Hæ hó jibbí.............

...og svo framvegis

Það er nú gott að Skandia er komin  af stað til að reyna að koma þessu í gang þarna hjá okkur. Munar öllu og það verður náttúrulega væntanlega allur annar bragur á þessu þegar þetta skip, sem er nú öflugra en blessað dæluskipið sem við höfðum, er búið að athafna sig þarna um stundarsakir.

Mikið er um úrtölufólk um blessaða Landeyjahöfn. Athyglisvert er að heyra að flest af því fólki er ekki búsett í Eyjum, og jafnvel tengist ekki Eyjum á neinn hátt. Þetta fólk hefur bara þessa íslensku sérvisku að vera á móti öllu og reyna að níða af öllum skóinn. Er viss um að þjóðin á heimsmet í því. Auðvitað hefur ekki allt gengið sem skyldi í upphafi, þó samt hafi ansi margar ferðir verið farnar hér á milli og tugþúsundir manna og kvenna, innlendra sem erlendra nýtt sér það  - ekki gleyma því. Hingað í prentsmiðjuna hringdi meira að segja kona áðan og var að biðja um styrk fyrir ákveðið málefni og samtalið endaði á löngu spjalli um Landeyjahöfn. Þessi kona, sem tengist ekki Eyjum á nokkurn hátt var að vona að þetta væri að komast í fastar skorður því hana langar svo svakalega að geta skroppið hér yfir og fengið sér kaffibolla og notið náttúrunnar. Ég vona að nú styttist í það þetta verði að veruleika hjá blessaðri konunni.

Fyrir þá sem allt sjá þessu til foráttu set ég bara þennan litla pistil hér með og minni á að enginn verður óbarinn biskup:

herjoldur.jpg


mbl.is Skandia farin að dæla sandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru menn ekki að grínast?

Ef að ég væri ekki fullorðinn Íslendingur myndi ég halda að menn væru að grínast með þetta. Það er náttúrulega ekkert eðlilegt við þennan tíma sem að nefndin tekur sér til að útkljá svona málefni. Það hlýtur hver heilvita maður að sjá að við þetta má ekki búa. Með þessum viðbrögðum er bara verið að halda fyrirtækjum í gíslingu. Þetta verður að laga og það á innan við 6 vikum. menn þurfa að setja nefndinni mun strangari starfsreglur, það sýnist mér alveg liggja í augum uppi.

„Það er atvinnulífinu mjög mikilvægt að sá tími sem tekur að fá úrskurði stjórnsýslunnar í einstökum málum sé eins skammur og unnt er. Í því tilviki sem hér er rakið er úrskurðartíminn allt of langur og alveg ljóst að nefndin virðir alls ekki ákvæði laga sem um hana gildir. Það er ljóst að þessi langi afgreiðslutími er verulega íþyngjandi fyrir alla þá sem sækja mál fyrir þessum aðilum. Nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða og tryggi að farið sé að lögum. Ástandið er óviðunandi,“

Tek heilshugar undir þessar athugasemdir samtaka atvinnulífsins.


mbl.is Úrskurðarnefnd virðir ekki lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta kætir karlinn!

Það verð ég að segja að þessi niðurstaða kætir Gísla Hjartarson til heimilis að Fjólugötu 21 Vestmannaeyjum alveg óskaplega. Það verð ég að segja að þetta er það sem að maður hefur alltaf viljað sjá. Já og ekki aðeins í tuðrusparkinu heldur líka klísturkastinu og öðrum greinum. Hlakka til að horfa á skjáinn þegar þetta verður orðin raunin. Reynda held ég nú að RÚV sé með næsta EM og HM í fótboltanum þannig að ég hafði nú kannski ekki miklar áhyggjur. Held samt reyndar að þeir hjá RÚV ættu að fara að koma upp annarri rás/öðrum rásum þar sem hægt er að sýna íþróttaviðburði og ýmsilegt annað sem er í beinni útsendingu - og er í lengra lagi - held að það myndi kæta marga. Svo leiðis rás má meira að segja líka nota til að sýna gamalt áhugavert efni.
mbl.is Knattspyrnuleikir verði í opinni dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úlfaldinn og mýflugan

Alveg finnst mér þetta makalaust. Þetta eru umræður á hinu háa Alþingi, ekki satt?  Þarf að spyrja spurning eftir einhverju ákveðnu formi? Þó manni líki ekki spurningar þarf þá að svara svona? það er pottþétt hægt að svara öðruvísi og komast þannig frá málinu að báðir aðilar skilji sáttir og skilaboðin komist til skila.

Langar nú samt að hvetja báðar þessar þingkonur til að halda áfram að vera þær sjálfar, því án þeirra hefði ekki orðið nein frétt úr þesssu. Þær eiga líka báðar að njóta þess að sitja á þingi þetta kjörtímabil því ég er ekkert viss um að þær verði á þessum vinnustað þegar búið verður að kjósa aftur.


mbl.is Á ekki að spyrja svona vitleysislegra spurninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Förum við sömu leið?

Grunnstörfin á Íslandi er í dag orðin af nokkru leyti unnin af innflytjendum, þó hlutfallið sé nú sennilega ekki nálgæt því sem þekkir í Englandi, en eiga menn að setja varnagla í kerfið hér? Herða viðurlög við svikum og svo framvegis?
mbl.is Breska bótakerfið stokkað upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn sögðu líka......

...að írakar byggju yfir kjarnavopnum og gerðu innrás í landið. Írakar voru þá í vandræðum en væntanlega ekkert í líkingu miðað við þann glundroða sem að Bandaríkjamenn og vinir hafa komið á þarna - svei mér þá.  Ætli írakar geti sótt um skaðabætur?
mbl.is Írakar munu lenda í vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Axlaböndum Davíðs kastað!!!

Held að það sé ekki öfsögum sagt að í dag hafi Bjarni Ben kastað af sér axlaböndum Davíðs og öðlast eigið líf sem formaður flokksins sem hann er formaður fyrir.
mbl.is „Ekkert gleðiefni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jibbí.....

Þá er þetta komið á áfangastað að sinni. Nú er bara að sjá hvað gerist í framhaldinu........núbíða allir eftir því hvað forseti vor gerir. hef enga trú á að hann setji þetta í þjóðaraðtkvæðagreiðslu og því eru þetta málalyktir. Hvort sem mér líkar betur eða verr. Það er búið að dæla á okkur skuldum þessa bankafjörs, heilu bankarnir og sparisjóðirnir settir á okkar herðar og við skulum greiða upp fjörið rétt eins og Icesave - sanngjarnt?  nei ég held ekki.
mbl.is Icesave-samningur samþykktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur sigur - Nash upp fyrir Peyton

Glæsilegur sigur hjá Suns gegn Utah Jazz. Menn komnir yfir 50% hlutfallið (27-26). Channing Frye fór á kostum. 11 fráköst 31 stig og 6 3ja stiga körfur í 10 skotum.

Steve Nash skoraði 20 stig og fór fram úr Gerry Peyton með sinni 9 stoðsendingu í leiknum, endaði í 14 og vantar nú innan við 100 til þess að fara upp fyrir Isiah Thomas og í 6 sætið á listanum yfir flestar stoðsendingar í sögu NBA - glæsilegt  - Nash hitti einnig úr öllum vítaskotunum í en eitt skiptið og er en efstur yfir bestu nýtingu vítaskota í sögu NBA, en það stendur tæpt og þar sem hann er en að spila og á örugglega eftir að taka nokkur skot þá gæti hann nú dottið úr efsta sætinu þar.

Næst skal leikið gegn Dallas, það verður erfitt - GO Suns  

 


mbl.is 90 stig frá Miami þríeykinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hægt að mislíka þetta

Þetta er bara gleðiefni - svei mér þá ef menn brosa ekki bara hringinn.
mbl.is Tillaga um meiri loðnukvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt ...og meiri kvóti

Þetta er bara flott og ekkert meira um það að segja. Smá frystipása í Vinnslustöðinni veit ég en það verður ekki lengi allt komið á fullt aftur um helgi - glæsilegt alveg hreint.
mbl.is Góð loðnuveiði út af Garðskaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin íslensku.....

....Soprano ævintýri gætu verið tekin upp í Kópavogi. Alltaf þegar maður heldur að að partýið sé búið þarna þá sér einhver góðhjartaður Kópavogsbúinn til þess að það er hægt að semja þátt um nýtt ævintýri - já og það virðist ekki skipta máli  hvaða pólitíska afl á hlut að máli.

Það var sagt: Það er gott að búa í Kópavogi. Nú vilja sumir meina að það sem býr í Kópavogi sé siðlaust .......en ég hef nú ekki trú á að það eigi við um alla þó maður hafi heyrt af nokkrum, því það er jú misjafn sauður í mörgu fé..


mbl.is Segir bæinn hafa greitt fyrir kosningabaráttu flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algjör óþarfi!!!

Finnst algjör óþarfi að vera að blása það út þá einhverjar uglur í húsi við Austurvöll þurfi að vinna frameftir. Hvað hefur ekki þjóðin þurft að taka á sig mikla yfirvinnu til að moka yfir vitleysuna sem út úr þessu húsið hefur komið í gegnum árin, og aldrei hefur mbl.is verið að minnast á það. Trúi því ekki að fólki haldi að það verði breyting á því!!!
mbl.is Þingfundur fram á nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband