Nnnnnnei!!!

Það gengur bara ekki að hann segi af sér blessaður karlinn, gengur bara engan veginn. Hvað ætla menn þá að tala um? Það held ég að það verði einhver gúrkutíðin hjá ítlöskum fjölmiðlum, sem eru nú sennilega flestir í eigu þess gamla. ....sorg framundan?

Nei ætli tími hans hafi nú ekki liðið hjá fyrir nokkrum árum - er ansi hræddur um það.


mbl.is Berlusconi segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við vinnum þennan leik

Hef trú á að við vinnum þennan leik, óvænt. Tvö eitt fyrir okkur.  Það er að duga eða drepast fyrir piltana.
mbl.is Ameobi valinn í enska hópinn sem mætir Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2 frábær lið.....

...en bara annað spilar hverju sinni og því getur brugðið til beggja vona um árangur í vetur!!!!! Svo á nú eftir ða koma að þeim tíma þar sem óánægju fer að gæta og leikmenn byrja að tuða í fjölmiðlum og naga í hælana á þeim leikmönnum sem eru í liðinu oftar en þeir og þjálfarinn fær svo að heyra það líka.
mbl.is Toure: Erum með tvö frábær lið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ærinn starfi og fleira!

Það held ég að flestir knattspyrnuáhugamenn, rétt eins og Guðjón, geri sér grein fyrir því að það er ærin starfi framundan við að koma Grindavíkur-liðinu á góðan stall í deildinni á ný. Grindvíkingar hafa aldrei fallið úr deildinni og það held ég að sé næsta víst að með ráðningu Guðjóns er stefnan ekki sett á að fara niður um deild, heldur nálgast toppinn. Fjárhagsstaða Grindvíkinga, eins og reyndar flestra annarra liða, er held ég ekki svo burðug.  Flest liðin löngu búin að missa sig í launarugli, að mínu mati, sem sést best á því ða liðin stöggla, og jafnvel rúmlega það við að ná núllinu í bókhaldinu í lok hvers árs. Þetta er eitthvað sem ég held að flest, ef ekki öll liðin þurfi að endurskoða hjá sér. EN þetta er mín skoðun hef hitt fullt af fólki sem finnst ég skrýtinn, ja eiginlega vitlaus að vera með þessa umræðu!!!
mbl.is Guðjón: Heillandi að reyna að koma liði í fremstu röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er það frá!

Jæja þá geta Grindvíkingar farið að taka næstu skref í sínum málum. Nú er það leikmannamarkaðurinn. Miðað við sögur af slæmum fjárhag deildarinnar verða men væntanelga rólegir í þeirri deild. Ja nema að Þorsteinn Gunnars fari með rétt mál og staðan sé ekki eins slæm og aðrir vilja vera láta!!!

Þetta kemur allt í ljós - langt er í fyrsta leik í næsta Íslandsmóti. Það verður gaman að sjá hvernig Guðjóni  gengur að hleypa lífi í þá þarna suður með sjó. Það verður líka gaman að sjá karlinn aftur með lið í efstu deild.


mbl.is Guðjón ráðinn til Grindvíkinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þyrnirósarsvefn!!!

Hanna Birna ætlar greinilega að reyna að vekja flokkinn af þeim Þyrnirósarsvefni sem hann hefur verið í  í mörg ár. Spurningin er í raun hvort hún byrjar bara svona og verður svo að sömu tuggunni og aðrir er fram hafa sótt innan flokksins. Vona að hún haldi haus og bíti hraustlega frá sér held að flokkurinn, rétt eins og aðrir flokkar, hafi bara gott af því að það sé smá lífi innan flokksmúranna - örlítil átök og fjör. Við vitum öll að lognið færir okkur ekki mikið líf.

Nú bíð ég bara eftir að Ragnheiður Ríkharðsdóttir bjóði sig fram til varaformanns!

 


mbl.is Hanna Birna í herferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt fyrir frægðina........

