessu hjali í stjórnarráðinu svona snemma morguns. Hef trú á því að vasaklúta safn Villa vasaklúts klárist  að fundi afloknum. Svo er nú líka málið að það má ekki bara horfa á ríkisstjórnina, þó hún sé mikilvæg. Ég er ansi hræddur um að fólkið í landinu vilji sjá alvöru hækkanir á launum í kjölfar þess sem á undan er gengið.
mbl.is Ganga á fund ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiður fær ekki byr í seglin

Óli Jóh. fyrrverandi þjálfari Skallagríms í Borgarnesi sleppir því að velja Eið Smára þar sem hann hefur átt erfitt uppdráttar í vetur, já og reyndar síðustu 2 vetur þar á undan. Ætli það verði til að auðvelda Eiði Smára baráttuna hjá Fulham að vera ekki valinn í landsliðhópinn hjá þjóð sem er númer 100 og eitthvað á heimslistanum?  Kannski að það hefði hjálpað Eiði Smára að vera valinn, fá að spila og öðlast smá trú á sjálfum sér.

En hlakka mikið til að sjá hvernig liðinu gengur í þessum leik ákaflega mikilvægur leikur fyrir okkar menn. Megum alls ekki tapa þessum leik.


mbl.is Ólafur: Eiður hefur átt erfitt uppdráttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er tíminn

Það er akkúrat á þessum tímapunkti sem að það má stoppa í glufurnar varnarleiknum - mikið í húfi. Vona að mínir menn fari mikinn í úrlsitakeppninni og nái að verja titilinn.

Áfram Snæfell


mbl.is „Þurfum að bæta vörnina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki alltaf jólin!!! ......einn punktur

Get á mér setið að setja út á atriði í þessari frétt, en þar segir:

Óeirðir brutust út að nýju á hinni afskekktu Jólaeyju við Ástralíu aðfaranótt þriðjudags. 

Hvernig getur Eyja verið afskekkt ef hún er við Ástralíu? En þetta kannski leiðréttist aðeins þegar líður á lestur fréttarinnar en þar segir:

Á föstudag brutust 70 hælisleitendur út úr búðunum á Jólaeyju, sem er í Indlandshafi um 2.500 km norðvestur af Perth. 

þarna er möguleiki að vera afskekktur!!!


mbl.is Óeirðir á Jólaeyju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennó?

Hlakka til að sjá hvort menn koma með svar við þessum ágæta pistli Jóhannesar Valgeirssonar. Veit ekki hvað hefur gengið á þarna hingað til og hef í raun enga skoðun á því, að svo stöddu.

Hvað skyldi Gylfi segja, já eða Þórir?


mbl.is Yfirlýsing frá Jóhannesi Valgeirssyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á einhver strætó?....

Mætti fyrir framan skjáinn þokkalega glaður í bragði og nokkuð viss að við myndum ýta við þeim þýsku. Svo varð nú aldeilis ekki raunin. Upprúllun frá fyrsta flauti og til þess síðasta.

Menn eiga að skammast sín. Það er hægt að sætta sig við tap en að sjá heilt lið jarðað lifandi er svakalegt.

Það eru tveir leikir eftir og lítið annað að gera en að vinna þá. Annars eru EM og draumur um Ólympíuleikana úti.

Þegar ég sá að RÚV  tók þetta í gegnum Eurosport setti ég á Eurosport og horfði á þetta þar, lengstum. Hló mikið þegar þulurinn á ensku sagði að vörn Íslands hefði verið svo opin að það hefði mátt keyra þar í gegn á strætó!!!!!!!


mbl.is Ellefu marka skellur í Halle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar fór það fjandans til!

Þá er draumurinn um United - City leikinn með liðunum frá Manchester úti. En nú getur maður gælt við að Grétar Rafn leiki á Wembley í úrslitaleik - sem yrði frábært fyrir pilt. Ég reyndar skuldbundinn af reglunni minni sem ég nefndi hér fyrr í dag og það er að halda með Stoke af því að þeir slógu Brighton út.

United - City í undanúllsitum yrði svakalegt, en ekki yrði það leiðinlegra fyrir okkur íslendinga ef að Reading myndi slá City úr leik. Það yrði þá kannski bara haugur af íslendingum í undanúrslitum enska bikarsins.!!!


mbl.is Dregið í ensku bikarkeppninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband