Fengi minn stuðning....

...pottþétt, nema að menn myndu pínu Hönnu Birnu í að bjóða sig fram. Já eða Ragnheiði Rikka.
mbl.is Halldór býður sig fram til formanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaman að vera einn af þessum......

....sem ekkert hefur fengið, og reikna svo sem ekkert með því að f´aeitthvað. En gott ef einhverjir hafa verið gladdir með endurgreiðslum - til hamingju þið
mbl.is Hafa endurgreitt 9 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....vinsældarlista Bjarni

.....hlakka til að heyra viðbrögð hinna fjölmörgu íhaldsmanna sem eru ekki sammála Bjarna þegar kemur að ESB og hagsmunum Íslands

Mat sem stöðugt hefur verið í endurnýjun en niðurstaðan á síðasta landsfundi var afdráttarlaus og þar við situr að mati Bjarna.  ....Af hverju gerðu menn ekki Hönnu Birnu að formanni? Mér er það óskiljanlegt. Skilst að meira að segja hjörðin hér í Eyjum hafi staðið með Bjarna á sínum tíma - verð að segja að það kom mér í opna skjöldu að heyra það. En þar á bæ vilja menn auðvitað hafa einhvern sem er auðveldur í taumi, og þeir munu hafa hann áfram.


mbl.is Best borgið utan Evrópusambandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innkaupastjóri eða þjálfari!!!

Kannski ekki óeðlileg spurning. Veit samt ekki hvort félagi Maggi er ánægður með að ég setji þetta svona upp. Hann verður þá bara fúll Smile  En svona lítur þetta oft út  þegar horft er á þetta af hliðarlínunni.  Mðaur veltir því stundum fyrir sér hvort þjáflunin sem slík er orðin aukabúgrein í íslenska boltanum og hefur þurft að víkja fyrir innkaupatækni þess er kallaður er þjálfari. Athugið að þetta er ekkert séreinkenni á Val eða Magga, langur vegur frá þetta viðgengst víðar. En sem dæmi má í raun benda á að með öllum þessum innkaupum þá lítur þetta út eins og Valsliðið, hópurinn, í fyrra hafi verið alveg ömurlegt.   ....svo er bara að sjá hvað gerist í sumar.

En það verður nú að segjast eins og er að kaupin á Bjarna Ólafi eru nú bestu innkaupin sem hinn nýji "innkaupastjóri" hefur gert síðan hann tók til starfa, að mínu mati. 


mbl.is Að hluta til mér að kenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...ekkert að frétta á Emirates!!!

Arsenal-liðið mætti nú varla til leiks í fyrri hálfleik. Bayern mörgum klössum ofar á köflum. Síðari hálfleiku skárri af hálfu Arsenal manna og fengu nú þetta prýðisgóða tækifæri til að jafna 2-2. Síðan er það hælspyrna í góðri sókn sem kostar það að Bayern menn ná að sækja hratt, skora og gera út um leikinn og einvígið!!! Hef enga trú á því að Arsenal nái að vinna þetta til baka - ekki nokkra einustu trú - því miður.

Maður hélt að Arsenal menn myndu hysja upp um sig buxurnar eftir bikartapið, en það var engu líkara á köflum en að þeir væru ekki en búnir að ná sér en eftir það. 

Hverja ætli Bayern fái í 8-liða úrslitum? 


mbl.is Bayern í kjörstöðu eftir 3:1 sigur á Emirates
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki spurning

Held að blessaður drengurinn hitti þarna naglann á höfuðið, hann verður kallaður til baka fyrr en síðar. Gæti samt orðið á láni 3 tímabil í viðbót en svo hefst aðlögunin og hann mun taka við. Kæmi mér ekkert á óvart þó Chelsea myndi reyna að láta Chech fara á þeim tímapunkti þegar að þeir geta en fengið eitthvað af penignum fyrir hann. Magnaður markvörður Chech sem verður 31 árs seinna á árinu, 10 árum eldri en Courtois. Kæmi mér ekkert á óvart þó að þeir yrðu látnir taka eitt tímabil saman og berjast um stöðuna við þriðja mann.    ....svo má líka vera, og við skulum ekki láta okkur bregða ef það gerist, að Chelsea fari í eltingaleik við einhverja aðra markverði og hendi Courtois og jafnvel Chech líka. Það yrði slæm færsla en hvað veit maður þegar Chelsea er annars vegar? 
mbl.is Courtois: Tek við af Cech eftir tvö ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta líkar mér

Það er aldrei of varlega farið þegar kemur að friðun húsa. Það er nú oft þannig að í núinu finnst manni þetta oft ekki merkilegar byggingar, oft hálfgerðir hjallar og eitthvað sem ætti að ryðja úr vegi sem fyrst. Svo er þó oft alls ekki. Því er oft betur að fara varlega þegar menn koma að svona hlutum og oft er til fólk sem hefur áhuga á að eiga þessi hús hlúa að þeim og sýna þeim þá virðingu sem að þau eiga yfirleitt skilið.  Maður hefur séð svona hús hverfa hér í Eyjum, fleiri en eitt og fleiri tvö. Hús sem að manni finnst að hefði alveg mátt leggja vinnu í ða varðveita og kannski hefði verið hægt að finna fólk sem hefði áhuga á því að eiga húsin og varðveita ef af þeim hefði verið leitað. Mér finnst þetta þó aðeins vera að breytast - sem betur fer og ég vona að framhald verði á.

Auðvitað koma inn á milli hús sem ekki er hægt að bjarga eða viðhalda svo sómi sé af og þá er nú oft réttast að fjarlægja bara viðkomandi byggingu.   ...en það er allt í lagi að fara varlega þegar að því kemur að taka ákvörðun um að rífa hús. 


mbl.is Metfjöldi húsa friðaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...snilld

Þetta finnst mér alveg bráðfyndið. Vona að margir deilisjúkir vinir mínir hafi fallið í þessa gryfju. Nú koðnar þetta deili vesen í kannski 5-10 daga svo fer holskeflan af stað aftur sem adrei fyrr.
mbl.is Auðtrúa að eyðileggja Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....Just do it

....svo einfalt er það. Allir höfðu þeir eitthvað rangt við, en slagorðið rak þá áfram!!!!
mbl.is Óheppileg auglýsing fyrir Nike
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...og menn eru ekki að grínast!!!

Já já en eitt dollulausa árið á Emirates í höfn!!!! - nei afsakið menn eiga séns á að vinna meistaradeildina.

Lið eins og Arsenal á ekki að geta tapað á heimavelli fyrir liði eins og Blackburn. Ég er hræddur um að leikmenn þurfi að fara í smá naflaskoðun, þegar mannskapurinn getur ekki gírað sig upp í að vinna lið eins og Blackburn þegar svona mikið er í húfi þá er eitthvað að. Ekki gleyma að þeir féllu út fyrir Bradford í deildarbikarnum. 

Ég er nú reyndar samt þeirrar skoðunnar að þeir nái meistaradeildarsæti - þrátt fyrir þessar hörmungar sem ég nefni hér að framan.


mbl.is Blackburn skellti Arsenal í bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...magnað alveg hreint

Get ekki að því gert að mér finnst það helvíti magnað að búið er að leiðrétta gengistryggðu láning en ekki hjá okkur með verðtryggðu lánin. Ef allt hefði verið eðlilegt hefði þetta átt að vera öfugt. ....en hið eðlielga gerist sjaldnast á Íslandi.

Svo þarf nú að fara að skipta út þessaðri blessuðu krónu ef hér á að vera lífvænlegt fyrir almúgann í landinu. Krónan er klárlega versti óvinur hins almenna launamanns, ja kannski fyrir utan handónýta pólitíkusa og embættismenn í sérhagsmunaleik.

 


mbl.is Hætta á að greiðsluviljinn hverfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lægra grænmetisverð framundan

Þetta hlýtur að vera hið besta mál. Leiðir væntanlega til þess að grænmetisverð mun lækka þegar bændurinir komast á flug. Það hljóta allir að fagna því, ekki satt. Ódýrari  hollusta er það sem alls staðar er kallað eftir.
mbl.is Garðyrkjubændur stofna rafveitu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

..skyldi einhver Mancini?

...vrð nú að segja það að með "betri" viðtölum í hverri viku frá ensku úrvalsdeildinni eru viðtölin við Mancini.  ...er samt ekkert í vafa um að karlinn er klár og klókur þjálfari
mbl.is Mancini: Þeir skilja ekki fótbolta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband