Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Kattliðugir unnu sanngjarnt

Fannst nú Fimelikafélagið eiga þetta fyllilega skilið. Við áttum reyndar góð færi í stöðunni 0-0 en eftir að þeir komust yfir fannst mér þetta einhvern veginn alltaf liggja þeirra megin. En við fengumsamt tækifæri til að skora fleiri, en það fengu þeir svo sem líka og því er þetta kannski bara niðurstaðan sem við var að búast.

Margir leikmenn ÍBV virkuðu þungir og þreyttir. Ef það reynist svo að menn ahfi tekið síðustu helgi á fullumkrafti í einhverju fjöri í Dalnumeiga menn að hugsa sinn gang og það alvarlega. Menn eru í einstöku tækifæri til að verða meistarar og ef menn eru ekki tilbúnir að fórna Þjóðhátíð til að grípa tækifærið þá eiga menn heldur ekki að vera að heimta þessi laun sem menn eru að fá fyrir tuðrusparkið. Maður getur ekki bara heimtað og heimtað og ekki ætlað að fórna á móti!!! Það er allavega mín skoðun, en ykkar?

Það er svo sem engin heimsendir við eigum Hauka næst og Blikar eiga FH og því getur allt gerst en þessi töpuðu stig í dag geta orðið dýrmæt þegar uppi er staðið sama hvort um er að ræða titilinn eða Evrópusæti - vonandi verða menn búnir að hrista sig í gang á sunnudaginn.


mbl.is Fyrsta tap ÍBV á heimavelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kattliðugir

Þeir mæta sprækir til leiks í kvöld á Hásteinvelli kattliðugir leikmenn Fimleikafélags Hafnarfjarðar. Stærsti leikur sumarsins það sem af er í Eyjum. Með sigri geta Eyjamenn skotið FH vel aftur fyrir sig en sigri FH-ingar þá eru þeir komnir hættulega nálægt toppliðum Breiðabliks og ÍBV en FH-ingar mæta svo Blikum í næstu umferð á heimavelli.

Ég hef nú ekki veriðbjartsýnn fyrir leiki ÍBV á Hásteinsvelli í sumar og ekki batnar það í kvöld þegar Heimir Guðjóns mætir með sinn hóp til leiks þar sem innanborðs eru margir snjallir leikmenn sem geta vel stolið senunni á góðum degi. Vona því að mínir menn komi í betri gír til leiks í kvöld en gegn Valsmönnum í síðasta leik. Er ekki viss um að það gangi gegn FH að spila bara vel í 45 mínútur, ef svo er þá hefur Fimleikafélagið tapað öllum sínum sjarma.


mbl.is „Þetta er átján stiga leikur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Blikum - Valsmenn dottnir af baki

Flottur sigur hjá Blikum - hreinlega bara upprúllun svo ekki sé meira sagt. Ef minnið er ekki að svíkja mig þá hafa Valsmenn ekki unnið leik síðan um Sjómannadag! Ætli þeir hafi verið jafn andlausir þarna og um daginn þegar þeir fengu á sig mark hér í Eyjum? Eftir jöfnunarmark ÍBV voru þeir hvorki hjón né ljón heldur eins og andlaus leikskólabörn. Valsmenn eru því úr leik um Evrópusæti þetta árið.

Flottur sigur Blika og ef að ÍBV vinnur FH á morgun þá verður þetta í besta falli tveggja hesta reið til loka það er næsta víst. Blikar mæta Eyjamönnum í Kópavogi þann 16. ágúst n.k..  

Tilhamingju með þennan sigur Óli og lærisveinar.    ...já og til hamingju Hannes trymbill í Buffinu


mbl.is Breiðablik á toppinn með stórsigri á Val
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju.......Karl Gauti!!!

Set þessa fyrirsögn þar sem blessaður sýslumaðurinn kvaddi mig í hálfleik, þegar staðan var 0-1 að við myndum vinna 3-1....og karlinn reyndist svo sannarlega sannspár.

Leikurinn var nú ekkert spes framan af sérstakelga af hálfu minna manna og þeir máttu þakka fyrir að vera ekki 2 eða 3 núll undir hálfleik (veit að Karl Gauti er ekki sammála þessu) . Valsmenn tættu okkur í sig sérstaklega megnið af síðustu c.a. 15-20 mín í fyrri hálfleik. - En mark Valsmanna var fallegt skot sem fór af varnarveggnum og sveif í vinkilinn fjær. - Fyrri hálfleikurinn var ekki góður af hálfu ÍBV.

Síðan gerðust hlutirnirí upphafi seinni hálfleik. Heimir gerði tvær skiptingar Setti þá Danien Warren og Ásgeir Aron inná og það hafði góð áhrif á leikinn. Danien skoraði gullfallegt mark - vægast sagt - síðan skoraði Tryggvi Guð - gullfallegt mark en mér sýndist Kjartan líka eitthvað misreikna hann, enhef ekki séð endursýningu. Svo fengum við víti sem nýtt var, snyrtilega. Valsmenn náðu smá pressu í lokin en höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að Yngvi Bor var kominn inná.

Eins og Valsmenn áttu skilið að vera yfir í hálfleik áttum við skilið að vinna seinni hálfleikinn o gheilt yfir áttum við þetta alveg skilið. En eins og Valsmenn léku á köflum í fyrri hálfleik þá er það það besta sem aðkomulið hefur sýnt hér í sumar (við vorum reyndar líka slakir) en leikurinn er 90 mínútur og því hafa KR-ingar en vinninginn sem besta aðkomuliðið það sem af er sumri.

Verð að hrósa Heimi sérstaklega fyrir góðar skiptingar í dag og að ná að hella einhverju íteið í hálfleik hjá strákunum því ekki var útlið gott miðað við síðustu 20 í fyrri.  Heilt yfir fannst mér Garner og Tonny góðir í dag, allan leikinn, en aðrir uxu er á leið.

Áfram ÍBV alltaf alls staðar.....


mbl.is Tryggvi tryggði ÍBV sigur á Val
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fengur í pilti

Held að þarna sé Gummi Ben að gera ágætis "kaup". Sprækur strákur sem gæti átt eftir að reynast góður styrkur fyrir fyrir Selfyssinga og þeirra baráttu fyrir tilveru rétti sínum i deildinni. Ég hélt reyndar að menn myndu elta einhverja reynslubolta til að henda inn í liðið og koma jafnvægi á hlutina og fríska upp á andann en svo virðist ekki vera. æEg hef reyndar alltaf verið hrifinn af því ða gefa ungum leikmönnum tækifæri en það verður að vera í bland við reynslu meiri menn sem hjálpa þeim sem yngri eru að fóta sig. En ég vona að þessi "kaup" Selfyssinga síðustu daga skili sér í stigum. Velti því en fyrir mér hvort Gummi ætli að spila eitthvað sjálfur!
mbl.is Viktor Unnar í raðir Selfyssinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að bjarga andlitinu

Þessi leikur snýst um stolt eins og Heimir segir svo réttilega. FH-ingar hafa tækifæri á að bæta fyrir slæmt tap í Hvíta-Rússlandi með því að vinna í kvöld. Hef enga trú á öðru en að menn vilji bæta fyrir slæmt tap á útivelli.

Annars finnst mér hafa verið áberandi þetta tímabilið að það er þungt yfir Heimi Guðjóns og mér finnst hann standa mikið í því að hnýta í leikmenn sína í viðtölum. Ekki mættir til leiks, ekki að berjast, áttum ekkert skilið, bara slakir og svo framvegis. Mér hefur fundist Heimir þarna vera alveg úr karakter og velti því því fyrir mér hvað veldur og hvort þungur Heimir og þessar eilífu skammir séu ekki partur af því að FH-liðið nær sér ekki alveg á flug. Reyndar er nú liðið líka ekki eins sterkt og oft áður og það tekur örugglega á að þjálfa lið sem hefur flugið yfir öðrum undanfarin ár og sjá það svo allt í einu bara í sömu hæð og önnur lið. En það má samt ekki horfa framhjá því að þeir eru í undanúrslitum í bikar og í efri hluta deildarinnar - kröfurnar kannski bara orðnar of miklar hjá manni? - sem verður að teljast skrýtið þar sem þetta er ekki einu sinni mitt lið!!!


mbl.is Leikurinn snýst fyrst og fremst um stolt FH-inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært bú!!!!

Ekki er ég hissa þó Rúnar segist vera að taka við frábæru búi. Hefur hann ekki verið innkaupastjóri hjá félaginu síðustu misseri? Þetta er sem sagt Loga að kenna að ekki tókst að kreista meira út úr liðinu. Nú er bara að vona að Rúnar, og Pétur (báðir fyrrum meðreiðarsveinar Loga) geri betur, fyrir hönd KR-inga þ.e.a.s.. Hlakka til að sjá hvort liðið stökkbreytist og fljúgi upp töfluna. Svo eru þeir náttúruelga að fara í undanúrslit í bikar svo en er  góð von um Evrópusæti að ári. Þó svo að þeir séu neðarlega á tölfunni þessa stundina KRingar þá hefur deildin verið að spilast undarlega og því gætu nokkrir góðir leikir hjá KR komið þeim alveg við toppinn.
mbl.is „Ég tek við frábæru búi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áttar sig ekki heldur á......

..að menn hans hafa verið hálf utangátta í sumar ídeildinni og menn hljóta að horfa til hans að miklu leyti þegar liðið virðist koma á hælunum til leiks. Tala nú ekki þum þegar menn eru að tala um dýrasta liðið og og dýrustu umgjörðina. Þá hljóta menn að spyrja sig spurnnga. Meira að segja ég er orðinn hissa á hversu illa þessu liði gengur að komast í gang í deildinni. Því þetta er besta liðið sem hingað hefur komi í sumar, en það var í bikarnum.


mbl.is Áttuðum okkur ekki á því að Haukar spila ágætis fótbolta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valsmenn léttir í lund

Næstu gestir á Hásteinsvelli verða lærisveinar Gulla Jóns - hlakka til að sjá það fyrst ég missti af þessum góða sigri í gær. Menn fara varla að klúðra síðasta leik fyrir Þjóðhátíð!
mbl.is ÍBV á toppinn eftir sigur á Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað með......

....Gumma meistara Ben?  Ég var svo viss um að ég myndi sjá hann í Selfossbúningnum í sumar. Ætli það komi til með að ganga eftir? En gott að Nágrannar okkar Eyjamanna ætli að styrkja sig það væri synd að sjá þá falla þó ég sé reyndar þeirrar skoðunnar að mannskapurinn sem þarna er gæti alveg haldið liðinu upp ef menn halda haus. Hlakka til að sjá þessi viðbót og hvað hún mun gera fyrir liðið.
mbl.is Selfyssingar semja við þrjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband