Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Þó fyrr hefði verið

Þetta helv. fyrirkomulag er búið a vera til vansa í mörg ár. Í gegnum tíðina þegar við Eyjamenn t.d. nefndum þessar breytingar þá hristu menn bara höfuðið og fremst fór þáverandi stjórna sambandsins. Gleymi því aldrei að KA menn til dæmis voru alltaf á móti okkur í þessu og studdu KSÍ, og þeirra maður fór fljótt þar inn. Þeir lenntu ef að ég man rétt svo í því 2 ár í röð að komast í undanúrslit og þurftu að spila fyrir tómum Laugardalsvellinum en það breytti í engu afstöðu þeirra - fannst þetta alltaf svolítið spes. En þetta er nú bara eitt dæmið.

Annað bikardæmið var hvernig menn sáu til þess að stóru liðin fengu auðveldari bikar en aðrir. Það er að segja komu alltaf inn á seinni stigum og gátu jafnvel ekki dregist saman og þar fram eftir götunum - þetta þótti mér líka spes. Þessu er búið að breyta, sem betur fer.

Vona að þessi tillaga fljúgi í gegn. Frá mínum bæjardyrum séð verður hún boltanum í landinu til tekna frekar en hitt.


mbl.is Níu félög vilja breytingar á bikarúrslitaleiknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið Áfall

Þetta er mikið áfall fyrr Keflvíkinga. Símun búinn að vera einn allra besti leikmaður liðsins á undangengnum árum, frábær leikmaður. Skarð hans í Keflavíkurliðinu verður ekki auðfyllt.Einn af betri útlendingunum hér á landi síðustu ár.

Ætli hann sé að snúa á heimaslóðir til að spila fyrir Kristján Guðmundsson fyrrum þjálfara Keflvíkinga?


mbl.is Símun hættur hjá Keflvíkingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hans mun ég sakna

Þetta er einn af þeim leikmönnum sem að ég hef haft hvað mest gaman af síðustu ár. Góður leikmaður sem að mér finnst að mörgu leyti hafa verið vanmetinn. Hef haft mikla trú á honum en ekki alltaf náð eyrum viðmælenda minna. Hlakka til að sjá hann takast á við þetta verkefni í Svíþjóð. Ef hann heldur rétt á spilunum er þetta bara eitt skref í átt að því sem gæti orðið farsæll ferill á erlendri grundu.  Vona að þetta gangi vel hjá pilti ef rétt er. Þetta hefur ekki verið staðfest af Fram er það?
mbl.is Heiðar Geir til liðs við Ängelholm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frændinn flottur

Það voru góð kaup hjá Þorvaldi á sínum tíma ða krækja í frænda sinn Almarr son Ormars,sem var nú ágætur í tuðrusparkinu líka.  Var bennt á Almarr fyrir nokkrum árum og við spáðum í að reyna við að fá hann til ÍBV en gerðum ekkert í því þegar okkur var tjáð að ekkii væri líklegt að piltur hefði áhuga á að flytja hinað suður í höf, allavega ekki að svo stöddu. Svo hættir maður í ráðinu en ég reyni að fylgjast með þeim nöfnum sem að manni var bennt á hér og þar. Gaman að sjá ða sumir þeirra pilta hafa spjarað sig en eins og alltaf hafa aðrir haft hægara um sig. Almarr er einn af þeim sem hafa bætt sig verulega. Það hefur verið gaman að fylgjast með því og það verður gaman að sjá framgang hans í Fram næstu árin.
mbl.is Almarr framlengdi við Framara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er aldeilis..

...já menn eru ekkert að gefast upp á Hlíðarenda, verður gaman að sjá hvernig Gulli Jóns púslar liðinu þarna saman fyrir næsta sumar, leiðin liggur aðeins upp á við hjá þeim, hef ég trú á, allt annað yrðu mikil vonbrigði.
mbl.is Garðar og Jóhannes í Val?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það væri gleðiefni

Mikið myndi é ggleðjast yfir því ef boltinn dytti inn á RÚV. Finnst reyndar kominn tími á að RÚV bæti við sig RÚV 2 sem notuð er undir svona hitt og þetta eins og t.d. beinar útsendingar frá sérstökum viðburðum eins og HM í einhverjum greinum, ólympíuleikum, setningu Listahátíðar í Reykjavík, Eldhúsdagsumræðum og slíkum viðburðum. Verður forvitnilegt að sjá hvort af þessu verður, yrði þá líka forvitnilegt að sjá hvort sama hagsmunagæslan ætti sér stað við val á leikjum til að senda út beint og hefur klárlega verið á Stöð2 sport þar sem að ákveðnum liðum hefur klárlega verið gert hærra undir höfði en öðrum. 
mbl.is Íslenski fótboltinn á RÚV?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fram, Valur....FH

Skemmtileg sería sem við Eyjamenn fáum í upphafi móts. Get ekki sagt annað en að ég vona að mótið verði skemmtilegra fyrir okkur næsta sumar en það var í sumar. Hef þá trú að við Eyjamenn verðum öruggari með okkar sæti næsta sumar en í ár. Fannst reyndar deildin síðasta sumar með lélegra móti og vona að það verði breyting þar á næsta sumar. Virðist vera smá gerjun í gangi sem vonandi tekur fljótt af.


mbl.is Íslandsmeistarar FH hefja titilvörnina gegn Val
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baldur á leið til Eyja!

Sá orðrómur hefur verið í gangi hér í Eyjum að Baldur gæti verið á leið til Eyja. Ég hafði nú ekki trú á þessu útaf vinnu Baldurs en menn virðast vera komnir með flöt á því, að því er mér er sagt, og því verður forvitnilegt að sjá hver næstu skref í þessu máli verða. Baldur er náttúrulega landsbyggðar piltur að upplagi og því þarf þetta ekki að vera eins galið og margir myndu halda - Við sjáum hvað setur.
mbl.is ,,Ég er ekki að hætta í fótbolta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin kreppa?

Moen karlinn bara brattur en það er nokkuð gott að vita til þess að það sé ekki kreppa í boltanum á Íslandi, hann er nú sennilegast bara að tala um liðið sem að hann spilaði með í þessu tilfelli, veit ekki til þess að önnur lið hafi falast eftir honum. Hann væntanlega er að bera þarna saman laun miðað við lengt tímabils, því þau launin séu oft ótrúlega há hér þá eru þau nú ekkert á við það sem gerist hjá þeim bestu i Noregi en kannski erum við að borga alltof há laun miðað við gæði leikmanna sem hér spila. - það finnst mér líklegra miðað við margt sem að maður heyrir.
mbl.is Nóg af peningum í fótboltanum á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Liðsstyrkur?

Jæja þá er frændi genginn til liðs félaga Bjarna Jóh.. Hitti þar fyrir félaga sinn Tryggva Bjarna KR-ing sem lék með ÍBV á sínum tíma, er ekki frá því að það hafi haft svolítið með ákvörðun Atla að gera. Það er fengur fyrir Stjörnumenn að fá Atla til liðs við sig, á góðum degi eru fáir vinstri fótarmenn á Íslandi eins öflugir og Atli. Stjarnan er náttúrulega núna að fara verjast hinu alræmda öðru ari í deildinni, ásamt mínum mönnum í ÍBV, en það hefur oft reyndt liðum þrautin þyngri að verja sig seinna árið eftir oft ágætt fyrsta ár í efstu deild, og þetta á ekki aðeins við um í Íslensku deildinni.

Nú verður gaman að sjá hvort Garðbæingar landi Marel eins og mikið hefur verið rætt um síðustu misseri, og eflaust eru þeir á eftir einum til tveimur í viðbót, því það er næsta víst að Bjarni Jóh. ætlast til þess að þegar tímabilið 2011 hefst þá verði Stjarnan en í efstu deild. - VIð sjáum hvað setur  en að sjálfsögðu óska ég Atla alls hins besta en bið hann að hafa sig hægan gegn ÍBV


mbl.is Atli Jóhannsson í Stjörnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.