Enginn hissa!

Veit ekki hvort maður getur sagt að þetta komi manni á óvart. Dean Martin hefur því miður ekki náð þeim árangri sem bæði hann og stjórn félagsins vonaðist til. Ja ég geri allavega ráð fyrir því að menn hafi viljað koma liðinu upp um deild. Var fyrir norðan í sumar í nokkra daga og þá heyrði maður ef þó nokkurri óánægju hjá fólki með gengi liðsins og hvernig málin voru að þróast en Þórsarar ropuðu hærra en maður hefur heyrt lengi. Nú hefur svo sannarlega komið í ljós að menn áttu inneign fyrir því ropi.  Vona að KA-menn fái góða lausn sinna mála, hver svo sem hún verður.

Ég hef reyndar lengi viljað halda því fram að bæði KA og Þór séu sofandi "risar" sem megi vel gera að stöndugum efstu deildarliðum og í raun er synd að sjá hversu illa bæjarfélaginu hefur gengið síðustu ár að eiga fast sæti í efstu deild.


mbl.is Dean Martin hættur hjá KA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hanna Birna 1 stig

aðrir 0

Velti því fyrir mér hvar þetta fólk er á stundum með hausinn. Það má nú svo sem minna á að bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum hækkuðu laun sín hressilega eftir kosningar. Þorðu því ekki rétt fyrir kosningar. Gott af það var ekki bara 20% hækkun á launum. Réttlætingin var sú að í öðrum sveitarfélögum af svipaðri stærð væri verið að borga meira!!!!!   Veit ekkert um það hef ekki lagst yfir það.En hækkunin var mér alls ekki að skapi, og fleirum reyndar.


mbl.is Laun varaborgarfulltrúa hækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættu að telja....

....þetta erum við!!!

Stelpurnar hans Láka að gera góða hluti í fyrsta leik. Vonandi klára þær riðilinn með stæl.

Áfram Ísland


mbl.is Fjórtán marka sigur á Litháen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að horfa á leikinn! - Víst kom fagn....

Þarna voru menn nú ekki á tánum. hvorki blaðamaður né þjálfari því Stjörnustrákar tók lítið og nett fagn eftir að þeir skoruðu mark sitt í leiknum í gær. Beint fyrir framan þá er höfðu verið að stríða þeim hvað mest í stúkunni!!!!

Hvort það er aftur á móti viðeigandi að taka fagn þegar liðið er undir er svo annað mál. Persónulega fannst mér það ekki viðeigandi en því má ekki gleyma að þessi fögn Stjörnumanna í sumar hafa gefið deildinni skemmtilegri, og alþjóðlegri, umfjöllun. Auk þess sem þeir hafa spilað opinn og skemmtilegan bolta, með misjöfnum árangri þó. Skemmtanagildið hefur verið gott hjá Stjörnumönnum í sumar og þeir eru búnir að sjá til þess að þeir verða með í deildinni næsta sumar. Hvað ætli þeir bjóði upp á þá.

 

 


mbl.is Bjarni Jóhannsson: Fögnin hafa truflað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komu fagnandi......

Þrjú góð stig á Hásteinsvelli í dag. Stjörnumenn byrjuðu nú leikinn aðeins betur og hefðu getað komist yfir en Albert varði mjög vel þegar ein leikara stjarnan komst ein í gegn. Skömmu síðar skoraði Sytnik gott mark og kom ÍBV yfir. Aðeins sterkari voru Eyjamenn og Þórarinn Ingi kom þeim í 2ö1 með marki eftir frábæran undibúningi frá Arnóri Eyvari og Eyþóri Helga. Tvö núll og mann fannst fjara undan Stjörnumönnum en þá urðu mínir menn pínu kærulausir og það var eins og við manninn mælt þeir fengu á sig mark rétt fyrir hálfleik. Seinni hálfleikur var svona la la og á köfæum fannst mér mínir menn ekki líklegir til neins, og manni fannst eins og slysið gæti gerst og við fengjum á okkur jöfnunarmark en það gerðist ekki. Ekki taka þessu samt þannig að Stjörnumenn hafi verið með einhverja svakapressu og við ekki komið boltanum yfir miðju. Það var ekki svo. Þeir leið á hálfleikinn var nokkuð jafnvægi með liðunum og niðurstaðan 2-1 sigur ÍBV alls ekki ósanngjörn úrslit. Ljótur blettur á seinni hálfleik var að Tryggvi Guð fékk gult spjald, og fer í leikbann, og það fyrir leikaraskap. Þaðan sem ég sat virtist mér þetta vera hárréttur dómur. Synd að missa Tryggva í bann svona í síðasta leiknum í sumar. Kannski þarf það ekki að vera svo slæmt því ég hef grun um að Keflvíkingar myndu nánast leggja hann í einelti í leiknum um næstu helgi ef hann hefði verið með. Betra að hafa hann utanvallar og láta hann pirra þá þaðan.

Gaman var að sjá í dag að annan leikinn í röð eru yfir 1000 manns í kringum Hásteinsvöll, ekki slæmt í 4000 manna byggðarlagi. Stuðningsmenn Stjörnunnar voru fáir en samt nokkrir. Nú er bara að vona að Landeyjahöfn verði í gír næsta sumar og þá hef ég þá trú að við fáum að meðaltali svona 150-200 stuðningsmenn annarra liða per leik. Það er búbót sem við höfum ekki haft  aðgang að áður.

Það vakti einnig sérstaka athygli fastagesta á Hásteinsvelli að rödd Geirs Reynissonar ómaði ekki um völlinn fyrir leik, hálfleik eða þegar skoruð voru mörk eða skipt inná. Það tók mig nú ekki margar sekúndur að átta mig á að þarna var um að ræða hljómfagra rödd Gunnars Friðbergs eldgleypis, blikksmiðs og allt múligt manns. En fyrir þá sem ekki vita að þá er það álíka viðburður að mæta á völlinn og heyra ekki rödd Geirs Reynis og það var á sínum tíma að sjá einhvern annan en Sigga Reim halda á kyndlinum til að tendra bálið á Fjósakletti á föstudegi í Þjóðhátíð, afar sérstök upplifun. EN piltur stóð sig vel og verður jafnvel kallaður til aftur síðar skilst mér.

En nú er bara að bíða eftir fjörinu um næstu helgi.  Áfram ÍBV alltaf allsstaðar 


mbl.is Eyjamenn unnu Stjörnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju.........

....en ekki strax!!!

Mótið er ekki búið en eitthvað segir mér að úrslitin ráðist ekki í dag. Held að eftir umferðina í dag muni 2 lið en eiga möguleika á titlinum. En við munum komast því er líður að kvöldmat á vel flestum íslenskum heimilum.

Mótið hefur verið skemmtilegt í sumar þó svo að ég sé á því að deildin sé ekki eins sterk og stundum áður reyndar snöggtum skárri en í fyrra, fannst það reyndar ekki eftir fyrstu umferðirnar. Er sáttur við mitt lið. markmið sumarsins var klárlega að taka sér stöðu á meðal þeirra liða sem ekki voru að berjast um fallsæti og það hefur tekist og gott betur. menn geta en séð Íslandsbikarinn á hólnum fyrir framan sig en það er bara ekki nóg að vinna sína leiki önnur úrslit verða líka að verða hagstæð. Flott sumar sem sagt en getur en batnað.

Verður gaman að fara að völlinn. Bjarni Jójó, Atli Yo og Tryggvi Bjarna í kaffi það gæti orðið fjör, bara að sigurinn lendi réttu megin!

 


mbl.is Íslandsbikarinn á loft í Kópavogi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bestu kveðjur á Seyðis!!!

Bið að heilsa þeim er ég þekki á Seyðis..... Reikna með að Sigga mágkona skjótist ekki yfir heiðina aftur fyr en í apríl!!!!   ...þá er nú betra að þurfa bara að glíma við Landeyjahöfn!!!!
mbl.is Hálka á Fjarðarheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi?

Alveg hættur að skilja þetta. Kemur sér að maður er ekki með lögheimili í þessu byggðarlagi. Þarna er bæjarstjórinn búinn að fara hamförum í yfirlýsingum um eigið ágæti undanfarin ár. Nú er komið á daginn að megnið af því var innistæðulaust sjálfshól. Ég velti því fyrir mér af hverju menn skipta ekki um mann í brúnni? ....fannst gott hjá fólki að flykkjast á bak við flokkinn í síðustu kosningum, það er eins og fólk hafi viljað að karlinn stæði þarna þegar flóðbylgjan gengi yfir bæinn. Svo kemur hann fram og bendir í allar áttir, en aldrei á sjálfan sig.
mbl.is Skera niður um 450 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Þórsarar

Það verð ég að segja að mér leiðist ekki að sjá Þórsara stíga upp í Pepsi-deildina. Hefði reyndar viljað fá Leikni líka, alltaf gaman að fá ný lið í deildina, en Víkingarnir úr Reykjavík voru búnir að tryggja sér sæti um síðustu helgi og því bara eitt sæti í boði.

Til hamingju Þórsarar og Víkingar, verður gaman að fá ykkur á Hásteinsvöll næsta sumar.

Nú er bara að bíða og sjá hvað síðustu tvær umferðirnar í Pepsi-deildinni gera fyrir mína menn, eða réttara sagt hvað mínir menn gera í síðustu tveimur umferðunum.


mbl.is Þór í úrvalsdeild - Fjarðabyggð féll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besti flokkurinn ber af!

Gaman að sjá hversu þátttakan í göngunni var góð. Gaman væri líka að sjá hvort allir borgarfulltrúar borgarinnar hafi látið sjá sig í göngunni, já og ráðherrar og þingmenn t.d.

Þetta framtak Besta flokksins er eitt af því jákvæðasta sem heyrst hefur úr Reykjavík í lengri tíma - svei mér þá. Þetta er líka framtak sem snýst um náungakærleika en ekki pólitík og því er gaman að sjá að fólk tekur þátt af miklum krafti.

Lifi Besti flokkurinn


mbl.is Fjöldi sýnir mannkærleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þunglyndi

Það léttist á mörgum Eyjamanninum brúnin við það að heyra að skipið lagðist að bryggju í Landeyjahöfn í morgun. Umræðan snérist úr mínus íplús á einu augabragði ef svo má segja þó svo að flestir hafi núi tekið þessu af stóískri ró.

Nú er bara að sjá hversu reglulega þarf að vera með dýpkunarskipið í vinnu þarna. Eins er þetta spurning um hvort til staðar þurfi að vera skip sem þolir örlítið meiri ölduhæð. En það er a hreinu að mjög reglulega þarf að dæla þarna, en fyrir því gerðu flestir sér fulla grein.


mbl.is Herjólfur komst í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilji þjóðarinnar?

Samkvæmt þessu er vilji þjóðarinnar sá að þetta fólk verði dregið fyrir dómstól.

Skondið finnst mér hvað viðhorf til málshöfðunar er misjafn eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Orðið svolítið sérstakt þegar fólk horfir á hlutina út frá stjórnmálasoðunum. Ekki það að það komi mér á óvart, búinn að horfa upp á þetta lengi t.d. hér í Eyjum. Einn má en annar ekki og svo framvegis. Hélt kannski að fólk væri komið með nýja sýn á hlutina eftir hrun og horfði hlutina ekki eins stíft eftir flokkslínum en svo virðist ekki vera.

Þarna er að mínu mati komin ein af ástæðunum fyrir því að þjóðin er og verður alltaf föst í sömu hjólförunum því menn líta á pólitík eins og lið í enska boltanum og halda bara með sínu liði sama hvað bjátar á eða gert er. Fólk finnur hjá sér ótrúlegustu leiðir til að trúa því sem lagt er á borð hjá því.

Það hefði verið gaman að sjá hvaða niðurstaða hefði verið í svona könnun áður en þingmannanefndin lauk störfum. - er alls ekki viss um að hún hefði komið eins út. 


mbl.is Flestir fylgjandi málshöfðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá vitum við það.....

...þetta kjörtímabil mun fara í það að menn skipa nefndir til að skoða nefndir og skoða störf þeirra er á Alþingi hafastarfað síðustu ár og allt mun snúast um það að geta bennt á hinn og þennan og kennt honum um eða sakað hann um að hafa ekki fylgt lögum og reglum - ljótt að svona skuli vera komið fyrir Alþingi.

Öll starfsemin farinn að snúast um það að elta skottið á sjálfum sér!!!! -Kannski var þetta rétt hjá Jóhönnu með kettina? Hún búin að sitja svo lengi á þingi að hún veit út á hvað þetta gengur þarna?


mbl.is Vilja sérstaka Icesave-rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.