Færsluflokkur: Pepsi-deildin
22.8.2010 | 20:10
Slakt
![]() |
Grindvíkingar unnu toppliðið í Eyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.8.2010 | 17:10
Leiðnda rok í Eyjum
![]() |
Nær ÍBV fimm stiga forystu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.8.2010 | 13:41
Er það?
Eru menn vissir um að þetta sé svo erfið ákvörðun? Er næsta viss að hann hefur ekki áhuga á að far atil Póllands að svo stöddu og því þarf að koma eitthvað frá stærri deild eða Sterkt lið í Skandinavíu til að hreyfa við honum. Reyndar er ég nú viss um að það myndi reynast honum vel að byrja aðeins neðar ekki endilega ofarlega. Fara í lið þar sem að maður á næsta öruggt sæti og spila vel þar það hlýtur að vera draumurinn, fleyta sér svo áfram á þann hátt. Það hefur skaðað margan piltinn að ætla sér um of í upphafi. Við megum ekki gleyma að íslenska deildin er ekki sterk á alþjóðlegan mælikvarða og sennilegast ein af 5 slökustu efstu deildum í Evrópu og lakari en margar næst efstu deildir á sama svæði. En hann hefur menn eins og Óla Kristjáns til að spyrja spurninga um ferlið. Þessi menn sem standa félaginu næst hljóta að ráða pilti heilt.
Svo getur líka farið svo að Blikar tapi næstu tveimur leikjum og ÍBV vinni sína og þá er nú útlitið ekki bjart hjá Blikum, en svo getur það líka farið á hinn veginn og þá er staðan allt önnur Hvað sem þessu öllu líður þá erum við að tala um besta leikmann deildarinnar í sumar, ja allavega einn af þeim 5 bestu klárlega.
![]() |
Alfreð gæti staðið frammi fyrir erfiðri ákvörðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.8.2010 | 21:51
Rugl er þetta
Eyjamenn nældu í stig!!!!
Rugl er þetta hjá blaðamanni. Eyjamenn komust yfir og því voru það hinir sem nældu í stig. Það getur vel verið að hinir grænu hafi sett pressu á mína menn en hún skilaði engu og því voru það sem nældu í stigið en ekki við. Þið ráðið hvernig þið lesið þetta en mér finnst þetta bara döpur fyrirsögn - sorry - og reyndar ekki í fyrsta sinn í sumar.
Jújú auðvitað eru það Eyjamenn sem komið hafa allra liða mest á óvart í sumar, það er enginn vafi á því og ég hef sagt við Heimi njótum þess að það er ekki fjallað um okkur sem "liðið-óskabarn blaðamanna" en það eru takmörk. Auðvitað á maður að vera sáttur við að pressan er sett á lið eins og lið Blika, FH og KR en maður væntir þess samt að fá réttmætar fyrirsagnir og umfjöllun. Svei mér þá ef menn eru ekki farnir að virka í lestri eins og rödd anti-eyjamannsins Hödda Magg.
Vá hvað ég hélt að ég yrði ekki svona pirraður við að sjá þessa fyrirsögn, en svona er þetta.
Hvað sem því líður þá eru Eyjamenn en efstir - því fagna ég - best að njóta þess maður veit aldrei hvenær fjarar undan liðinu sem að maður heldur með. Til hamingju með þetta í kvöld peyjar og þakkir til ykkar allra sem fóruð á leikinn - hjátrúin hélt mér heima
Áfram ÍBV alltaf allsstaðar og svo frv.
![]() |
Eyjamenn nældu í stig á Kópavogsvellinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.8.2010 | 12:52
Það þýðir ekkert....
...elsku mamma í kvöld peyjar mínir.
Nú verða menn að mæta á Kópavogsvöll vel girtir og með hjartað á réttum stað. Það dugar ekkert minna en að leggja sig 110% í verkið, allt annað gæti valdið miklu tjóni í stigasöfnun liðsins í sumar. Það er slæmt þegar það kemur gat á pokann þegar aðeins vantar nokkur stig til að fylla hann.
Áfram ÍBV .....alltaf allstaðar og um alla eilífð
![]() |
Andri: Erum svo sannarlega klárir í slaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2010 | 08:12
Vælubíllinn.......
...mun fara um Vesturbæinn á heila og hálfa tímanum í dag og bjóða þeim hjálp er á þurfa að halda!!! Rauði krossinn hefur þegar opnað starfsstöðvar sínar um allt land og tekur á móti vasaklútum til kl. 1700 í dag en eftir það verður þeim dreift í Frostaskjólinu fólki að kostnaðarlausu.
Það þýðir ekkert fyrir Rúnar að ætla að dvelja við þennan leik fram eftir hausti því KR-ingar eiga en séns á Evrópusæti í deildinni og því þarf að halda einbeitningu. Hans hlutverk nú er að rífa menn á lappir og koma þeim í gang. Það er heimaleikur gegn Fram á fimmtudag, útileikur gegn Val á mánudag og svo útileikur gegn Fylki fimmtudaginn þar á eftir, þessi frestaði leikur. Síðan mánudaginn eftir það, þann þrítugasta fá menn Fimleikafélagið í Frostaskjólið. Síðan kemur landsleikja frí til 12. sept en þá koma KR-ingar til Eyja. Hlakka til að fá þá hingað, enda alltaf gaman þegar þeir koma til Eyja.
