Bændur alveg úti á túni

Sjaldan eða jafnvel aldrei hefur það átt eins vel við að bændur séu alveg úti á túni þegar að einhverju máli öðru en heyskap kemur.

Hélt bara að bændur væru betur gefnir en þetta. Vilja væntanelga tollfrjálsan útflutning en ekki innflutning. Það er nú svona kommúnistabragur á þessu það verð ég að segja.

Þetta með trúnaðarbrestinn er svo allt annað mál.


mbl.is Óþolandi að trúnaður sé rofinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennustigið í Eyjum óbærilegt...

.....maður hættir sér varla út úr húsi eftir dráttinn í dag. Leikmenn ÍBV2 sem hafa að því er mér hefur sýnst verið ansi duglegir að æfa síðustu misseri eru nú komnir úr felum og eru að hrista ærlega upp í bæjarbúum. Leikmenn ÍBV hafa þurft að flýja undan fólki sem hefur hraunað yfir þá á förnum vegi í boði ÍBV2  ...vona að menn úr ÍBV2 mæti ekki í ræktina næstu daga meðan hlutirnir róast!!!
mbl.is Landsliðsþjálfarar mætast í bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert minna en stórsigur

Ótrúlega góður sigur hjá Suns gegn Portland. Stærsti munurinn kannski sá að bekkurinn hjá Suns gerði 43 stig en bekkurinn hjá Portland aðeins 13 - 6 leikmenn í hvoru tilfelli.

Gortat að vanda, nú orðið, sterkasti hlekkurinn í Suns liðinu. Markieff Morris líka að stykjast á sínu öðru ári. Goran Dragic sífellt að bæta sig sem arftaki Steve Nash. Gamla kempan John O'Neal kom inn af bekknum og gerði 17 stig, en hann er nú á sínu 16 ári í bransanum.


mbl.is Félagsmet féllu hjá Indiana Pacers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl er þetta endalaust

Er alveg hættur að skilja þessa "einangrunarsinna". Hvað væll er þetta um endalausar undanþágur frá þessu eða hinu? Annað hvort ætla menn að takast á við að vera meðlimir að sambandinu eða ekki. Jújú ákveðin aðlögun er leyfð, sem er eðlilegt. En af hverju alltaf þessir væll um varanelgar undanþágur?

Ætli ég geti sótt um varanlegar undanþágur frá skattalögum á Íslandi? eða frá umferðar eða hegningarlögum? Held ekki, veit ekki einu sinni hvort ég fæ aðlögunartíma.

Annan daginn láta þessir háu herrar eins og við séum Guðs útvalda þjóð og hér sé allt mest og best en svo þegar kemur að svona þá gengur allt út á einhvern væl um varanlegar undanþágur!!! Til hvers. Það verður ekkert mál fyrir okkur að aðlaga okkur aðstæðum þarna verði niðurstaðan sú að við göngum þarna inn en það á þjóðin eftir að ákveða, þ.e.a.s. ef að menn leyfa mönnum að klára samningaferlið.


mbl.is Engar varanlegar undanþágur í boði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...eins dauði er annars brauð!!!!!

Ömurlegt að heyra af meiðslum Arnórs en ánægjulegt að heyra af tækifærinu sem Ólafur fær .....hefði samt alveg viljað hafa þetta á annan hátt!!!!  Drullu-skítt að hafa Arnór ekki með landsliðinu á næstunni, en það verður gaman að sjá hvernig Ólafi tekst að nýta sér þetta tækifæri.
mbl.is Ólafur: Var ekki hægt að hafna þessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...ja hérna hér

Verð nú að segja að þetta kemur mér pínu á óvart. Lítur eiginlega út eins og að það að bjóða Di Matteo þessa framlengingu í starfi hafi bara verið til að þóknast stuðningsmönnum sem voru ángæðir með afrek hans á síðasta tímabili.  Verður fróðlegt að sjá hver treystir sér næst í gálgann á Stamford Bridge.  ........er Mourinho að snúa aftur!!!!
mbl.is Roberto Di Matteo rekinn frá Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er oft svo dapurt

Skil ekki af hverju það á að vera harla óvenjulegt að þurfa að taka undir með þingmanni þó hann sé ekki í sama flokki - það er engin skylda að vera á móti öllu sem aðrir en samflokksmenn segja. Ég tek undir með þeim báðum af hverju að vera að breyta þegar vel gengur? Held að það séu miklu miklu fleiri mál sem gætu fengið svona þvert á flokka samstöðu heldur en vð höfum fengið að sjá. 

En ég vona að Jón Gnarr reddi þessu eins og ýmsu öðru. Það er sífellt að koma betur og betur í ljós að borgarbúar voru heppnir að fá hann sem borgarstjóra.
mbl.is Rangt að breyta því sem reynst hefur vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

..ja hérna hér

Er nú eiginlega orðlaus eftir þessi ummæli er ekki að fatta hvert þingmaðurinn er að fara. Kannski best að hann fari ekki neitt heldur haldi sig heima. Sorglegt að láta hafa svona eftir sér þegar um er að ræða einn helsta vaxtarbroddinn í íslensku samfélagi.

Það veit ég að það eru allir velkomnir til Eyja. Hvort sem það ert þú eða einhver annar aðili.


mbl.is Ást Íslendinga á ferðamönnum að minnka?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður vetur framundan.......

Þetta virðist ætla að verða góður vetur hjá piltunum úr Stykkishólmi. Alltaf gaman að fá góðar fréttir að vestan. Alltaf gott að ná í undanúrslit, þó úrslitaleikur og sigur þar séu náttúrulega alltaf markmiðið.  ...Áfram Snæfell
mbl.is Snæfell og Grindavík í undanúrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl er þetta!!!

Þetta lið er nánast alveg hætt að vera hægt. Árangur síðustu ára er ótrúlegur og það virðist ekkert lát vera á. Jafnteflið var heimaleikur gegn Real Madrid - í mögnuðum leik. Skondið samt að einhvern vegin heldur maður að annað hvort Real Madrid eða Barcelona hafi byrjað svona vel í deildinni hér á árum áður þegar þau voru yfirburðalið í deildinni, hvort á sínum tíma, en svona er þetta skrýtið.

Magnað lið þetta lið Barcelona, og ekki skemmir að hafa leikmann eins og Messi í liðinu! ....það verður einhversstaðar fagnað vel þegar fyrsti deildarleikurinn tapast!!

...en svo er nú Man City taplaust í ensku úrvalsdeildinni - það er ekki lítið afrek heldur, en samt eiga þeir langt í land:
Games without a loss
Most consecutive league games without a loss: 49, Arsenal (Premier League, 7 May 2003 to 24 October 2004)
Most consecutive league games without a loss at home: 86, Chelsea (Premier League, 20 March 2004 to 26 October 2008)
Most consecutive league games without a loss away: 27, Arsenal (Premier League, 5 April 2003 to 25 September 2004)


mbl.is Messi með tvö og Barcelona setti met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt...

....að sjá ekki Björgvin G falla neðar á listanum. Einn af hrunstjórunum marg umræddu. Mikið hefði ég viljað sjá hann kasta inn handklæðinu fyrir síðustu kosningar en það gerðist ekki, því miður, og nú heldur hann væntanelga að allt sé gleymt. Fyrir mína parta er ég kátur með að hann er ekki í fyrsta sæti en er ekki sáttur við að sjá hann í öðru sæti!!!!
mbl.is „Þetta var varnarbarátta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtileg nýbreytni

Finnst þetta hið besta mál hjá stjórn Fram. Leikmaðurinn er óánægður og af því vita allir innan félagsins og engin lausn í sjónmáli, hlýtur að vera. Er þá ekki bara hið besta mál að setja manninn á sölulista. gera ðrum ljóst að strákurinn er falur ef menn setja sig í samband við stjórn Fram. Er alveg viss um að við eigum eftir að sjá meira af þessu í framtíðinni. Menn þurfa ekkert að vera í hinum landsfrægu reykfylltu bakherbergjum til að koma höndum yfir Hlyn Atla. Menn setja sig bara í samband við stjórn Fram.
mbl.is Fram auglýsir Hlyn Atla til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mávarnir komnir á flug

Eftir klúðursvikur um daginn virðast mávarnir mínir vera að takast á loft á ný. Komnir í 6 sætið og sigurinn gegn Huddersfield í dag á útivelli gríðarlega mikilvægur. Will Buckley var í ham í fyrri hálfleik þar sem mínir menn léku mjög vel. Seinni hálfleikur ekki eins góður en sigur vannst og það er fyrir öllu.

Trúi því að úrslitin í þessri deild munu ekki ráðast fyrr en í síðustu umferð. Vonandi verða mávarnir frá Brighton en á flugi þá.


mbl.is Cardiff vann toppslaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband