Færsluflokkur: Bloggar

Auðvitað verður veiðigjald

......spurning hins vegar um upphæðina. Ef að þessu liði sama hvoru megin við línuna það stendur þá þarf það að brjóta odd af heiðri sínum og setjast niður og ræða málin - einfallt er það.

Til hamingju með daginn sjómenn


mbl.is Viss um að veiðigjald fari í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Here we go....

...þá er það byrjað. Menn byrjaðir að undirbúa það að enskir muni kannski ekki ná neitt sérstökum árangri á EM. Skondið Englendingar reikna alltaf með góðum árangri, en ekki við hin sem horfum á þetta af hliðarlínunni. reyndar heyrist mér að væntingarnar séu með minnsta móti í Englandi þessa dagana - kannski bara en of langt í  mót?
mbl.is Hodgson: Of stuttur tími til að búa til lið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt klárt....

....eða ekki!

Kannski voru menn bara úti á túni hjá Swansea, ekkert í höfn og kannski ekki nálægt því. Það verður forvitnilegt að fylgjast með framvindu mála þarna.
mbl.is Rodgers vill taka Gylfa og Allen með til Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægður með fólk

Flott hjá þessum aðilum. Náttúruelga til að kóróna þetta að bankinn átti ekki einu sinni fyrir innistæðum fólks!!!!!!! ;)   .......vel gert!
mbl.is Slitu viðskiptum við Landsbankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt alveg hreint!

Er bara alveg orðlaus að mönnum skuli detta í hug að stilla þessu svona upp. Meira ruglið. Trúi því ekki að þessir fjölmiðill telja sig eiga heimtingu á að við hin tökum hann sem alvarlegan og hæfan miðil til að fjalla um eitt mál eða annað ef þetta er hugsunin.  Það verður kannski þannig fyrir kosningar til Alþingis næst að aðeins verði boðið til þátttöku fulltrúum tveggja flokka - ótrúlegt dómgreindarleysi ef þið spyrjð mig.
mbl.is Spyr um siðferðisþrek Ólafs og Þóru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjómannadagshelgin í Eyjum 2012 - líf og fjör

Sjómannadagurinn í Eyjum 2012 er tileinkaður minningu Sigmunds Jóhannssonar teiknara og velunnara sjómanna.

 

Föstudagur 1 júní

Kl 08:00. Opna sjóaramótið í golfi. Alli á Guðmundi VE sér um mótið. Veglegir vinningar. Skráning í síma 481-2363  golf@eyjar.is  skráning og fyrirspurnir til Harðar Orra.
-  
hog@isfelag.is

Kl 14:00  Knattspyrnumót áhafna á Þórsvellinum. Skráning í síma 869-8687

Kl. 16:00. Opnun ljósmyndasýningar Kristins Benediktssonar í Einarsstofu í Safnahúsi.

Kl. 17:00. Opnun ljósmyndasýningar Ómars Eðvaldssonar á Kaffi Varmó.

Kl 17:30 Hásteinsvöllur, minningarmót um Steingrím Jóhannesson. Gamlir jálkar og stirðir úr ÍBV og Fylki heiðra minningu kappans. Glens í hálfleik.

Kl 22:00 Addi Johnsen ásamt félögum í Akóges.

Kl 22:30 Stórtónleikar í Höllinni. Tyrkja Gudda stígur á stokk.

 

Laugardagur 2 júní.

Kl. 11:00 Fiskasafnið. Karl Gauti Hjaltason með fyrirlestur um stjörnufræði og hvenig sæfarendur til forna notuðu stjörnurnar til að vísa veginn. Lúðrasveitin leikur nokkur lög.

Kl. 13:00 Sjómannafjör á Básaskersbryggju.

Sr. Kristján Björnsson blessar daginn.

Kappróður, koddaslagur, sjóhlaup, kararóður, netabæting. Björgunarbátur á floti. Rólan verður á sínum stað.

Björgunarfélag Vestmannaeyja sýnir tæki og tól og klifurvegginn.

Hoppukastalar.

Ribsafari sýnir nýja bátinn og býður upp á ódýrar ferðir.

Leikfélagið verður á staðnum. Popp og flos hjá Fimleikafélaginu.

Kl. 15:00. Á bryggju Sagnheima í byggðasafni. Guggi Matt segir sjóarasögur og Arnfinnur Friðriksson þenur nikkuna.

Kl.16:00 Foreign Monkeys með tónleika á litla sviði þjóðhátíðarnefndar sem verður á Vigtartorginu. Kynna væntanlegan disk

Kl 17:00 tónleikar í safnaðarheimili Landakirkju. Jónas Þórir frá Jaðri kemur með 20 manna kór, Kammerkór Bústaðakirkju og sungin verða lög eftir- og í útsetningu Guðna frá Landlyst. Einnig verður í bænum Kammerkór unglinga úr Bústaðakirkju, undir stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur.

Hátíðarsamkoma í Höllinni.

Kl 19:30 Höllin opnar. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur við innganginn.

Kl 20:00 Hátíðarkvöldverður að hætti Einsa Kalda. Matseðill á bakhlið.

Jónas Þórir frá Jaðri leikur undir borðhaldi.

Óvænt uppákoma!!!

Kór Bústaðakirkju opnar dagskrána ásamt Jóhanni Friðgeir tenór og Grétu Hergilsdóttur sópran. Stjórnandi Jónas Þórir.

Arndís Ósk syngur nokkur lög eftir Adele. Undirleikur: Fannar Stefnisson

Hljómsveit Leikfélags Vestmannaeyja tekur á því.

Obbó sí hópurinn tekur lagið og grínast með liðið. Stjórnandi: Biggi á Vestmannaey.

Addi Johnsen tekur gamla Jón og Ellireyjarkvæði

Veislustjóri er Gísli Einarsson landabruggari.

Brimnes tekur við um miðnótt og spilar eitthvað fram eftir degi.

 

Sunnudagur 3 júní.

Kl. 10:00 fánar dregnir að húni.

Kl. 13:00 Sjómannamessa í Landakirkju. Sr. Kristján Björnsson predikar og þjónar fyrir altari. Ritningarlestur. Kór Bústaðakirkju syngur með kór  Landakirkju.

Eftir messu. Minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra.

Lúðrassveitin leikur.

Kristbjörg Sigurjónsdóttir leggur blómsveig frá Sjómannadagsráði og bæjarbúum við minnisvarðann.

Ræðumaður: Snorri Óskarsson.

KL. 14:15. Þyrla LHG mætir til Eyja og tekur björgunaræfingu með Björgunarfélaginu í höfninni.

Kl. 14:30 og 16:30. Sagnheimar á Byggðasafni. Valdar upptökur úr safni Árna símritara af Sjómannadagsskemmtun árið 1956.

Kl. 15:00. Hátíðardagskrá á Stakkagerðistúni.

Lúðrasveit Vestmannaeyja undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar.

Hátíðarræða

Snorri Óskarsson heiðrar sjómenn.

Verðlaunaafhending fyrir keppni helgarinnar.

Leikfélagið verður á staðnum og fimleikafélagið Rán.

Hoppukastalar og leiktæki. Popp og flos.

Tilkynningar.

Sæheimar. Opið alla helgina. Frítt inn.

Safnahúsið. Opið alla helgina. Frítt inn.

Kaffi Varmó.

Ljósmyndasýning Ómars Eðvaldssonar alla helgina.

Volcano café

Jógvan og Friðrik Þór alla helgina. Ósofnir..............

Björgunarfélag Vestmannaeyja verður með Sjómannadagsmerkin til sölu á Básaskersbryggju á laugardeginum og á Stakkó á sunnudeginum.

Sjómannadagsblaðið verður selt við Krónuna og Ríkið á föstudag. Einnig á Básaskersbryggju á laugardaginn í Björgunarfélagshúsinu og á Sjómannadaginn á Stakkó.

Eftir helgi verður blaðið selt í Skýlinu og í Kletti.

Sjómannadagsráð sími  869-8687

Borðapantanir í Höllina 698-2572



Ensku liðin!!!!!

Væri nú gaman að gefa sér smá tima í að taka saman hversu mörk liðin eru í Englandi nú orðið sem eru í eigu útlendinga. Væri líka örugglega ekki sóun á tíma að taka saman hvaðan allir stjórarnir í 4 efstu deildunum koma - spurning um að fórna Sjómannadagshelginni í svona verkefni!!!!

En þessi rússi er nú búinn að vera með andlitið í Reading í góðan tíma og því kannski kominn tími á að þetta klárist.


mbl.is Reading komið í rússneska eigu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju vinkona

Glæsilegt hjá Potsdam, en samt ekkert smá lið sem þarna er á ferðinni. Þá er bara að sjá hvert framhaldið verður.

Hjartanlega til hamingju MLV


mbl.is Margrét Lára þýskur meistari með Potsdam
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara svona á meðan menn bíða....

....þá er rétt að setja þetta inn með þessum frábæra leikmanni ......og hann er ekki á leiðinni til Brighton!!!


mbl.is Hazard búinn að ákveða sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3 milljónir punda!

Er það ekki nálægt verðinu sem að Whelan vill að Liverpool borgi Wigan ef að þeir ná að plata hann í burtu frá þeim. Minnir að ég hafi heyrt haft eftir honum að það myndi kosta einhversstaðar íkringum þá tölu ef að þeir vildu fá hann. verður gaman að sjá hvað gerist. Ég sem hélt að Liverpool ætlaði að eltast við einhvern hákarl til að taka við liðinu. Hef reyndar mikla trú á Martinez sem stjóra og er þess fullviss að ef að hann fær vinnufrið, ef hann fer til Liverpool þá mun hann ná góðum árangri.
mbl.is Whelan gefur Liverpool frest til fimmtudags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »