Færsluflokkur: Bloggar
10.10.2012 | 12:39
Allt á réttri leið
Bara hið besta mál - ekkert liggur á. Við kjósum svo bara um þetta þegar þar að kemur.
Ef að menn ætla að fara að taka tillit til væntinga og þarfa Íslands þá er það hið besta mál. Bíð bara etir að andstæðingarnir fari að segja að við höfum ekki gengið nógu langt hér og þar og finni þessu allt til foráttu - þeir láta alltaf eins og óþekkir krakkar í nammibúð heimta og heimta þó ekkert sé að frétta - sorglegt!
![]() |
Tekið tillit til væntinga og þarfa Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.10.2012 | 12:51
Æ hvað yrði nú......
![]() |
Logi Geirsson æfir með FH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.10.2012 | 08:39
Alveg rólegur
![]() |
„Hefði farið fengi ég að ráða“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.10.2012 | 08:31
Gargandi snilld!!!
Þetta er nú með því betra sem að ég hef lesið af næturbröltinu í Reykjavík í gegnum árin. Hló upphátt þegar ég las þetta. Ég velti því nú bara fyrir mér hver kærði blessaðann mann fyrir að verja yfirráðasvæði sitt. - Hann fær 10 stig þessi fyrir vasklaega en saklausa framkomu. -
Legg til að húsið verði hér eftir merkt með sveðju svo fólk viti hvað það er að kalla yfir sig ef það þarf að kasta af sér þvagi eða öðru.
![]() |
Stökk nakinn út með sveðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
6.10.2012 | 13:22
Áhugavert og freistandi
![]() |
Vilja Íslendinga í vinnu í Noregi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.10.2012 | 13:49
........heyrist nú
...fleiri segja nei takk við þessu heldur en já takk. Öll umræða sem ég hef heyrt upp á síðkasti er sú að flestir telja komin tíma fyrir karlinn að draga sig í hlé. Árni er ekki á þeiri skoðun og það er nú ekki í fyrsta, né væntanlega síðasta, skipti sem karlinner á annarri skoðun en lýðurinn.
En þetta mun allt koma í ljós.
![]() |
Árni Johnsen vill leiða listann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.10.2012 | 19:57
En á ný skal blásið til sóknar!!
![]() |
Bjarni Jóhannsson tekur við KA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.10.2012 | 13:03
Er einhver hissa þegar menn hafa það svona
....
Enginn áhugi á umbótum
Íslenzkir skattgreiðendur greiða um helmingi hærri styrki til landbúnaðarins en ríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) gera að meðaltali. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar, sem Fréttablaðið sagði frá í gær. Á Íslandi nemur stuðningur við landbúnaðinn um 17 milljörðum króna á ári, sem er annars vegar í formi styrkja á fjárlögum og hins vegar tollverndar. Stuðningurinn nemur um 47% af tekjum bænda, en OECD-meðaltalið er um 20%, svipað og í Evrópusambandinu.OECD bendir á að opinber stuðningur við landbúnað hafi minnkað undanfarin tvö ár, en það sé fremur vegna þróunar gengis og heimsmarkaðsverðs á búvörum en að íslenzk stjórnvöld hafi breytt landbúnaðarstefnunni.
Þetta er staðreynd, sem hlýtur að valda furðu þegar annars vegar er hafður í huga vandinn í ríkisfjármálum og hins vegar að styrkirnir, sem íslenzkir skattgreiðendur greiða til einkafyrirtækja í þessari einu grein, eru einhverjir þeir hæstu á byggðu bóli. Einhver hefði sagt að einmitt nú ætti að skera upp hið dýra landbúnaðarkerfi, en á því hefur ríkisstjórnin ekki haft áhuga, heldur endurnýjaði hún nýlega búvörusamninga lítið breytta.
Landbúnaðarstyrkir á Íslandi eru ekki aðeins þeir fimmtu hæstu í heimi, heldur eru þeir að stærstum hluta framleiðslutengdir og þar af leiðandi samkeppnishamlandi og markaðstruflandi. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í Fréttablaðinu í gær að haga þyrfti stuðningnum þannig að hvatar samkeppninnar væru nýttir til að styrkja greinina og auðvelda nýjum aðilum að vaxa og dafna á markaðnum. Á slíkum breytingum sem myndu auka skilvirkni í greininni hafa íslenzk stjórnvöld heldur ekki haft áhuga. OECD telur að hlutfall markaðstruflandi landbúnaðarstyrkja sé um 70% á Íslandi, samanborið við til dæmis 25% í ESB.
Stundum er látið eins og háir landbúnaðarstyrkir á Íslandi séu mál sem nánast þurfi ekki að ræða og að landbúnaðurinn leggist af ef hinu úrelta styrkjakerfi verði breytt. Það er auðvitað rangt. Umbætur á landbúnaðarstefnunni í ýmsum nágrannalöndum okkar sýna að það er hægt að lækka kostnað skattgreiðenda og ýta um leið undir skilvirkni, þróun og nýjungar í landbúnaði.
Við getum líka litið til reynslu fjarlægari landa. Um miðjan níunda áratug síðustu aldar var efnahagskreppa á Nýja-Sjálandi og ríkisfjármálin í kalda koli. Þáverandi ríkisstjórn skar stuðning við landbúnaðinn úr svipuðum upphæðum og þá tíðkuðust í Evrópulöndum, niður í nánast ekki neitt. Í dag er stuðningur nýsjálenzkra skattgreiðenda 1% af tekjum bænda og felst fyrst og fremst í rannsóknar- og þróunarstyrkjum. Landbúnaðurinn er blómleg undirstöðuatvinnugrein, sem halar inn meirihlutann af útflutningstekjum landsins. Samt voru þeir að sjálfsögðu til á sínum tíma, sem spáðu því að nýsjálenzkur landbúnaður legðist af við breytinguna, ekki sízt af því að hann væri svo fábreyttur.
Reynsla annarra sýnir að háir, markaðstruflandi landbúnaðarstyrkir eru ekki óumbreytanlegt náttúrulögmál. Áhugaleysi stjórnmálamanna á Íslandi á að taka til í þessum geira er illskiljanlegt.
![]() |
Varað við óvinsældum ESB-fánans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2012 | 08:17
....á þennan lista vantar klárlega
nafnið mitt: Gísli Hjartarson
![]() |
Vilja breyta framtíðarsýninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.10.2012 | 13:35
Allt ríkisstjórninni að kenna
![]() |
Stanslaus samdráttur frá 2007 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)