Er þetta mál stærra en Eyjarnar?

Lýst ágætlega á að bæjarstjórnin ætlar að reyna að slást við þessa sölu á fyrirtækinu.

Hefði samt haldið að rétt hefði verið að bjóða Síldavinnsluna velkomna til Eyja fyrst þeir segjast ætla að gera út frá Eyjum. Ber ekki að fagna því? Eða viljum við ekki hvaða fyrirtæki sem er í Eyjum? Ég hefði haldið að fyrsta skrefið hefði átt að vera að fagna nýjum eigendum og ræða við þá og sjá hverjar fyrirætlanir þeirra væru áður en rokið var af stað - er þetta ekki allt til einskins ef þeir gera svo út frá Eyjum og áhafnirnar fá að halda lögheimili sitt hér. Voru menn búnir að taka af allan vafa um þessa hluti? Minnist þess ekki að hafa séð neitt sérstaklega um það, viðurkenni samt að ég hef ekki legið yfir þessu og gæti því hafa misst af því.

Verð nú líka að segja að það kemur mér á óvart hversu mikið þessi sala virðist hafa komið mörgum í opna skjöldu - finnst einhvern veginn menn alltaf hafa verið með vangaveltur um þetta síðustu 2-3 ár. Kannski reiknuðu menn með að þeim yrði boðið að bjóða í þetta. En það stóð klárlega ekki til boða.

Hvað ætlar bæjarstjórnin að gera við kvótann, já og skipin, ef að hún vinnur málið?

Er ekki rétt að spyrja sig að því? Fá umræðu um það mál - það er klárlega ekkert einkamál örfárra - menn verða að hlusta á umhverfið. Hefur bæjarstjórnin bolmagn til að berjast gegn þessu? Eru einhver fyrirtæki á bakvið bæjarins með það í huga að þeim og aðeins þeim verði boðinn kvótinn ef málið vinnst? Eða ætla menn svo kannski bara í kvótabrask við fyrirtæki hér innanbæjar? Menn hljóta þá að bjóða öllum útgerðum í bænum að bjóða í kvótann sem þeim áskotnast - er það ekki - eða á að gera þetta þannig úr garði að ekki geti allir styrkt sinn skerf af kvótakökunni.

Væri ekki bara fínt fyrir bæinn að eiga eitthvað af kvótanum eftir og leigja gegn tiltölulega vægu gjaldi til útgerða innanbæjar sem svo landa hér, veita vinnu og greiða hingað gjöld og annað eins og áhafnir þeirra. - bara hugmynd

Það hefur margt verið sagt hér í Eyjum í kjölfar þessa máls. Margt sem að manni finnst afar skrýtið, annað sem að maður á ekki orð yfir og sumt sem að maður getur alveg verið sammála.

þhlakka til að sjá hver framvinda þessa máls verður


mbl.is „Málið stærra en Vestmannaeyjar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....já nú skal það gerast!!!

Nú er kominn tími á að leggja norska herinn af velli og það með glans. Ekki missa af því, það verður í beinni í sjónvarpinu, ef þú kemst ekki á völlinn!!!
mbl.is Alfreð: Kominn tími til að vinna Norðmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú byrjar fjörið!!!

Roy vinur minn tók við liðinu þegar það var komið í úrslit á EM. Nú er það ævintýri allt komið í sögubækurnar og keppnin minningin ein. Nú byrjar fjörið hjá honum, nú fyrst byrjar pressan. Það verður engin miskunn hjá bresku pressunni og þjóðinni núna frekar en fyrri daginn. Það er nú sem fyrr ekki sá skilningur alltaf til staðar að liðið sé kannski bara ekki betra en það sýnir. Það er ekki eins og liðið sé alltaf að spila undir getu, ár eftir ár, mót eftir mót. Menn hljóta að fara að kaupa það fyrir alvöru að þeir eru ekki á meðal 3ja bestu liða heims, já og ekki einu sinni 3ja bestu í Evrópu. Hlakka til að sjá hvernig þetta gengur hjá vini mínum.
mbl.is Gerrard: Þurfum að vera þolinmóðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....dregid upp úr hatti!¡

Tad verd eg ad segja ad karlinn er kaldur ad gera tetta. Tad error build ad setja snort a um halsinn á honum same gerir Hann tetta. Kannski er honum ordid slett sama um tetta. Trúi tvi nu samt ekki. T ad hefur verid gaman ad fylgjast med teim mikla motbyr sem hann hefur turf ad glima vid - og hann er tarna enn - hversu Lengi aetli tad verdi?
mbl.is Keypti þrjá leikmenn án þess að sjá þá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forvitnilegt mál.

Það verður forvitnilegt að sjá hvað kemur út úr þessu. Hver verður framvinda mála. Getur byggðarlagið stöðvað þetta? Hundsa menn það? Er kvótinn að fara úr bænum?

Verð nú samt að segja að það kemur mér ekkert á óvart að fyrirtækið hafi verið selt. Held að það komi ekki svo mörgum á óvart sem til þekkja í þessum bransa. Held að það hljóti margir að hafa skoðað stöðu Bergs-Hugins sem eru í útgerð. Menn vissu að Landsbankinn var þarna stór hluthafi. Menn vita líka að útgerðarþátturinn er góður en menn vissu að eigandinn var á margan hátt í hlekkjum bankans. Þetta er svo væntanlega bara spurning um að vera á tánum, og ota sínum tota, og svo spurning um krónur og aura ef þú nærð tali af eiganda. EN það er náttúrulega samt ekki nóg ef menn hafa jafnvel bara viljað selja ákveðnum aðilum fyrirtækið - þá eru krónan og aurinn ekki alltaf nóg.

Fullt af spurningum sem þarf að fá svör við en......

Hvað gerist ef t.d. Síldavinnslan ætlar að gera þessi skip út frá Eyjum og vera jafnvel með lítið útgerðarfyrirtæki sem þeir reka héðan? þá þarf varla að koma til einhvers forkaupsréttar því kvótinn er ekki að fara neitt. - Er ekkert að segja að þetta verði svona bara velta þessu upp.

 


mbl.is Vestmannaeyjabær vill fá svar fyrir föstudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Þór/KA

Glæsilegt - annað árið í röð í kvennaboltanum sem að við sjáum nýtt nafn á dollunni - akkurat það sem kvennaboltinn þarf, r´tt eins og karlafótboltinn reyndar. Stjarnan í fyrra, Þór/KA í ár kannski að það verði ÍBV 2012 - hver veit. Veit það allavega að ég er ánægður að hvorki Valur né Breiðablik eru að krækja í dollu þrátt fyrir að Valsliðið hafi t.d. reynslubolta innanborðs - sem stundum hefur nú dugað í kvennaboltanum, og í heildina fínan mannskap og Blikar lögðu mikið undir í sumar.

Til hamingju norðanstelpur þið eruð svo sannarlega vel að þessu komnar.


mbl.is Þór/KA Íslandsmeistari 2012
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama gamla sagan....

....þetta hljómar nú kunnuglega með Ronaldo - alltaf eitthvað "væl" í gangi. Aldrei ángður nema 6 mánuði í einu - hámark. Hlakka til að sjá hann halda aftur til Englands!!!
mbl.is Ronaldo eins og grenjandi smábarn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennan magnast!!!

Það er ekkert meira um það að segja en að spennan er að magnast í botnbaráttu deildarinnar. Grindvíkingar eru fallnir - sé ekkert bjarga þeim héðan af. En nú virðist svo vera sem að Fylkismenn séu að nálgst hættu svæðið líka - þeir virðast hafa misst fótfestu sína og nálgast niðursogið - þetta verður spennandi lokasprettur í deildinni - FH búið með þetta á hinum endanum. Reyndar verður baráttan um evrópusæti skemmtileg og vonandi landa mínir menn evrópusæti ........annars verður þetta mót mikil vonbrigði - vægast sagt
mbl.is Framarar léku Fylkismenn grátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eru menn að spá?

Hvernig dettur þeim í hug að láta Terry Connor fara frá félaginu? Sá hefur nú aldeilis tekið þátt í að halda þessu liði á floti á einn eða annan hátt með störfum sínum þarna - svo eru þetta þakkirnar. Smile Terry átti ágætisferil sem leikmaður og varði megninu af ferli sínum sem leikmaður Leeds United og Brighton and Hove Albion. Pilturinn þótti nokkuð skæður á sínum tíma. EN það hefur náttúrulega ekkert með störf hans hjá Wolves að gera. Jújú hann hefur verið þjálfari þarna lengi og unnið vel fyrir félagið, en ég leyfi mér að efast um að hann verði nokkurn tíma einhver stjóri sem mun gusta af!!!

Ferill Terry Connor

Years1979–19831983–19871987–19901990–19911991–199319921993–1994
TeamApps(Gls)
Leeds United96(19)
Brighton & Hove Albion156(51)
Portsmouth48(14)
Swansea City39(6)
Bristol City16(1)
 Swansea City (loan)3(0)
Yeovil Town[2]14(0)

og svo mark sem gladdi mann:


mbl.is Aðstoðarstjóri Björns Bergmanns rekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt Jón Margeir

Til hamingju með þetta drengur - glæsilegt hjá þér - haltu áfram á þessari braut.
mbl.is Jón Margeir: Gullið fær sinn vegg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er stórveldi?

Getur einhver þarna úti frætt mig á því hvað er stórveldi? Eru þessi 2 lið stórveldi? .......eða lifa þau kannski bara á fornri frægð?

Synd að ná ekki að sjá þennan leik, er ansi hræddur um að Liverpool menn verði kátir að leik loknum. Ég segi 2-0 fyrir Livewrpool, minn maður Suarez með bæði.


mbl.is Slagur stórvelda án sigurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meistararnir sterkir en........

....ég hugsa að það eigi eftir að verða þeim að falli í einhverjum leikjum að klára ekki leikina þegar yfirburðir þeirra eru eins og sést hefur í sumumleikjum. Stundumeins og það sé spilað á eitt mark en einhvern veginn fara þeir að því að ná ekki að gera 2-3 mörk og gera út um leikinn á segjum fyrstu 45 mínútunum. Í staðinn lenda þeir í því að fá á sig mark/mörk og þurfa að spýta aftur í lófana. Er hræddur um að þetta muni kosta þá mikilvæg stig í vetur. Ekki það að það skipti mig einhverju máli en held að einhverjir eigi eftir að naga á sér handarbökin eftir stig tapast í leikjum þar sem þeir voru lang tímum saman eins og eina liðið á vellinum.
mbl.is Meistararnir unnu QPR á heimavelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drottningar með hatta!!!

Hvað voru þá allar þessar sem ekki voru með hatta? prinsessur? druslur? búðarkonur? fiskverkakonur?

Sé ekki betur en þetta séu allt þessar flottu konur, hvort sem þær eru flokkaðar sem drottningar eða annað, sem hafa greinilega gert sér glaðan dag og haft gaman af.


mbl.is Drottningar með hatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband