12.12.12. springur allt í loft

Þetta verður áfram þessi viðbjóður sem nú er þarna á Gazasvæðinu allt þar til 12 des. þá springur allt í loft upp með hörmulegum afleiðingum - ekki það að þetta sé ekki nógu slæmt eins og það er.

Sorglegt þetta ástand þarna endalaust. Ótrúlegt í raun að ekki skuli hægt að stilla til friðar á svæði þar sem pottþétt mikill meirihluti íbúa vill búa við frið. Hvað haldið þið að fólk vilji frekar en að geta átt friðsæla daga alla daga?


mbl.is Fyrirskipaði aðstoð til Palestínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bo er madurinn!

Skemmtilegur fýr Bo. Tò ekki hafa gengid sem best hja honum tegar hann var hjá okkur í IBV tá var alltaf stud í kringum hann. Tad var lika andskoti gaman ad spjallad vid hann um fòtbolta sem og um farinn og veginn. Verdi adeins í honum tegar hann var ad byrja tjálfaraferilinn en hefur ekkert heyrt lengi ensvo mikid er vist ad hann veit hvad hann singer í tudrusparkinu og tví er tví tengist.
mbl.is Bo Henriksen til Sarpsborg?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suarez á förum?

Ætli skiptin verði Luis Suárez til City og Balotelli og annar leikmaður og peningur til Liverpool? Það skyldi þó ekki vera að það yrði niðurstaðan!  Er nú samt á því að Luis verði hjá Liverpool út tímabilið. Verði það eins magurt og  margt virðist benda til þá fer hann næsta sumar. Þá mæta hákarlarnir með seðlaveskin!!!

Suárez er minn maður og því vona ég umfram allt að honum gangi sem best.


mbl.is Rodgers: Suárez fer ekki fet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

en Y?

spurning hvort fólk á að fara að láta að reyna á hvort að það má skíra börnin sín með einum bókstaf sem fyrsta nafn, eða sem millinöfn.
mbl.is Má ekki heita X
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstök yfirlýsing

Til hvers að vera með yfirlýsingu um þetta? Leikmaðurinn fór annað og Blikar greinilega vel sáttir við það fyrst þeir buðu honum ekki einu sinni samning, já virðast ekki hafa nema rétt imprað á þessum möguleikum við leikmanninn, ekkert formlegt.

Til hvers að vera að reyna að blása upp storm í tebolla?

Hann fór í Fylki allt annað er aukaatriði.


mbl.is Breiðablik: Bundum enda á viðræður við Tryggva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á eina........

.......og á henni hvílir lán frá Íbúðalánasjóði - vúhú
mbl.is Íbúðalánasjóður á 2.155 íbúðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....lýst vel á þetta

Ingólfur er með þetta. En spurningin er hvort að mann vanti ekki orku eftir æfinguna, og skelli sér þá í nammið!!!!!
mbl.is Slepptu namminu og gerðu þessa æfingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá honum

Vel gert hjá Gunnlaugi Snæ. Auðvitað á að gera þetta svona. Það sem er í raun sérstakt við þetta er að hann skuli vera að skora á aðra frambjóðendur að gera slíkt hið sama. Þess á ekki að þurfa. Þeir sem eru í framboði - sama hvar í flokki þeir standa - eiga náttúrulega að skila svona inn hafi þeir einhverja sómatilfinningu.  ....veður gaman að sjá hvort aðrir fylgi ekki í kjölfarið.  Hvort menn koma svo heiðarlega fram við uppgjörin get ég ekkert dæmt um, en maður hlýtur að eiga að geta treyst þessu fólki - ekki satt!!!!
mbl.is Skorar á frambjóðendur að skila uppgjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki grín?

Eru menn ekki að grínast með þetta? Fékk Bjarni virkilega ekki nema rétt rúmlega helmings stuðning? Þetta hljóta að vera honum vonbrigði þó svo að hann muni segja í viðtölum að hann sé sáttur. Að vera formaður flokksins og ná ekki yfir 80% er náttúrulega ekki gott. Það er ekki nema hann sjái einhvern vafning út úr þessu sem við hin sjáum ekki sem geti útskýrt þessa niðurstöðu.
mbl.is Bjarni með 54% atkvæða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýst vel á Villa

Það verð ég að segja að ég er ánægður með að sjá Villa ánægðan. En verð að segja að það er undarleg hjörð sem velur Jón Gunnarsson fram yfir Vilhjálm Bjarnason. Á reyndar bara bágt með að trúa því að það hafi gerst. Ánægður með að sjá Ragnheiði vinkonu mína taka annað sætið.
Óli Björn býður þarna afhroð held ég að ég verði að segja. Hef svo sem enga skoðuna á honum eða öðrum þarna sem é ghef ekki minnst á. Finnst reyndar Bjarni hafa dalað en hann er nú formaðurinn, þó orðsporið sem honum fylgir sé honum ekki til tekna á almennum vettvangi.
mbl.is „Þetta er minn persónulegi sigur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einn einangrunarsinninn

Þetta er að verða skrýtin hjörð þessi SJálfstæðisflokkur. Hér kemur enn einn einangrunar og hagsmunagæslumaðurinn fyrir þá sem hæsta styrkina fá úr ríkiskassanum. Svei mér þá ef gjáin á milli ákveðinna VG-liða og sjalla er ekki bara horfin.  Þetta að segjast vera landsbyggðarmaður og vera svo einarður andstæðingur ESB fer náttúrulega bara engan veginn saman -  svo einfallt er það. En að vera hagsmunagæslumaður fyrir ákveðin hóp og andstæðingur ESB er líklegra til að ganga saman.  Verð samt að segja að það er slæmt ef formaður Bændasamtakanna sér ekki tækifæri síns fólks innan ESB.
mbl.is Fyrst og fremst landsbyggðarmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir mig

Mig langar nú bara að þakka Guðmundi fyrir hans tíma hjá ÍBV. Sprækur strákur með gott hugarfar og hefuir bærtt sig mikið síðan hann kom. Hann féll vel inn í samfélagið, naut virðingar, gaf af sér góðan þokka og bar virðingu fyrir samfélaginu. Það hafa ekki allir sem hingað hafa komið borið gæfu til þess að koma svona fram. Vona að honum gangi vel á nýjum slóðum og hann haldi áfram að bæta sig sem leikmaður. Ég er ekki alveg eins viss um þetta lið, Sarpsborg, en vona að ég hafi rangt fyrir mér.

Takk fyrir mig/okkur ....kannski kemur sá tími að þú snýrð aftur til landsins og þá verðurðu meira en velkominn í hvíta búninginn..


mbl.is Frágengið hjá Guðmundi og Sarpsborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við vinirnir, ég og Villi

Vilhjálmur, ekki alltaf vinur minn er þarna erum við í sama liði, kemur þarna inn á mikilvægan þátt í framtíð Íslands á meðal þjóða sem tekið er mark á. Það er þessi einangrunarstefna sem hér allt skekur og ákveðnir hagsmunaaðilar fara mikinn í að berja áfram. Það þarf að opna landið fyrir ákveðnum tækifærum sem eru þarna úti. Menn gætu ekki látið svona ef að menn hefðu nú t.d. tilheyrt ESB. Til að komast á flug þá þurfum við að vera partur af stærri einingu, ég fer ekki ofan af því. Við þurfum sterkt regluverk og festu í eftirliti og viðskiptum, viðráðanlegar álögur á fólk og fyrirtæki. Við þurfum ekki nýtt loftbóluhagkerfi eins og hér var keyrt áfram fyrir nokkrum árum en við þurfum heldur ekki þessa einangrunarstefnu sem svo margir virðast orðið aðhyllast. Við þurfum líka ða sjá til þess að við verðum ekki áfram það láglaunasvæði sem við á margan hátt erum. Ætlum við að vera í hópi þeirra fremstu á meðal jafningja þá þurfum við beint óheft tollalaust aðgengi að stærra markaðssvæði. Það mun koma okkur öllum til góða, hvort sem um er að ræða fyrirtæki, heimili eða einstaklinga.
mbl.is Segir Ísland nyrsta Afríkuríkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband