Forvitnilegt

Það verður gaman að sjá hverju strákarnir hjá Óla ná út úr þessum leik. Æfingaleikur já já en töp í svona leikjum geta orðið til þess að við förum en neðar á heimslistanum, rétt eins og sigur getur þokað okkur upp á við. Ísraelsmenn hafa verið á ágætu flugi með landslið sitt og eru í topp baráttu í sínum riðli og því verður þetta ekki auðvelt hjá okkar piltum. En ég hef trú á að þessir ungu strákar með Hemma Hreiðars sér til halds og trausts geti vel náð að knýja fram hagstæð úrslit!!!
mbl.is Ólafur velur landsliðshóp - Eiður ekki í liðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíðið nú við......

....hafði nú heyrt ávinning af því að piltur væri jafnvel að koma til Eyja. Samkvæmt þessu þá hefur ekki verið mikið að marka það. En ljóst er að Keflvíkingar virðast eitthvað ætla að bæta við sig. Hef grun um að þeir séu eð fleiri járn í eldinum.
mbl.is Grétar Ólafur á leið til Keflvíkinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólin að komast upp fyrir sjóndeildarhringinn

act_josh_childress.jpgMínir menn í Phoenix eitthvað aðeins að rétta út kútnum. Komnir í 50% árangur sem er kannski ekki svo slæmt þar sem menn eru í 5 af þessum 6 leikjum búnir að mæta liðum með betra hlutfall en þeir (allir jafnir í fyrsta leik - haha). Nash með 15 stoðsendingar og 19 stig og Jason Richardson með 21 stig. 10 leikmenn sem skoruðu, allir 6 stig eða meira. Jared Dudley kom inn af bekknum og gerði 15 stig og Josh Childress 11. Mæli með að Josh skreppi til rakarans, þ.e.a.s. ef hann hefur ekki kíkt þangað eftir að meðfylgjandi mynd var tekin.

Útileikur gegn Memphis í kvöld


mbl.is NBA: Sigurganga Lakers heldur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ætli íslenskir....

...pistla höfundar sem hraunað hafa yfir Roy Hodgson síðustu vikurnar segi núna? Liverpool skútan allt í einu kominn með dælurnar í gang og það virðist vera að nást gott jafnvægi á skipið. Hvort það endist veit ég ekki en vona það þó, ekki veitir af fjölbreyttninni þarna við toppinn - já ég veit að það eru nokkur stig í það að Liverpoll sjái í aftur endann á þeim liðum sem flestar stigatröppurnar hafa klifið.

Að öðru en samt Liverpool tengdu. Það verður gaman að hitta Bigga Sveins þegar hann kemur til baka, en hann fór með fjölskylduna á völlinn í Englandi um helgina. Old Trafford í gær Anfield í dag. Fjölskyldan sem skiptist á milli United og Liverpool ætti að geta borðað í rólegheitunum í kvöld þar sem bæði liðin unnu!!!


mbl.is Torres með tvö í sigri Liverpool á Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það ekki hið besta mál?

Nú bý ég nú ekki á stór Reykjavíkursvæðinu og því kannski ekki alveg marktækur á þetta allt saman en löngum hefur manni fundist að ferðasiðir Íslendinga hefðu mátt lagast. Fleiri hjól, fleiri í strætó og svo framvegis. Hrun eða ekki hrun hefði þetta ekki mátt breytast örlítið. Ég séð að það hefur orðið örlítil breyting á notkun bílsins á mínu heimili allavega.  Þar síðasta fylling á bensíntankinn á bílnum dugði í 23 daga og sú sem nú er í notkun er á sínum 23 degi í dag og ætti að duga allavega í 2 daga í viðbót. Held að það sé nú bara nokkuð góður árangur.

Er það ekki bara nokkuð gott ef að við lögum aðeins ferðavenjur okkar? Allavega er ég ánægður með þann árangur sem náðst hefur hér síðustu mánuði og vonandi þarf maður bara að fylla í eitt sinn þangað til daginn sem að maður fer upp á land, sem er í lok mánaðarins.


mbl.is Fleiri fara gangandi og hjólandi en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert helv... ferðaveður

Hér er nú meira rok hefur verið í nokkurn tíma. Hávaða helv. rok Þurfti að skjótast niður í bæ áðan og sjófokið í höfninni var ansi gott. Það að segja að það hafi verið úrhelli var eiginlega bara til að draga úr því, en þetta hefur nú aðeins lagast núna sýnist mér.  Hann getur nú lægt hér nokkuð snögglega, eins og annarsstaðar, en hef á tilfinningunni að það sé síður en svo að gerast.  Það er enginn ástæða að vera að skrölta á skipinu í svona veðrum.
mbl.is Herjólfur siglir ekki meira í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kætist Karl!

Það held ég að Guðmundur Karl Helgason, oftast kallaðu Kalli í Toppnum hér í Eyjum eftir sjoppunni sem hann á og rekur. Áður en til sjoppurekstursins kom var hann kallaðu Kalli Helga Lása í höfuðið á föður sínum eins og algengt víða um land. Reyndar eru svona viðurnefni algeng á flestum stöðum og hjálpa til við að greina í sundur ágæta íbúa þessa og hins byggðarlagsins.

Kalli í Toppnum er mikill Derby-maður og hefur væntanlega veitt afslátt á hamborgurum í kvöld eftir sigurinn á liði Eyjapeyjans knáa, Hemma Hreiðars. Svo sem ekki hægt að reikna með sigri Portsmouth þegar Hemmi er ekki með!!!!Smile


mbl.is Hermann kom ekkert við sögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki sama flugið allsstaðar!

Það var ekki þetta flug á blessuðu landsliðinu okkar um daginn, því miður.

En get ekki annað en dáðst að öllum þessum spilurum og þjálfurumsem að við eigum um víðan völl í klístraða tuðrukastinu. Margir svo nokkuð mikið meira en frambærilegir spilarar sem að við eigum og því hef ég ekki þá trú að landsliðið okkar verði lengi í þessari dæld sem að það lennti ofan í um daginn. Alltaf líka gaman að sjá piltana gera vel í þýsku deildinni sem hlýtur nú að flokkast sem erfiðasta deild í heimi, engir aukvissar sem þar slá í gegn.


mbl.is Enn einn sigurinn hjá lærisveinum Guðmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er að leggjast yfir þetta

Get ekki sagt að margt þarna komi beint á óvart en þarna eru margir punktar sem að maður þarf að rýna í að taka með sér í umræðuna um stjórnlagaþing. Sum þessara mál hefur þegar verið reyfað nokkuð um en önnur ekki, allavega ekki að sama magni.    ...nú leggst maður yfir það.

Það þarf líka að þakka öllu þessu fólki sem þarna sat og lagði lóð sín á vogarskálarnar. Þetta er heljarmikil vinna sem að þetta fólk skilur eftir sig. Hafið heila þökk.


mbl.is Grunngildin skýrð á þjóðfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forvitnilegt

Það verður forvitnilegt að sjá hverjar niðurstöður þessa þjóðfundar verða. Þarna munu koma fram tillögur sem munu svo verða skoðaðar af  þeim fulltrúum þjóðarinnar sem kosnir verða á stjórnlagaþingið sem hefjast á í febrúar 2011.  ...um þjóðfund segir:

Tilgangur Þjóðfundar 2010 er fyrst og fremst að kalla eftir meginsjónarmiðum og áherslum almennings um stjórnskipan landsins, stjórnarskrá og breytingar á henni.Stjórnlaganefnd mun síðan vinna úr niðurstöðum Þjóðfundar og leggja fyrir stjórnlagaþing þegar það kemur saman í febrúar 2011, ásamt eigin hugmyndum.

Hlutverk stjórnlagaþings er

.....að endurskoða stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33, 17. júní 1944 og semja frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga. Frumvarpið verður síðan sent Alþingi til meðferðar, eins og núgildandi stjórnarskrá kveður á um. Þátttakendum á Þjóðfundi gefst þannig einstakt tækifæri til að hafa áhrif á stjórnarskrá lýðveldisins með hugmyndum sínum og almennum umræðum.

Við Eyjamenn eigum fulltrúa á  þjóðfundi það verður gaman að heyra hvað þeir hafa um þetta að segja þegar fundurinn er yfirstaðinn.


mbl.is Þjóðfundur er hafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú kemur pressan!

Efnilegur piltur Guðmundur Þórarinsson. Gleður mig að fá hann til Eyja. Faðir pilts uppalinn Eyjamaður þó hann hafi búið á Selfossi í sennilegast ein 33 ár. Við reyndum á sínum tíma að fá bróðir Guðmundar Ingólf, Ingó veðurguð, til liðs við okkur en hann vildi ekki ganga til liðs við okkur á þeim tíma sem Guðlaugur Baldursson var þjálfari hjá okkur og fór í Fram og endaði sem trúbador. Ekki viss um að það hefði orðið niðurstaðan hefði hann komið hingað til Eyja, hahaha. 

Það verður gaman að sjá hvernig Guðmundi tekst að fóta sig hér í Eyjum. Hann er nú ekki að fara um langan veg en það er samt ákveðið stökk að fara að spila með ÍBV. Liði þar sem í dag eru gerðar meiri kröfur heldur en gert hefur verið hingað til í herbúðum nágranna okkar á Selfossi, en það er nú að breytast.

EN ég bíð pilt velkominn og vona að hann blómstri í hvíta fallega búningnum. Ekki verður verra fyrir hann ef að hann dvelur eitthvað hjá afa sínum og ömmu að þá er hann í húsinu hérna beint fyrir neðan mig en þar hefur maður í gegnum árin séð þá bræður báða leika sér í fótbolta bak við hús á milli snúru stauranna.


mbl.is Guðmundur Þórarinsson til ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarlegt, já mjög svo

Maður hefði haldið að menn væru náttúrulega löngu búnir að koma sér upp svona gagnabanka sem menn gætu tekið mið af nokkuð reglulega og metið ástandið út frá því.

Var hinn ágæti þingmaður Pétur Blöndal þarna kannski að finna upp "hjólið" fyrir þingheimi?


mbl.is Raunveruleg staða verði könnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn verður óbarinn biskup

Hvað þá siguræll þjálfari hjá Manchester City.

Engin nöfn eru nú farin að heyrast varðandi það hver gæti hugsanlega tekið við af Mancini verði hann hrakinn frá félaginu. Er þá ekki rétt að byrja að henda nöfnum í hattinn? Ég ætla að byrja á Brian Horton. Smile  Svo geta aðrir komið með önnur nöfn. Veit svo sem ekki alveg hvers vegna menn eru komnir með þennan taugatitring held að menn ættu nú að bíða með þetta fram í byrjun desember, sjá hvar City liðið verður þá. EN þetta er nú hvorki í fyrsta né síðasta sinn sem pressan fer a´flug með eitthvað og einsetur sér svo að fá eitthvað út úr því.


mbl.is Mancini: Ég hætti ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.