Hið besta mál

Nákvæmelga ekkert að því að aðrir fái að fjárfesta í sjávarútveginum hér á landi. Þurfum bara að hafa svipaðar reglur og t.d. danir hafa hjá sér og gott ef skotar voru ekki með einhverja varnagla líka. Minnir að danirnir hafi verið framar á merinni í þessu tilfleli og því um að gera að skoða þetta.  Verðum að vanda okkur en megum ekki reikna með að geta sveigt allt og alla, að því sem okkur langar - það gerist aldrei. En við höfum þarna tækifæri - látum á þau reyna. Sjáum hvað það færir okkur.
mbl.is Öðrum leyft að fjárfesta hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Poyet er maðurinn

Einn efnilegast knattspyrnustjórinn í Englandi hefur talað. Að sjálfsögðu er hann ekki enskur enda ekkert að gerast á þeim bænum hjá Englendingum!!!  En Poyet hefur nokkuð til síns máls og ég sem stuðningsmaður hans, Brighton og Úrúgvæ tek hér með sömu afstöðu og hann. Enda svo sem aldrei þolað Patrice Evra, ekki frekar en aðra franska leikmenn síðustu 10 árin eða svo.
mbl.is Poyet: Evra er grenjuskjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blatter er bullari....

....það vitum við öll. Það er að segja við sem í einhvern tíma höfum fylgst með því er fram fer hjá samböndum eins og FIFA. En það má heldur ekki gleyma því að forsetinn er kosinn af meirihluti félagsmanna og á meðan þeir skipta ekki um verðum við að álykta sem svo að stuðningsmenn hans séu honum sammála!!!! Varla eru menn að kjósa yfir sig einhvern sem þeir eru alls ekki sammála? ja nema að það sé svo eins og maður hefur t.d. séð í viðgangast í svona samböndum að menn fylgja einhverjum að málum af því að þeim er lofað að þeir muni fá bita af kökunni ekki endilega af því að þeir séu sammála öllu í grunninn!!!!!  ....menn eru svo beygður til hlýðni þegar þeir bíta í sneiðina.
mbl.is Beckham: Hræðileg ummæli Blatters
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var ekki spurður en........

....já já er alveg til í að flytja til útlanda sé örugg vinna til tveggja ára til staðar, til að byrja á. Auðvitað vill fólk flytja úr landi. Hvað erum við annað en 300 þúsund manna fleki á reki? Höfum alltaf verið það en í ákveðnum doða töldu vissir menn þjóðinni trú um að seglin væru upp og vindáttir hagstæðar - gerðu sjálfa sig breiða og þóttustu mikilvægari en áhöfnin - my arse.

Nú rekur okkur út og suður og í þau skipti er við sjáum til lands rekur okkur aftur frá landi og ekkert lagast. Fullt af þjóðum sem sjá okkur á radarnum hjá sér en vilja ekki taka okkur í tog nema að litlu leyti. Ástæðan? jú hún er sára einföld um leið og þeir henda til okkar spotta þá kasta þeir er þykjast ráða honum til baka. ..........mikið af fólki hefur séð þetta og lagt til sunds og reynt að bjarga sér - er einhver hissa þó að fleiri íhugi það?


mbl.is 40% vilja flytja til útlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spark í rassinn!

Það er náttúruelga með ólíkindum a maður eins og Blatter skuli hafa setið í forsvari fyrir þessi samtök í öll þessi ár. Hreinum og klárum ólíkindum. Komin ansi mörg ár síðan að hann sofnaði ofan í súpuskálina. Samt láta menn hann stjórna áfram - ótrúlegt. Því fyrr sem hann víkur þeim mun betra fyrir tuðrusparkið á heimsvísu. Hvort eitthvað skárra tekur við veit ég ekki en það er allavega nauðsynlegt að rótera þarna og reyna að fá fólk til að sjá breytingar og öðlast þannig kannski trú á batterýinu. Það sama finnst mér reyndar t.d. eiga við um KSÍ - kominn tími á ný andlit þar í stjórnarstarfinu. Regluleg hreyfing á stjórnarmönnum á að vera hinn eðlilegasti hlutur.
mbl.is Taylor krefst afsagnar Blatters
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðbjartur eða Hanna Birna?

Eru það ekki nöfnin. Guðbjartur staðið sig vel - mjög vel. Hanna Birna þó ekki sé hún ný af nálinni talinn boðberi breytinga í sínum flokki. Hvort svo sem það verður nú eða ekki. Bjarni og Jóhanna bæði með óvenju gott skor miðað við afrekaskrá.

Mikið svakalega er ég farinn að sakna þess að sjá aldrei nein ný nöfn koma fram í dagsljósið. Guðbjartur reyndar kannski nýtt nafn á þessum lista en hitt bara same old, same old!!!


mbl.is Vilja Hönnu Birnu sem forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki kominn tími á.........

......að koma fyrir sandkössum þarna fyrir utan þinghúsið, ja eða jafnvel innandyra. Hélt að þetta væri allt fullorðið fólk sem er að vinna þarna og gæti því komið sér saman um einfalda hluti eins og þetta en svo virðist ekki vera - því miður.
mbl.is Verða upptekin þegar atkvæðagreiðsla fer fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Deyjandi deild!!!

Það verð ég nú að segja að þetta leiðist mér. Hver verður framtíðin í þessu? Hvernig endar þetta? Skaðinn gríðarlegur fyrir alla þá er tengjast þessu. Ekki eins og leikmenn þarna hafi þurft að leita til mæðrastyrksnefndar, ja og ekki eigendurnir heldur. Spurningin er bara hver áhrifin til lengri tíma verða. Veit ekki hvað öðrum finnst en mér hefur fundist vera smá meðbyr með NBA síðustu 2-3 tímabil. Fannst vera nokkur mögur ár þar á undan - eða fylgdist ég bara ekki nógu vel með, nei held ekki. Þetta gæti skaðað komanid tímabil og framtíðarhorfur í boltanum.

Vinir mínir sem halda með Dallas Mavericks kætast kannski og tala um að þeir hafi verið meistarar frá 2011-2013!!!!


mbl.is Leikmenn kæra NBA-deildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og!!!

Ef að fjármögnunarleiga er ekki með allt sitt á hreinu þá lýst mér ekki á. Maður hlýtur þá að spyrja sig hvað hefur gengið á og hvað menn voru að pæla í vinnunni. Svo einfallt er þetta í mínum huga. Hverjir sömdu verkferlana og eftir hverju var farið. Hélt bara að menn myndu ekki vaða út í á án umhugsunar.   .....en hvað veit ég?
mbl.is Yrði mikill skellur fyrir Lýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúkt ástand

Held að ég geti nú ekki lýst þessu öðruvísi en sem sjúku ástandi, sjúkri hegðun og dómgreindarskorti á háu stigi. En hvað veit ég? Ég er bara anægður að á málinu skuli hafa verið tekið og að þetta skuli vera niðurstaðan. Oft heyrir maður af svona hlutum, svona "hrekkjum" og er þá yfirleitt um eitt og eitt til fallandi atriði en ekki heilubækurnar af athæfum gagnvart sama einstaklingnum. Skal reyndar viðurkenna að ég veit um aðila sem fengu að heyra og upplifa illa meðferð í þessa átt á sinni lífsleið - endirinn varð sjálfsmorð  - ekki skemmtilegt að hafa það á samviskunni og burðast með til grafar. Léttir á sálartetrinu kannski örlítill af því að eftirlifandi skyldmenni fluttu úr byggðarlaginu og því lítil sem engin hætta á að hitta skyldmennin á götum úti.

 


mbl.is Níddust á 13 ára dreng í veiðiferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylkismenn ekki blankir

Það verð ég að segja að Fylkismenn geta ekki verið aura litlir ef þeir telja sig geta boðið í Finn Ólafsson. Búinn að vera einn af ásunum í liði ÍBV síðustu 2 ár. Í mínum huga einn af  sennilega 8 mikilvægustu leikmönnum deildarinnar þegar horft er til vinnuframlags og virkni innan liðs - svakalega vanmetinn leikmaður. Leikmaður sem lið ættu að slást um að fá til sín ef hann væri með lausan samning.

Verður forvitnilegt að fylgjast með framvindu þessa máls.


mbl.is Fylkir gerir ÍBV tilboð í Finn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breivik er bilaður

Þessi miklu harmleikur  á eftir að elta fréttamiðla í góðan tíma í viðbót. Klárlega einn mesti viðbjóðurinn sem að maður heyrt af á þessu ári. Vægast sagt. En við þurufm náttúrulega að bíða í nokkrun tíma í viðbót eftir því að sjá hvaða afgreiðlsu mál hans fær fyrir norskum dómstólum, þ.e.a.s. hver dómurinn verður. Þungur verður hann en væntanlega ekki nógu þungur að mati margra.
mbl.is Var ekki ógnvekjandi í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahahaha

Heitir þetta ekki að kunna að gleðja stuðningsmenn síns gamla félags? Er ansi smeykur um það. Er viss um að margir brosa hringinn og hrópa jafnvel upphátt þegar þeir lesa þetta.   ...og það af einskærri gleði.
mbl.is Spila aldrei aftur með Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.