Ja hérna hér

United að tapa heima..... byrja þá bara að telja upp á nýtt United menn. En kallast þetta ekki að vera jarðsettur í eigin bakgarði?  Hlakka til að heyra í nokkrum United mönnum!!! Nú mun spjallið með bros á vör snúast um að hvaða máli skiptir það hvernig eitthvert tuðruspark manna úti í heimi fer. Eitthvað sem við höfum engin áhrif á!!!
mbl.is City niðurlægði meistarana á Old Trafford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já já auðvitað eigum við kost á því

Kannski að maður eigi að íhuga að bjóða sig fram. Eru einhverjir þarna úti til í að stjórna kosningabaráttunni fyrir mig?  ........í sjálfboðavinnu.
mbl.is Eigum kost á að skipta um forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilldin ein

Þetta kætir marga - vægast sagt. Alltaf gaman þegar menn, konur og börn ná árangri í bridge. Tala nú ekki um þegar landsliðið á hlut að máli. Vona bara að menn verði ekki mjúkir í móttökunefndinni þegar skálin kemur "heim" á ný. Þá á ég við undir áhrifum áfengis - allt í lagi að vera mjúkur viðkomu!

Skálin er okkar!


mbl.is Ísland í úrslit á HM í brids
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður sigur

Engin spurning að þetta er góður sigur hjá drottningunum okkar. Þær halda uppi pressunni í riðlinum. Meðan þær halda áfram að hafa hugann við efnið þá eru þeim allir vegir færir í þessum riðli. Sé alveg fyrir mér að þær verði aftur með í úrslitakeppni EM kvenna. Þetta er öflugur hópur sem við eigum og það virðist vera fullt af ungum og efnilegum stelpum á leiðinni í gegnum starfið í kvennaboltanum og því engin ástæða til að örvænta yfir framhaldinu hjá A-landsliði kvenna. Við verðum áfram á meðal þeirra bestu í Evrópu á meðan stelpurnar nenna.
mbl.is Dóra María tryggði Íslandi stigin þrjú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru það þá ekki.....

....skógarþrestir?
mbl.is Eldri Þrestir halda afmælistónleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi ..........

....hverjir koma til með að lenda í öðru sæti í 1. deildinni!! Er þess alveg full viss að það verða Eyjamenn sem landa sigri í deildinni. Hverjir koma í kjölfarið á þeim er ég bara ekki viss um að svo stöddu.
mbl.is ÍR fór uppfyrir Víking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki að fara að breytast!

Sé ekki City landa sigri á sunnudaginn. Held að United hafi þetta. Skal samt viðurkenna að það gæti orðið forvitnilegt ef að City myndi landa sigri og ná þannig smá forskoti á nágrannana. Það myndi að mínu mati gera deildina skemmtilegri. Held bara, með fullri virðingu fyrir City, að United hafi þetta.

2-1 fyrir United


mbl.is United taplaust á Old Trafford í 37 leikjum í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öllu gamni fylgir einhver alvara

Frétti af þessari auglýsingu í gær og brosti. Gott að sjá að þetta fær einhverja athygli. Verður líka gaman að sjá hvort viðbrögðin verða einhver. Margir orðnir ansi pirraðir hér á eyjunni í suðri í þessum samgöngumálum. Skil marga alveg mætavel, sérstaklega þá sem mikið eru á ferðinni. Það á þó ekki við mig að svo stöddu, þó vissulega vonist ég eftir því að menn fari að bretta upp ermar og taka sig saman í andlitinu og leysa þetta í eitt skipti fyrir öll. En það er enginn sem segir að það verði auðvelt.

Við höfum verið að nota "lengri" þjóðveginn síðustu vikur - þ.e.a.s. sigla til Þorlákshafnar - en nú skal siglt upp í fjöru á ný á morgun - þá kætast margir, en hversu lengi?

En hvað eru þingmennirnir margir? kann ekki einhver að telja þarna?


mbl.is Auglýsa eftir þingmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki alveg sáttur eða.......

Fátt þarna sem kemur á óvart svo sem. Sýnist flestir mjög vel að sinni nafnbót komnir. Finnst samt eins og Þórarinn Ingi hefði átt að ná inn í úrvalslið ársins, með þessu vali. En svona er ég skrýtinn. Hannes Þór svo sannarlega einn af ásum Íslandsmótsins í ár.

Finnst líka frábært að sjá vinkonu mína Elísu Viðarsdóttur þarna inni í kvennaliðinu. Hún er væntanlega líka fyrirliði Wink

Þjálfarar ársins eru náttúrulega bara þeir einu sem komu til greina í þeirri deild. Árangur Rúnars í sumar hreint út sagt frábær. Sama hvert litið er. Þorlákur Már náði náttúrulega ótrúlegum árangri með liðið í deildinni í sumar og afrek Stjörnunnar góður - alltaf gaman þegar eitthvað nýtt lið kemur og landar dollu.


mbl.is Hannes og Gunnhildur leikmenn ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ber að fagna eða......

Jújú víst var karlinn ekkert lamb að leika sér við. En hvað tekur við? áframhaldandi blóðsúthellingar? Friður? Betra líf fyrir íbúa Líbíu? Eigum við núna eftir að horfa á eitthvert stórveldanna reyna að koma sínu fólki í áhrifastöður þarna? Hrekur þá ekki allt fljótt aftur í sama gírinn?  Hverjir munu berjast um feitustu bitana?

Fær lýðræðið frið til að þróast þarna á eðlilegan og sanngjarnan hátt?  ....æi þó ég vona að svo verði þá hræðist ég að það verði ekki niðurstaðan - sorrý


mbl.is Staðfesta dauða Gaddafis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búnir að jafna!!!

Sýnist menn þarna vera búnir að jafna og jafnvel komnir aðeins yfir innkomu tölurnar úr síðasta túr U2. Vell að verki staðið, og nóg eftir af árinu!
mbl.is Aflaverðmætið 83,6 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjálfti víða......

Það held ég að amrgir séu á nálum ef til verkfalls kemur. Fjöldin allur af fólki sem á að fara til Þýskalands frá Grunnskóla Vm t.d. á þriðjudaginn. Er hræddur um það sé kominn skjálfti í þann hóp.    .....kannski ekki skjálftinn sem oft er í fólki sem er á heimelið erlendis frá en svona vottur af svekkelsis skjálfta því það eru ansi margir mánuðir síðan þetta var ákvðeið.
mbl.is Nýr fundur í fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Púslið heldur áfram

Glæsilegt. Gamli vinstri bakvörðurinn búinn að skrifa undir nýjan samning. Hann hefði nú getað ælt þessu út úr sér í gær þegar hann kíkti í prentsmiðjuna. En það eitt að fá hann í heimsókn var svo sem næg ánægja í gær og þetta reddaði deginum í dag. Everton aðdáandinn á eftir að halda áfram að reynast okkur vel - ekki spurning.
mbl.is Garner samdi við Eyjamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.