Jæja gott fólk....

....þá bíð ég eftir að fram á sjónarsviðið komi nýtt fólk í þessu kjördæmi sem hefur áhuga á að starfa með hagsmuni þjóðarinnar, ekki flokksins, að leiðarljósi - hef enga trú á öðru en að þarna sé efnilegt fólk í startholunum. Sumum af þeim sem reyndari eru þarf að víkja úr vegi - klárlega - og það er þörf á nýju blóði íþessum flokki eins og öðrum.  Hvað gerir Þórlindur Kjartansson félagi minn t.d.?...svo að ég nefni einhvern.

Hlakka til að sjá hvað menn ætla að gera í mínum kjördæmi, þar þarf að mínu mati klárlega að skipta um 3 efstu og bíð ég bara nokkuð spenntur eftir því að sjá hvað gerist. - Get samt ekki annað en brosað út í annað yfir áhuga Eyþórs Arnalds á framboði, því í mínum huga er þessi ágæti tónlistarmaður ekki með margar sterkar brýr að baki sér - en það er væntanlega með það eins og svo margt annað að sitt sýnist hverjum, og öllum þykir sin fugl fegurstur og þar fram eftir götunum.....


mbl.is Prófkjör um miðjan mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég ætla að reyna að öllum mætti að hvetja móður mína til þess að bjóða sig fram, verst að hún geti ekki boðið sig fram á Suðurlandinu, þá myndi ég biðja þig um að koma henni á framfæri!

Nonninn (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband