Gleði eða geðheilsa ???

 - Fékk þetta sent -

Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira
spennandi og innihaldsríkari, er mælst til að þú gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði reglulega...


1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með
hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.

2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta
rödd þinni.

3. Stattu föst á því að netfangið þitt sé:
Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca
eða
Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca

4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu,má
bjóða þér franskar með þessu?"

5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir,,Inbox"

6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót

7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru
búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.

8. Á allar kvittanir skrifar þú;
Fyrir kynlífsþjónustu.

9. Ljúktu öllum setningum þínum með;
Samkvæmt spádómum.

10. Ekki nota punkta.

11. Hoppaðu í stað þess að ganga.

12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur
svarað.

13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé,,taka með".

14. Syngdu með í óperunni.

15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.

16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga.

17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú
sért ekki alveg upplögð.

18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu,Rock Hard.

19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú ,,Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"

Og að lokum, síðasta ráðið til að halda uppi mátulegri geðveiki í
hversdagsleikanum:

20. Sendu þetta bréf áfram til allra í netfangaskrá þinni, líka þeim sem hafa sent þér þetta og einkum þó þeim sem hafa sérstaklega frábeðið sér ÖLL svona bréf.

'·.¸¸.·´¯'·.¸¸·´¯'·.¸¸.·´¯'·.¸
><((((º>
.¸¸·´¯&#39;·.¸¸.·´¯&#39;·.¸ ><((((º>
Syntu í friði...

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aldís Gunnarsdóttir

hahahhahehehahahhehehe 

"12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur
svarað
"

Það er svakalega sægólegt

Aldís Gunnarsdóttir, 5.12.2008 kl. 10:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband