Flott einvígi

Þetta var svakalega flott einvígi um titilinn. Jú jú Higgins hafði sigur en Judd Trump klárlega sigurvegari mótsins ef svo má að orði komast. Aðeins 21 árs kom hann skemmtilega á óvart í mótinu, komst í úrslit og var yfir eftir fyrri dag í úrslitaleiknum en missti svo flugið. Trump er einstaklega sóknarþenkjandi spilari og ótrúlega gaman að sjá hann spila. Hann stóðst ekki Higgins snúning í dag en gerir það kannski síðar. Meira að segja Higgins sagði að það hefði verið gaman að fylgjast með hinum 21 árs gamla Bristol búa Trump spila. Hlakka til að sjá til hans í framtíðinni.

Fylgist nokkuð vel með þessu móti á Eurosport og þarna var mikið um augnakonfekt í spilamennskunni.


mbl.is Higgins heimsmeistari í snóker
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

92.58 á klukkunni

Það voru ekki mörg andartök eftir í þessu þegar Tryggvi kom boltanum yfir línuna - en ljúft var það.  Ekki var leikurinn nú  sérstakur lengstum en þó varð Albert glæsilega í tvígang í sömu sókn Frammara í fyrri hálfleik og fékk svo spark frá Almarri í höfuðið, en ekki var það neitt of alvarlegt. Svo var bjargaði við línu á marki Frammara og á marklínu ÍBV í seinni. Þannig að þetta var svona sim-sala-bim leikur. Jafntefli sennilega sanngjarnast en að því er ekki spurt og stigin eru hjá ÍBV.
mbl.is Tryggvi skoraði á síðustu stundu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukið eftirlit!

Ólína er með sínar hugmyndir og ég mínar. Ég vil auka eftirlit með þingmönnum og bankamönnum ef að það hefði verið skikkanlegt vitrænt eftirlit með því fólki síðustu 10 ár þá hefði ástandið verið annað hér en nú er.

Svo er hér allt skorið niður og þá vill Ólína auka fjárútlát í eftirlit!!!!!


mbl.is Vill aukið eftirlit með ísbjörnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já já Sníglarnir hjóla en......

...skyldu þeir ætla að ferðast með hraða snígilsins?

 Sumarið greinilega komið mótorhjólunum hefur fjölgað ört í umferðinni hér í Eyjum upp á síðkastið. Mörg hver stórglæsileg ekki síður en þeir er á þeim sitja.


mbl.is Sniglarnir hjóla í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með fiðring í tánum - koma svo spá!!!

Jæja þá er þetta að bresta á 3 tímar í leik. Kominn nettur fiðringur, nú á maður bara eftir að sækja ársmiðann, fara í úlpuna og fínpússa raddböndin. Er þá ekki fínt að spá í leiki kvöldsins?

 

Fylkir – Grindavík 1-1

ÍBV – Fram3-0

Keflavík – Stjarnan 2-1

Valur – FH  2-1

 

Hvernig spáir þú?


mbl.is Íslandsmótið hefst í Eyjum í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ship-o-hoj

Frábært einvígi sem þarna er boðið upp á. Tvö flott lið þarna á ferðinni. Magnaðir leikir hingað til og adrenalínið hjá manni heimtar að þetta fari í 5 leiki - svei mér þá. Það er íþróttinni nauðsynlegt að svona einvígi sjáist, og það helst á hverju ári.  Mig er strax farið að hlakka til næsta leiks, og ég er hvorki að fara að keppa né stuðningsmaður þessara liða, þó svo að ég sé aðeins vilhallur undir landsbyggðina!!!
mbl.is Akureyringar lögðu FH í þriðja leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko mína

Glæsilegt hjá minni í Svíþjóð. Margrét Lára kominn á flug og því ekki við öðru að búast en fjöri. Ansi hræddur um að markverðirnir í deildinni séu ekki spenntir, já eða varnarmennirnir. Það sem er enn skemmtilegra er að lið Kristianstad vaknar og verður kannski í leiðinni líklegra til þess að ná einhverjum vitrænum árangri. Smile
mbl.is Margrét Lára með tvö í sigurleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvennt í stöðunni.....

Nú þurfa menn að bretta upp ermar - vægast sagt. Það gengur heldur ekki að svíarnir ætli bara að stóla á Íslendingana til þess að vinna dolluna fyrir þá. Aðrir leikmenn þurfa að stíga upp Smile

Menn eru kopmnir upp að vegg og nú snúa menn bökum saman og vinna 2 í röð, neita bara að trúa öðru.     ........Heja Dragons


mbl.is Sundsvall að missa af titlinum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaður árangur

Það verð ég að segja að þetta þykir mér hreint magnaður árangur hjá vaxtarrætarfólkinu okkar. Þarna er klárlega hver snillingurinn á fætur öðrum. Hef farið að fylgjast aðeins með þessu og Cross-fit liðinu eftir að ég byrjaði að nenna að mæta aðeins í ræktina. Ótrúlegt lið. Samt er ég nú ekki frá því að einhver sá ótrúlegasti í þessum vaxtarræktarbransa er Smári Kristinn Harðarson sem æfir hérna í Hressó. Hann er einhvern veginn þannig að manni finnst hann alltaf vera á leið í móti!!!

En til hamingju þið öll sem náðuð þessum frábæra árangri og svo má ekki gleyma að Kristín Kristjánsdóttir náði frábærum árangri í Austurríki í gær, eða var það í fyrradag.


mbl.is Sópuðu að sér verðlaunum í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju.........

...með daginn verkafólk gott. Vona að dagurinn verði ykkur ánægjulegur og að þið látið heyra vel í ykkur um þær kröfur sem að þið viljið að settar verði fram og barist verður fyrir á næstu misserum fyrir ykkar hönd.

Ég mun halda upp á daginn með því að vinna smá skreppa í ræktina og taka svo á móti fjölskyldunni í kaffisamsæti í tilefni dagsins. Megið þið öll eiga góðan dag.


mbl.is 1. maí fagnað um land allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara einu sinni!

Það er bara einu sinni  í minningunni sem að ég man eftir snjó a fyrsta maí hér í Eyjum. Þann 1. maí tókum við Týrarar alltaf á móti Þórurum á gamla malavellinum í tilefni af afmælisdegi Týs sem er i dag. Man að einhverju sinni þegar við áttum að spila ða þá hafði snjóað kvöldið áður og um nóttina en samt engin ósköp - það hvarf fljótt. Hér í Eyjum núna er smá þoka sem er að því er virðist að lyfta sér og hér stefnir allt í góðan dag.
mbl.is Vetrarfærð í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er þetta eiginlega?

Það er alþekkt í hinum norræna knattspyrnuheimi að það hafi snjóað daginn/dagana  fyrir leik. Menn takast bara á við málið þegar á hólminn er komið og hafa ekki hlotið neinn skaða af.

Komum okkur í gírinn - mótið er að byrja. Það þýðir ekkert að fara á taugum við nokkrar snjóflygsur Smile


mbl.is Snævi þakinn völlur á Hlíðarenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að orka tvímælis!!

Sérstakt þegar fýrar eins og þessi piltur talar um að eitthvað orkar tvímælis. Hann á ekki að vera tjá sig með þessum hætti með þann feril á bakinu sem hann er með. Þar er svo margt sem orkar tvímælis að maður á ekki orð.   ...já get ekki að því gert en Björgvin G. er enn á svarta listanum hjá mér.
mbl.is Segir málið á forræði þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.