![]() |
Rúnar: Of margir léku undir getu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2010 | 08:02
Er nokkuð viss um......
![]() |
Heimir: Hafði mjög góða tilfinningu fyrir þessum leik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2010 | 20:29
Ekkert að frétta í Vesturbænum?
FH með öll mörkin og öll spjöldin. Nú verð ég að spyrja eins og fávís kona var ekkert í gangi hjá KR-ingum? Maður náttúrulega sá ekki leikinn þegar markaðssetningar snillingarnir sem sjá um keppnina seldu réttinn á þann hátt að það mætti sýna hann í læstri dagskrá - það finnst mér ótrúlegt, stærsti leikur sumarsins (sögðu leikmenn) en það fá ekki allir að sjá - grín.
Nú getur svo farið að KR nái ekki einu sinni í Evrópusæti, þó vonin sé alls ekki úti en, og það verður einhver undir balance þá í bókhaldinu er ég hræddur um. Að þessu sögðu er samt rétt að benda á að að mínu mati er KR-liðið besta liðið sem komið hefur til Eyja í sumar - trúi því ekki að það hafi verið svona "one off" leikur!!!
Sérstakt líka hvað menn voru langt langt frá áhorefndametinu. Metinu sem menn hafa verið að tönglast á alla vikuna hægri vinstri. Þetta eru 2 stærstu lið landsins og áhuginn ekki meiri en þetta, það þykir mér ekki nógu gott og þeim hjá KSÍ og fjölmiðlunum hlýtur að þykja það afleitt því þeir réru að því öllum árum alla vikuna að þetta yrði met. Vantaði aðeins rétt tæplega 2000 áhorfendur!!!!
En vil óska Fimleikafélaginu til hamingju með bikarinn - miðað við úrslitin þá eru þeir klárlega vel að sigrinum komnir. Til hamingju Gunni Sig. og félagar.
![]() |
FH bikarmeistari karla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
12.8.2010 | 15:02
Frábær auglýsing....
....fyrir boltann að bikarútrslitaleikurinn skuli sýndur í læstri dagskrá - flott hugdetta - NOT. Veit ekki kannski eykur það aðsóknina? EN hafði haldið að auglýsendur og styrktaraðilar keppninnar færu fram á að svona leikur, sem myndi pottþétt fá mun meira áhorf í opinni dagskrá en lokaðri, yrði sýndur þannig að allir gætu séð en það er því miður ekki raunin.
En að leiknum sjálfum að þá getur vel farið svo þessi leikur sé síðasta tækifæri beggja liða til að tryggja sér þátttökurétt í Evrópukeppni að ári. Auðvitað eiga bæði lið en séns í deildinni e...... það er ekkert gefið. Þetta eru svennielgast 2 dýrustu lið mótsins í ár, eins og undanfarin ár og því afar mikilvægt að ná sæti í Evrópukeppni til þess að fá góðan bónus í kassann. Hvað sem þessum pælingum líður þá vona ég að fólk fái að sjá skemmtilegan leik.
![]() |
Aðsóknarmet slegið á laugardaginn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2010 | 18:31
1 leikur - 3 lið
Mikið var nú gott að fá þessi 3 stig í dag. Hefði ekkert verið ósanngjarnt að Haukarnir hefðu verið yfir í hálfelik þeir voru mun skæðari í fyrri hálfleik og liðÍBV hálf andlaust nema kannski síðustu 7-8 mínúturnar. Reyndar áttum við skalla í slá í upphafi leiks frá Andra Ólafs, en eftir það fór lítið fyrir honum sem og mörgum leikmönnum ÍBV liðsins. En í hálfleik tóku Eyjamenn greinilega lýsið sitt og það var allt annað að sjá til liðsins í seinni hálfleik, munskæðari og verðskulduðu ða komast yfir og vinna leikinn en Haukarnir gáfust þó aldrei upp, eitthvað annað en hitt KFUM liðið þegar þeir voru hérna um daginn.
Maður er eiginlega hættur að kippa sér upp við að menn séu lakari aðilinn í fyrri hálfeik svo algengt er þetta orðið. Alltaf virðast lýsistöflurnar í hálfleik gera sitt gagn, ja nema gegn Fimleikafélaginu, þær virkuðu seint, en þó, gegn Keflavík og Fram. Gaman að sjá innkomu Danien Justin, 2 kvikindi í dag eftir að hafa komið inn á en hann byrjaði gegn FH og það hentaði honum greinilega ekki, var slakur. Nú er hann búinn að koma inná 4 sinnum og gera 3 mörk - flott hjá honum.
Haukaliðið er ekki slakasta liðið sem komið hefur á Hásteinsvöll í sumar þeir voru skæðari en Fylkir, Selfoss og Valur (yfir 90 mínúturnar) ekki langt frá Keflvíkingum og Blikum miðað við þá leiki sem að ég hef séð. Sá ekki Fram leikinn.
Þá er liðið aftur komið í efsta sæti og nú þurfa aðrir að elta ÍBV, sem er nú aldeilis þægileg staða. En við eigum græna og káta Kópavogsbúa næst, annan mánudag. Það verður sennilegast bara úrslitaleikurinn í ár!!!! Verður gaman að sjá hvað þeir gera gegn Fimleikafélaginu í kvöld.
Áfram ÍBV alltaf allsstaðar og svo frv........
![]() |
Eyjamenn unnu 3:2 sigur á Haukum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |