Færsluflokkur: Bloggar

Get bara ekki að því gert....

.....að ég hló með sjálfum mér þegar ég heyrði þessa frétt í útvarpinu. Hefði gjarna viljað sjá þegar þetta gerðist - það er bara þannig.

Fyrst engin urðu slys á fólki þá var eiginlega ekki hægt annað en að hlægja að þessu.


mbl.is Flaut eins og korktappi í lóninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpahyski!!!!!!

Þetta er nú alltaf meðþví sorglegra sem að maður heyrir varðandi íþróttir, þ.e.a.s. þegar leikmenn eða dómarar eru bendlaðir við svona veðmál. Manni finnst þetta einhvern veginn svo út úr kú. Verð samt að viðurkenna að maður er ekkert alltaf hissa þegar maður heyrir af því að einhverjir stjórnarmenn hafi misst sig og lagt allt undir á einn að annan hátt í einhverjum veðbanlanum. Alveg jafn ömurle3gt fyrir það og menn eiga að sjálfsögðu að vera dæmdir í ævilangt bann frá íþróttum fyrir vikið
mbl.is Karabatic-bræður handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

en kvótakerfið hefur ekki gert það?

Maður spyr sig aftur og aftur. Útgerðum hefur fækkað stöðugt í fjölda ára. Einingarnar verða stærri og stærri. Er eitthvað að því? Við erum bara 300 þúsund getum við ætlast til þess að hafa þúsundir arðbærra útgerða? Verðum við ekki stundum að kyngja smæðinni og takast á við lífið þannig? En er þá ekki líka í góðu lagi að fyrirtæki sem skila jafnvel milljörðum í hagnað eftir öll útgjöld, sem rekstrinum tilheyra, skili meira til samfélagsins? Þau eru jú að nýta auðlind sem þjóðin á, eigum við þá ekki að fá stærri sneið af kökunni? Jújú menn seilast ansi langt, í raun fáránlega en hvar eru útspilin á móti að hálfu útgerðarmanna? 

Hvernig stendur á því að kvotaverð er svona fáránlega hátt? Eiga Steinþór og félagar ekki sinn þátt í því, menn eiga kannski að líta sér nær þegar þeir tala um að sumir týni lífi útaf aðgerðum annarra. Steinþóri og félögum hefur nú leiðst að taka veð í einhverju sem útgerðarmaðurinn á ekki og syndir um í sjónum og á þann hátt sett snöru um háls þessara ágætu manna. Það er með Steinþór eins og flesta aðra hann hugsar fyrst og fremst um rassgatið á sjálfum sér en ekki heildarmyndina. Hann veit að hann fýkur ef ekki ganga þessi veð, sem hann tók, eftir.

 


mbl.is Veiðigjöldin munu fækka útgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...ánægður með þig Bjarni

burtu með höftin og tökumst á við þetta af hinni alkunnu íslensku snilld - við getum alveg tekist á við þetta, og það án þess að hiksta.  Þessi eilífu höft á einu og öllu eru náttúrulega bara eins og við séum stödd í einhverjum Al Capone hasar - höfum við virkilega ekki náð meiri þroska en það sem þjóð? U tell me!!!
mbl.is „Linkind og langir frestir“ ekki réttu ráðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...átti aldrei möguleika

Það verður nú bara að segjast eins og er að Steve Kean átti aldrei möguleika í þessu starfi sínu hjá Blackburn. Stuðningsmenn vildu hann frá fyrsta degi og nú hefur það gengið eftir. Einn af eigendunum lofaði því meira að segja við stuðningsmenn að ef að hann næði ekki árangri í fyrstu 4 leikjunum þá yrði Kean látinn fara. En hann byrjaði betur en það en það dugar ekki. Hausinn af og nýr maður í brúnni. ....vona nú að Blackburn komist ekki einu sinni í umspil um sæti í efstu deild í vor.
mbl.is Steve Kean hættur hjá Blackburn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kraftur í Skagamönnum

Það vantar ekki að það er ekki lognmolla í kringum Vilhjálm Birgisson. Lýst vvel á þetta hjá honum og félögum hans og það verður gaman að fylgjast með þessari baráttu. Kannski hoppa fleiri á vagninn með þeim á næstu vikum og vilja taka þátt í þessu með þeim. ...vel gert
mbl.is Ætlar í mál vegna verðtryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vúhú - glæsilegt

Veturinn byrjar vel hjá mínum. Glæsilegt stelpur. Þetta lyftir manni upp og kemur manni í gott helgarskap. Alltaf gaman þegar ný lið skrá sig inn í söguna, og ekki er verra þegar það eru þessar elskur úr Snæfellsliðinu. Þetta ætti að vera stelpunum vítamínsprauta inn í veturinn. Framundan er langur og strangur vetur og nú er bara halda áfram á þessari braut. Til hamingju stelpur - Áfram Snæfell.

e.s.  .......ætli þetta séu Ben Stiller áhrif Smile


mbl.is Snæfell vann Lengjubikarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt

Þetta er auðvitað ekkert sorglegt. Tími Jóhönnu er ekkert eilífur frekar en annarra í þessum pólitíska slag, já eða í hverju sem er.  Hvort hún hefði átt að hætta fyrr eða seinna ætla ég ekkert að dæma um. En kannski er núna tækifæri fyrir Steingrím J, Bjarna Ben og Sigmund Davíð að draga sig bara í hlé líka og gefa tækifæri á ferskum vindum sem víðast!!!!

Það á við um þau öll eins og okkur hin að engin er ómissandi og stundum er gott að efast um eigið ágæti.


mbl.is Jóhanna ætlar að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...er einhver hissa?

Er hægt að vera hissa á þessu? Þó svo að við séum að tala um bandarísku þjóðina á hinum endnanum - þjóð sem studnum kemur á óvart.  Yfirlýsingar Mitt Romney hafa verið sorglegar og það sem haft er eftir honum er með ólikindum svo það ætti enginn að láta sér bregða þó að Obama nái endurkjöri, en það má taka aukabyltu fyrir svefninn ef Romney klárar þetta!!!
mbl.is Obama eykur fylgi sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta lýst mér vel á

Skemmtilegur dráttur að þessu sinni í Capital one bikarnum. Margir leikir þarna sem gætu orðið skemmtilegir þó auðvitað sé nú Chelski gegn Glazier Utd sá stærsti. Nágrannasalgur fyrir norðan Sunderland - M'Brough. Swindon gegn Aston Villa. Leeds gegn Soton og Reading - Arsenal. Þetta verður bara flott. Svona spá ég

Sunderland v Middlesbrough 1

Swindon v Aston Villa 1

Wigan v Bradford 1

Leeds v Southampton 2

Norwich v Tottenham 1

Liverpool v Swansea 1

Chelsea v Manchester United 2

Reading v Arsenal 1


mbl.is Chelsea mætir United í deildabikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband