20.11.2011 | 15:20
Grín!
Auðvitað hefði það verið góðlátlegt grín að ætla að draga umsóknina til bak - flokkurinn hefði gert í buxurnar með því að álykta svo. Skil ekki alveg hvaðan fólk kemur með þá umræðu. Klárum þetta og kjósum um þetta - einfallt og gott. Hættum að velta okkur endalaust upp úr þessu og hugum að öðrum málum.
![]() |
Felldu tillögu um að draga umsókn til baka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.11.2011 | 15:14
Hjakkað í sömu förunum!
![]() |
Bjarni sigraði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.11.2011 | 14:17
Sorglegt ...og það afar
![]() |
Níu hafa skorað meira en Heiðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2011 | 18:44
Air Heiðar!
![]() |
Heiðar maður leiksins - Fékk mikið hrós |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2011 | 17:34
Bjarni er með þetta!
Það verður ekki af piltinum tekið að hann er með þetta. Hann er búinn að læra það sem ætlast er til af honum. Það kemur allt í ljós hér:
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á landsfundi flokksins í dag að vinstristjórnin væri að verða uppiskroppa með loforð til að svíkja. Þess vegna horfði þjóðin til Sjálfstæðisflokksins með von í brjósti.
....nákvæmlega! Það er að verða búið að svíkja öll loforðin og því er kominn tími á að aðrir taki við og haldi áfram þessum týpíska pólitíska spillingarleik og haldi áfram að svíkja loforðin sem kjósendum eru gefin. Einfallt - já - en svona er þetta og Bjarni er búinn að gera sér grein fyrir því - skarpur strákurinn.
Hvort það tryggir honum sigur á morgun veit ég ekki en það gæti gert það. Í fylgisliði hans er fullt af fólki innarlega í flokknum sem veit fátt skemmtilegra en að svíkja og moka undir sig og sína - kannski að það dugi og ásýnd flokksins verði eins. ......veit ekki með ykkur en ég held að hann yrði ansi sár að tapa í slag fyrir konu - svo mikið er víst - en það á við um fleiri flokksmenn en hann!
Verður forvitnilegt að sjá hvernig kosningin fer á morgun.
![]() |
Þjóðin horfir til Sjálfstæðisflokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.11.2011 | 15:21
Davíð á tánum!
Þessi aldni höfðingi steig í pontu og fór með gamanmál, eins og honum einum er lagið. Málið er bara að það eru einmitt svona gamanmál frá honum og ýmsum öðrum sem hinn almenni borgari er kominn með nóg af. Það er að segja ða sífellt er verið að gera lítið úr náunganum og benda á að hann sé ómögulegur og ég veit ekki hvað. Menn kasta hinu og þessu á andstæðingana - án þess að koma með lausnir í þeim málum sem þeir helst gagnrýna - það virðist vera aukaatriði. Menn gleyma oft að líta í eigin barm. Það getur verið ágætt að efast á stundum um eigið ágæti.
En víst er að en eru til aðilar sem hafa gaman af gamanmálum Davíðs en þeim aðilum hefur farið ört fækkandi. Það sem að manni fannst á stundum vera hans spari hlið lítur á stundum núna út eins og hroki - og er það miður.
![]() |
Þrennt bjargaði Íslendingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2011 | 11:25
Er búið að hringja í þá hjá Man City?
Það er ótrúlegt að sjá muninn á því rekstrarumhverfi sem liðin í Þyskalandi búa við og svo snillingarnir í Englandi. Væri gaman að sjá samanburð félagslið fyrir félagslið.
Lifi Bundesligan
![]() |
Hagnaður hjá FC Bayern 19. árið í röð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2011 | 09:01
Aumingjar á hverju strái?
Hvað gengur eiginlega orðið á í þessum 120 þúsund manna bæ sem kallast höfuðstaður Íslands? Það líður vart sá dagur að ekki sé eitthvert fjörið í gangi fyrir lögregluna. Þetta er orðið með ólíkindum. Hafa menn borið þetta saman við bæi af sömu stærðargráðu annars staðar á jarðskorpunni? Þetta er líka allt orðið eitthvað svo hömlulaust þetta fjör. Vona að okkar ágæta lögreglulið uppræti þetta allt sem fyrst, eins og þeirra er von og vísa. Vil ekki eiga það á hættu að vera skotinn þegar ég kem þarna eftir 2 vikur!!!!