Svona er nú lífið. Hvað gerir maður ekki fyrir frægðina? Kim gengur langt í því. Menn hljóta að vera að grínast með þetta:

Hún neitar að láta kvikmynda sig fyrir raunveruleikaþættina sína fyrr en á nýju ári, til að sýna að hún sé ekki að reyna að græða á skilnaðinum sem hún stendur í við eiginmann sinn til tveggja mánaða, Kris Humphries

Af eða á græðir á þessu hvort eð er. 


mbl.is Kim Kardashian í felum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiptir ekki máli......

...hversu mörg mörk þú skorar á meðan þú sérð til þess að andstæðingurinn skori bara færri mörk. Það er lykilatriði að skora fleiri mörk en andstæðingurinn til að vinna leik. ÍBV stelpurnar gerðu það og fá því 2 stig en Fimleikafélagsstelpurnar!!!  Áfram ÍBV alltaf allstaðar
mbl.is Aðeins 34 mörk skoruð í sigri ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska útrásin stendur enn yfir!!!

Þó svo að dregið hafi úr útrás íslenskra draumóramanna í peningaheiminum þá er ekkert lát á útrás íslenskra tuðrusprkara. með heyrir af strákum hér og þar sem eru að reyna fyrir sér eða hafa áhuga á því. Sumir hafa frestað undirskrift samning við sitt félag er mér sagt til þess að eiga tækifæri á að bregða sér erlendis. Gallinn við marga í gegnum tíðina er að þeir hafa ofmetið eigið ágæti, og það all svakalega stundum. En ég verð þó að viðurkenna að það virðist vera svo með marga þeirra að þá dreymir bara um að komast út - prófa að spila erlendis. Skil vel þennan draum þeirra, en menn ættu ekki að gera sér of miklar vonir. Er þó á því að þeir gætu allir farið og spilað erlendis en það er ekki víst að því fylgja alltaf það sem þeir halda. Hvorki fjárhags- né félagslega.

En Daníel Laxdal mmyndi ég gjarna vilja sjá tækifæri á erlendri grundu.


mbl.is Daníel bíður eftir svari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nútíminn kemur í kaffi!!!

Það er ég hræddur um að við séum að horfa á það að nútíma vinnubrögð glæpagengja séu búin að ná fótfestu. Partur af því er kannski að þó við teljum okkur svo stór að þá erum við smá og allar okkar farnir kannski ekki alls staðar í hæsta gæðaflokki - þetta huski skannar það og tæklar svo.

Auðvitað á að taka hart á þessu liði, ef að það næst, og ef menn vita eitthvað misjafnt um menn, já og konur, á að reyna fyrirbyggjandi leiðir. ...þurfum við ekki bara að setjast yfir það og það strax, það er þegar orðið of seint svo það er engin ástæða til að hinkra við lengur!!!!1


mbl.is Skipulagður og kerfisbundinn þjófnaður eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyr, heyr

Þarna erum við að tala saman - lýst vel á þetta.
mbl.is Vilja treysta flugvöllinn í sessi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvur andskotinn!!!!

HVerslags fyrirsögn er þetta:

Björn Hlynur og félagar nakin í gufubaði

Smartland Mörtu Maríu | mbl | 4.11.2011 | 9:31

 

Má ekki laga þetta?

 


mbl.is Björn Hlynur og félagar nakin í gufubaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsó - splæsó!!

Lýst vel á þetta. Það er þá líf í blessuðum flokknum eftir allt. Skulum vona að baráttan verði heiðarleg. Á sanngjörnum nótum og stuðningsmenn stundi ekki bara skítkast úr einu horninu í annað. Hanna Birna á öflugan hóp kvenna sem mun styðja við bakið á henni og munu ganga þarna fram af miklum hug í að koma sinni konu í stólinn. ...karlpeningurinn hefur nú líka löngum verið svolítið skotinn í Hönnu Birnu líka.  ....en Bjarni Ben á nú líka öflugt bakland þannig að það verður væntanlega gaman hjá þeim er landsfundinn munu sækja.
mbl.is Hanna Birna býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.