Tæpt var það

Mínir menn ekki að gera góðan dag í gær með því að vera að kalla yfir sig einn leik í viðbót í bikarnum. Ekki það að ég hjafi nokkra trú á því að Brighton fari langt í bikarnum í ár og betra væri að leggja sig fram við að verja þá stöðu semmenn eru komnir með í deildinni. Þá er það nú samt einu sinni svo að það geta dottið inn leikir í bikarnum sem gefa vel í aðra hönd og það eitt í sjálfu sér er næg ástæða fyrir því að vilja komast áfram þegar veskið er ekki bólgið af seðlum. Tökum þetta vonandi í næsta leik. Ætla einmitt að skella mér til Brighton á fimmtudaginn næsta og styrkja félagið með smá innkaupum í klúbbbúðinni.
mbl.is Bikardraumur FC United lifir enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir mig

Ég vil nú byrja þennan sunnudagsmorgun á að þakka þeim er studdu mig með því að setja númerið mitt á kjörseðilinn sinn í kosningunum í gær. Hverju það skilar á eftir að koma í ljós.

Hafið heila þökk öll sömul. Mér finnst í ótrúlegt að fólk skuli hafa lagt það á sig að skella sér á kjörstað og styðja við bakið á mér, fyrir það verð ég ævinlega þakklátur

Ætla nú ekkert að fæða þátttöku pælingar mínar hérna alveg strax þó vissulega hafi ég vonast eftir því að allavega 50% kjósenda mættu á kjörstað.  Stjórnlagaþing er staðreynd engu að síður, hvort sem það verður með eða án mín. Ég sagði það í aðdraganda kosninganna að það væri mér að meinalausu ef menn blésu þetta af og biðu með kosningarnar yfir á næsta ár t.d. og frestuðu því stjórnalgaþinginu, er í raun en sama sinnis.

Hlakka líka til að sjá hversu margir mættu á kjörstað og skiluðu t.d. auðu - það eru í raun augljósustu mótmælin hjá fólki. Það að sitja heima má nefnilega alveg túlka á þann háttað fólki sé í raun og veru bara alveg sama. En þetta túlkar væntanlega hver og einn eins og hann vill.

En allavega takk fyrir mig ....við sjáum svo hver niðurstaðan verður og hver gheildarfjöldi þeirra sem greiddu atkvæði verður.


Þá er að skunda......

...á kjörstað. Vona að þessi dagur, sem og aðrir dagar verði fólki ánægjulegur.

Langar líka að þakka þeim fyrirfram sem á kjördegi munu setja númerið mitt einhversstaðar á kjörseðilinn. Eins þakka ég þeim er nú þegar hafa sett nafn mitt á seðilinn og skilað í umslagi síðustu daga.


mbl.is Kosning hófst almennt kl. 9
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldu sigur gegn Clippers

Það gekk eftir að krækja í sigur þarna gegn Clippers enda klárlega skyldu sigur ef menn vilja vera nálægt því að vera málsmetandi lið í deildinni. 98-81 yfir fyrir síðasta leikhluta. Og enduðu svoo leikinn í tómu tjóni, alveg sama þó menn hafi verið að hleypa inn á og slappa af, menn haga sér ekki svona Smile

Jason Richardson með 29 stig og Hakem Warrick með 25, hann er að koma vel út þessa dagana pilturinn sá. Nash að vanda sprækur og með tvöfalda tvennu og Channing Frye i senternum og með 4 3ja stiga körfur - seigur fyrir utan línuna drengurinn. 16 leikir komnir og hlutfallið 8 - 8. Erfiður leikur í Denver á sunnudagin.

 


mbl.is Dallas stöðvaði sigurgöngu Spurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru menn sofandi?

...eða héldu að þeir kæmust bara upp með þetta. Maður spyr sig.
mbl.is Bentu þingmönnum á veiluna í lögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skref í rétta átt?

Verður maður ekki að telja að þetta sé skref í rétta átt að fá þetta skip. Það er fínt gengi í höfnina núna og fyrirtaksveður þannig að kannski að menn geti haldið áfram að dæla eitthvað næstu daga og því verður kannski ekkert stopp á stuttum siglingum á næstu dögum. Eigum við ekki að vona það. Það skyldi þó aldrei vera svo að maður komist í höfnina á mánudagskvöld/þriðjudagsmorgun. Ekki væri það leiðinlegt.
mbl.is Nýtt dýpkunarskip til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilegt?

Það er náttúrulega bara þannig þegar málsaðilar vilja ekki nálgast hvorn annan í samningaviðræðum þá fer eins og það fór að þessu sinni. Ég er bara ekki vitund hissa á því. Taldi í fyrstu að báðir aðilar hefðu teygt sig svolítið frá því sem þeir myndu sætta sig við eftir smá karp en svo virðist ekki vera.

Svo eru þessi ummæli nokkuð sérstök hjá þessum skota. Voru það ekki skosk skip sem voru að landa framhjá kvóta u m daginn?  Væri þá ekki rétt að refsa þeim grimmilega fyrst þeir tala um skynsemi skuli viðhöfð veiðarnar?


mbl.is Lýsa vonbrigðum með viðbrögð Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þjóðin galin?

Hef velt þessu fyrir mér síðustu daga þegar kosningabaráttan hefur harðnað ef að svo má að orði komast. Veit ekki hvort þetta er eitthvert sér íslenskt fyrirbrigði en allt í einu hefur hópur frambjóðenda farið að flokka frambjóðendur sem hitt og þetta með og móti , við hliðina á og fyrir aftan og ég veit ekki hvað.

Velti því fyrir mér hvort ekki er réttara að eyða meiri tíma í að koma á framfæri eigin ágæti heldur en að eyða tímanum í að skipa fólki á bása og setja út á það. Byrja svo að segja fólki hvaða bása það á að kjósa.

Mér finnst það dapurt ef að frambjóðendur treysta því ekki að kjósendur séu sjálfir dómbærir á það hvaða frambjóðendur séu líklegastir til að tala þeirra máli á sem flestum sviðum.

Hérna eru fimmhundruð tuttugu og eitthvað einstaklingar að bjóða sig til þess að vinna að einhverju merkasta plaggi hverrar þjóðar. – Stjórnarskránni. Ég trúi því ekki að fólk sækist í slíkan starfa með slæmum ásetningi. .....kæmi mér verulega á óvart. Allir þeir frambjóðendur sem ég þekki personulega eða hef heyrt af eru vel frambærilegt fólk og flest þeirra eru kannski sterkari á einu sviði frekar en öðru. Sem er bara hið besta mál. Ekkert okkar er fullkomið.

Nái ég kjöri mun ég mæta til leiks af opnum hug og vinna af heilindum, þjóðinni vonandi til heilla,. Ég einset mér um leið að standa undir því trausti sem mér væri sýnt með að taka þarna sæti. Það er í mínum huga lykilatriði að sem breiðastur hópur komi að endurskoðun stjórnarskrárinnar því þannig að endurspeglast þjóðarviljinn sennilegast best.

Ég bauð mig fram fram til stjórnlaga þings í þeirri von um að fá að taka þátt í því sem að ég held að hljóti að vera ásetnignurinn með þessu þingi og það er að móta stjórnarskrá sem staldri ekki bara við í nútímanum heldur fylgi þjóðinni inn í framtíðina.

Þó mikilvægt sé að skýra stjórnarskránna þá vil ég líka benda á að það gerist fátt nema að við breytum hugarfari okkar. Við, þjóðin öll, þurfum að temja okkur meiri sjáflsgagnrýni, aga og virðingu fyrir reglum og umfram allt fyrir hvort öðru. Við erum öll á sama báti og ef allir leggjast á árarnar verður útkoman góð fyrir Ísland. – Er það ekki draumastaðan?.

Eigið góða kosningahelgi öll sem eitt

Gilli Hjartar - 3612


Vinnuna í dóm hjá þjóðinni

Sá möguleiki er fyrir hendi hjá komandi stjórnlagaþingi að senda niðurstöðu þingsins, sem væntanlega verður fullmótuð ný stjórnarskrá, til afgreiðslu hjá þjóðinni. Þetta finnst mér mikilvægt, Mér finnst að stjórnlagaþing eigi hiklaust að leita til þjóðarinnar með þá stjórnarskrá er þar verður samin. Ég tel að það sé mikilvægt að þingið fái klapp á bakið frá þjóðinni um þá vinnu er þar hefur verið unnin. Samþykki þjóðarinnar ættu að vera sterk skilaboð til Alþingis um að þarna telji þjóðin að komið sé plagg sem hún vill nota. Alþingi ætti því ekki að missa sig í því að bylta innihaldi skjalsins.

Við skulum ekki gleyma að á undan stjórnlagaþinginu hefur starfað 1000 manna þjóðfundur, núna í byrjun nóvember, og hann mun leggja ákveðin skilaboð í á borð stjórnlagaþings. Þar verða komnar ákveðnar grunnhugmyndir fyrir stjórnlagaþing að vinna í og fara yfir.

Hvort sem ég næ kjöri eða ekki þá finnst mér lykilatriði að þjóðin fái að segja hug sinn um starf það er liggur fyrir að afloknum þjóðfundi og stjórnlagaþingi, og það áður en plaggið fer fyrir Alþingi.


Aðskilnaður ríkis og kirkju

Fyrir nokkrum dögum þegar póstur með spurnignum barst mér frá Biskupsstofu vissi ég eiginlega ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Ég horfði á póstinn og velti vöngum en sá svo að við slíkt var ekki hægt að búa. Bréfinu skyldi ég svara. Svaraði því um hæl  en hef ákveðið að biðja félagana á svipan.is að birta svar mitt svo það sé kannski fleirum aðgengilegt, það fara ekki allir a´vef kirkjunnar eða á vefinn minn

Biskupsstofa byrjaði bréfið á þessari tilvitnun í stjórnarskrá vora, 62. gr., sem hljóðar svo:

„Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda. Breyta má þessu með lögum.”

1. Telur þú þörf á að breyta þessari grein? Ef svo er hvernig?
 Sjá svar við spurningu 2
2. Hver er afstaða þín til núverandi sambands ríkis og þjóðkirkju?
 
Mér er það bæði ljúft og skyllt að svara þessum spurningum og hér fylgja svör mín:
 
Því miður hefur kirkjan misstigið sig, ekki kannski kirkjan sjálf en ákveðnir lykilmenn sem starfa innan hennar. Þurfum ekkert að fara út í þá sálma hér. Það er náttúrulega bara eðlilegt að hinn almenna borgara setji hljóðan og jafnvel „bölvi“ kirkjunni eftir allar þær sögur sem í ljós hafa komið.. Kirkjan missti mikið traust hjá mörgum , allt hjá sumum, og mörgum finnst því eiga að aðskilja hana frá ríkinu fyrir fullt og allt. Það er brekka fram undan fyrir kirkjunnar menn segja margir, en aðrir eru þessu ósammála og vilja meina að vatnið hafi bara gárast um stundarsakir. Þið vitnið í 62. gr. stjórnarskrárinnar og hvort það eigi að breyta þeiri grein. Ég vil gera þetta svona og vitna í 79 grein. Stjórnarskrárinnar en þar stendur í seinni hluta greinarinnar:

  Nú samþykkir Alþingi breytingu á kirkjuskipun ríkisins samkvæmt 62. gr., og skal þá leggja það mál undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu, til samþykktar eða synjunar, og skal atkvæðagreiðslan vera leynileg.

Mín hugmynd er nefnilega sú að Alþingi leggi það bara í hendur þjóðarinnar hvað hún vill gera varðandi þetta mál. Þjóðin tekur bara hreina og klára afstöðu hvort hún vill fullan aðskilnað ríkis og kirkju eða ekki, og þá væntanlega í leiðinni dóm á það hvort að hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi . Held að ég sé ekki ósanngjarn með því að leggja þetta til.  Bæði þeir sem vilja aðkilnað ríkis og kirkju og þeir sem vilja það ekki hljóta að hafa trú á lýðræðinu. Því er það mín skoðun að valið sé þjóðarinnar!
Þetta legg ég til, maður sem geng með kross um hálsinn þó ekki sé ég kirkjurækinn maður.

 

 


Var í eftirspurn er kominn í framboð

Gísli Hjartarson  #3612

 

Giftur Ingibjörgu Heiðdal Friðriksdóttur

Börn: Vigdís Hind og fóstursonurinn Víðir Heiðdal Nenonen

 

Ég er fæddur 1. maí 1967 í Vestmannaeyjum þar sem ég hef alið manninn að mestu síðan. Vann reyndar við þjónustu í höfnunum í Grimsby, Bremerhaven og Cuxhaven 1986-1987 og hafði mjög gaman af. Hér heima hef ég unnið ýmis störf. Var lengi í frystihúsunum hér byrjaði 1980 í Hraðfrystistöðinni, svo í Fiskiðjunni og svo síðast hjá VSV. Hætti síðan þar og tók við starfi framkvæmdastjóra í litlu prentfyrirtæki, prentsmiðjunni Eyrúnu, þar sem ég hef verið í forsvari í um það bil 15 ár. Er á öðru ári sem formaður foreldrafélags Grunnskóla Vestmannaeyja en hef verið í stjórn í 5 ár. Auk þessa hef ég starfað nokkuð fyrir ÍBV. Var t.d. í stjórn knattspyrnudeildar í 5 ár og þrátt fyrir að hafa hætt fyrir 4 árum þá reynir maður að hjálpa til ef eftir því er leitað. Gef út Sjónvarpsvísi hér í Eyjum og hef ritstýrt Þjóðátíðarblaði Vm í 3 af síðustu 4 skiptum.

 

Hef lengi verið samfélagslega þenkjandi og hef verið nokkuð virkur þátttakandi í umræðunni síðustu ár í gegnum bloggið mitt, fosterinn.blog.is, þaðan sem einhverjir gætu kannast við mig.  Ég hef verið ófeiminn við að láta skoðanir mínar í ljós. Það getur verið erfitt í svona litlu samfélagi, eins og þú þekkir eflaust, en ég hef reynt að temja mér að gera það á málefnalegan hátt en ekki með því að ráðast á persónur, í tuðrusparkinu myndi það heita að fara í boltann en ekki manninn, að vilja alltaf sparka í manninn er samfélagslegt mein. Ég tel mig líka hafa þann kost að efast stundum um eigið ágæti og er því til að hlusta eftir því sem aðrir hafa fram að færa og hlusta eftir þeirra pælingum.

 

Ég býð mig fram til stjórnlaga þings í þeirri von um að fá að taka þátt í því sem að ég held að hljóti að vera markmiðið og það er að móta stjórnarskrá sem staldri ekki bara við í nútímanum heldur fylgi þjóðinni inn í framtíðina. Það er í mínum huga lykilatriði að sem breiðastur hópur komi að endurskoðun stjórnarskrárinnar því þannig að endurspeglast þjóðarviljinn.

 

Ég býð fram krafta mína til að taka þátt í þessu verkefni sé áhugi fyrir því. Ég tel að það sé kominn tími á endurskoðun á stjórnarskránni, en ekki það að það þurfi að kollsteypa öllu sem í henni stendur. Mínar hugmyndir varðandi stjórnarskrá snúa t.d. að því að...

 

...almenn mannréttindi verði í fyrirrúmi.

...þríksipting valdsins, hlutverk og ábyrgð æðstu stjórnenda ríkisins séu hrein og klár

...náttúru auðlindir landsmanna verði í eigu þjóðarinnar.

...heimildir Íslands til þátttöku í alþjóðlegu samstarfi séu skilgreindar.

...boðið verði upp á personukjör.

...beinna lýðræði verði komið á, t.d. með kosningum um ákveðin mál.

 

 

Þó mikilvægt sé að skýra stjórnarskránna gerist fátt nema að við breytum hugarfari okkar. Við þurfum að temja okkur meiri sjáflsgagnrýni, aga og virðingu fyrir reglum og umfram allt fyrir hvort öðru. Við erum öll á sama báti og ef allir leggjast á árarnar verður útkoman góð fyrir Ísland.

Nái ég kjöri mun ég mæta til leiks af opnum hug og vinna af heilindum og einset mér um leið að standa undir því trausti sem mér væri sýnt.

 

Það yrði mér mikill heiður ef þú settir mig í eitt af efstu sætunum hjá þér.

 

Bestu kveðjur

Gilli Hjartar - 3612

 

Nánari upplýsingar á bloggi og Facebook

http://fosterinn.blog.is

http://www.facebook.com/home.php?#!/pages/Gisla-Hjartarson-a-stjornlagabing/167086923302392


Ekki klikka á að kjósa!

Það er að lifna yfir þessum kosningum sem sumir voru búnir að tala niður og jafnvel afskrifa!!! Láttu ekki þitt eftir liggja og láttu sjá þig á kjörstað á laugardaginn.

Það er mikið af hæfileikaríku fólki í boði


mbl.is Beðið eftir því að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin birta

Það er ekki mikið sólarljósið í Phoenix þessa dagana. Tap á heimavelli gegn Chicago, komnir aftur undi 50%. Vá hvað þessi vetur verður mikið jójó, eins gott að taka töflurnar sínar. Jæja tveir leikmenn með tvöfalda tvennu. Nash með 14 stig og 16 stoðsendingar og Hedo Turkoglu, tyrkinn "knái" með 10 stig og 10 fráköst. Annars var Grant Hill með 27 stig, Hakim Warrick 23 stig og Jason Richardson 20.

Fáum LA Clippers í kaffi á föstudagskvöld ef menn vinna það ekki þá er mér hætt að lítast á þetta Smile


mbl.is Orlando vann Flórídaslaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband