...sjúkur heimur

Hversu sjúkt er þetta orðið allt saman? Er einhver þarna úti sem getur skýrt þetta út fyrir mér? Hélt að þarna væri allt morandi í trúuðu fólki sem vissi að svona hörmungar leystu engan vanda en svo virðist ekki vera. EInhvern veginn tekst fólki alltaf að réttlæta fyrir sjálfum sér einhvern viðbjóð gegn náunganum ef því svo þóknast. Allt common sense fer út um gluggann og eftir stendur berskjaldað hatur í garð næsta manns og réttlætingin felst í því að sjá flísina í auga náungans en ekki bjálkan í eigin auga. - sorglegur á alla kanta þessi viðbjóður. 

...að mæta svo til að sitja í stúku til að sjá viðbjóðinn er nú með því fáránlegra sem ég hef heyrt lengi. 


mbl.is Fylgjast með árásunum af Sderot-hæð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, það er allt morandi af trúuðu fólki í Ísrael. Þetta strangtrúaða fólk stendur og fagnar í hvert skipti sem flugskeyti lenda í Gaza og drepa fleiri saklausar konur og börn. Og sendir svo Barack Obama hlýjar kveðjur með einlægu þakklæti. Ef hann hefði tíma aflögu myndi hann eflaust standa þarna líka og taka þátt í fagnaðarlátunum. En ætli það sé ekki erfitt fyrir Obama að vera múslími og á sama tíma styðja ódæðisverk ísrelskra yfirvalda? Nei, nú man ég, hann er lögfræðimenntaður! Hvernig læt ég?

Það eru til fleiri strangtrúaðir gyðingar en þeir sem ganga um í síðum frökkum og með barðastóra hatta. Þetta klapplið á Sderot-hæð eru nokkrir af þeim sem halda að guð þeirra (Jahwe) hafi gefið þeim öll Mið-Austurlönd allt austur að Efrat, sem er við landamæri Íraks og Írans. Og álíta, að Palestínumenn, Sýrlendingar, Jórdanir og Írakar séu þarna í algeru leyfisleysi.

Pétur D. (IP-tala skráð) 21.7.2014 kl. 10:07

2 identicon

Já þetta er sjúkt. Sjúkleikinn í islam er ægilegur. Á Gaza er allt fullt af trúuðum múslimum sem trúa því að jihad sé leiðin í Paradís og þrá það heitast að drepa gyðinga og kristna og aðra ekki-múslima. Í islam er ekkert common sense, bara berskjaldað hatur sem kemur stöðugt fram í hryðjuverkum múslima en það er bara svo erfitt fyrir suma að trúa því. Vonum að ísraelsmönnum takist að útrýma þessum fáránlega viðbjóði úr landi sínu með sem minnstum skaða fyrir almenning á Gaza og annars staðar. Eitt er víst, ísraelsmenn standa í fremstu víglínu okkar gegn islam. Og þeir eru að sigra og fagna. Við ættum að fagna með þeim. Hugur minn er samt líka hjá því fólki á Gaza sem er ofurselt ofstæki islams. Biðjum fyrir þeim.

Brynjar (IP-tala skráð) 21.7.2014 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.