Datt nú fyrst í hug að menn væru þarna að taka upp mynd svona án þess að láta vita af því en svo virðist ekki vera.
Ætli þetta verði næst?
![]() |
Handtökur vegna skotárásar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.11.2011 | 08:06
Það er eins og við höfum alltaf sagt!
![]() |
Norwegian hefur áætlunarflug til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.11.2011 | 16:49
Eftir Kastljósið........
![]() |
Stjórn FME skoðar mál Gunnars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2011 | 16:43
Sorglegt sukk?
Enski boltinn löngu horfinn út í buskann. Þetta eigenda vesen á ensku liðunum skekkir myndina svo svakalega að það hálfa væri miklu meira en miklu meira en nóg. Svo langt frá upprunanum er við komin. Þessi skakka mynd sem kominn er á rekstur liðanna er í raun orðinn þannig að maður hefur ekki eins gaman af þessu og áður. Þetta er orðið svona sömu liðin ár eftir ár, ja nema að upp komi hlutir eins og gerðist með Man City - moldríkir skrattakollar taka völdin. Svo þegar skuldirnar ná tökum og menn sjá ekki fram á að ná að greiða skuldirnar þá breyta menn þessu í hlutafé og reyna þannig að halda sjó.
Þó svo að það gleðji mann að vissu leyti að Man City er komið þarna - nýtt kjöt á grillteininum - þá er þetta peningasukk ekki mér að skapi. En þér?
![]() |
Gífurlegt tap hjá Manchester City |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2011 | 14:40
Heimsins stærsta .........
![]() |
Ferguson ósáttur við ummæli Poyets |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2011 | 12:51
Tölu eða tölvuleikir?
þarna segir:
Tækni & vísindi | mbl.is | 18.11.2011 | 11:57
Tengsl á milli töluleikjanotkunar og fíknar

Reuters
Rannsóknir benda til þess að mikil notkun á tölvuleikjum geti haft hliðstæð breytingaráhrif á heilann og til að mynda spilafíkn. Umrædd rannsókn var framkvæmd af evrópskum vísindamönnum sem rannsökuðu samtals 154 börn á fjórtánda aldursári.
Börnunum var skipt niður í tvo hópa eftir því hversu mikið þau höfðu skipað töluleiki. Í öðrum hópnum voru 24 stúlkur og 52 drengir sem spiluðu tölvuleiki a.m.k. í níu klukkustundir á viku. Í hinum hópnum voru 58 stúlkur og 20 drengir sem spiluðu tölvuleiki sjaldnar en það.
Niðurstöðurnar þykja benda til þess að tölvuleikjanotkunin hefði breytingaráhrif á heila þeirra sem spiluðu tölvuleiki oftar með því að örva svæði í heilum þeirra sem tengist hegðunarmynstri og tilfinningum.
Þá kom í ljós að heilar þeirra brugðust með hliðstæðum hætti við og t.a.m. hjá fjárhættuspilurum þegar leikur var settur á svið og þeim síðan tilkynnt að þeir hefðu tapað.
Niðurstöðurnar voru þó birtar með þeim fyrirvara að ekki væri endanlega ljóst hvort tölvuleikjanotkunin hefði þessi áhrif á heilann eða hvort notkunin væri afleiðing þess að heili fólks væri með þessum hætti.
Frekari rannsókna væri þörf í þeim efnum að mati vísindamannanna en rannsóknin nú hefði engu að síður sýnt fram á að tengsl væru þarna á milli.
Bandaríska dagblaðið Los Angeles Times greinir frá þessu.
----hvort ætli menn vilji hafa þetta tölu eða tölvuleikjanotkun?og þýðingin í miðri grein er líka snilld.
![]() |
Tengsl á milli tölvuleikjanotkunar og fíknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)