Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Nú er bara einni spurningu ósvarað!

Hvaða liði mæta Eyjastúlkur í úrslitaleiknum Val eða KA/Þór?
mbl.is ÍBV fékk Stjörnuna á heimavelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnuleyfi og framtíðin

Hvernig er með atvinnuleyfi ef menn ætla að krækja í Afríkumenn? Það er nú ekki sjálfgefið að þeir fái atvinuleyfi 1, 2 og 3. - Ja ekki nema að þeir séu með 2 vegabréf og geti framvísað evrópsku vegabréfi. Það tók nú stundum ansi góðan tíma að fá atvinnueyfi fyrir Afríkumennina hér í Eyjum. Já sem og Ameríkanana.

Veit ekki hvað ykkur finnst mér finnst að Selfoss eigi ekki að taka meira en einn leikmann. Klára tímabilið. Ganga frá samningum strax svo allir séu pottþétt áfram. Fari svo að liðið falli, sem getur gerst, þá verða þeir pottþétt sterkasta liðið í deildinni fyrir neðan og verða komnir upp 2012. Allt áfram byggt upp á heimamönnum. Hvernig líst fólki á þessa hugmynd?


mbl.is Hópur til reynslu á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál

Pilturinn hefur verið að spila fantavel fyrir okkur og það er vonandi að hann haldi því áfram nú þegar hann hefur skrifað undir samning til loka næsta tímabils. Kannski að menn búi sér til þá stöðu í sumar að hópurinn fyrir næsta ár verði klár 1. september!!!!!
mbl.is Christiansen samdi við ÍBV út 2011
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hvað skal segja.....jú 3 stig

Þetta var svona leikur sem var frekari mikið í járnum. Sá ekki fyrstu 20 þar sem að ég þurfti upp á flugvöll að sækja hjón nokkur. en eftir að ég kom þá var þetta svona frekar í járnum en við skoruðum frábært skallamark, Andri, eftir hornspyrnu. Keflvíkingar jöfnuðu eftir snarpa pressu undir lok hálfleiksins. Seinni hálfleikur var svo í járnum þar til undir lokin að Keflvíkingar fá dauðafæri og skjóta í stöng. Stuttu síðar eiga Eyjamenn góða sókn og Tonny skýtur í slá, vandaði sig um of, við fengum boltann aftur en skölluðum framhjá. Við héldum pressu áfram. Svo er hérna lýsing á atviki sem mikið á eftir að fjalla um og þetta er mín sýn á það, hef ekki séð það endursýnt, Keflvíkingar fái innkast við miðjan eigin vallarhelming. Tryggvi tekur boltann upp og það virðist eins og hann ætli að taka innkast en Guðjón Árni slær til boltans og Tryggvi kastar sér niður með boltanum. Allt varð vitlaust og eins og ég sá þetta þá hefðu báðir átt að fá gult en Tryggvi slapp en Guðjón ekki og fór í bað eftir það var mikill hiti í mönnum í góða stund en svo var loks hægt að hefja leikinn á ný. Viðpressuðum og svo berst boltinn út fyrir teig og Eiður Aron smellir honum í átt að markinu og mér sýndist hann aðeins fara í Keflvíking og þaðan þeyttist hann í netið. Er samt ekkert viss um að hann hefði farið framhjá hefði hann ekki farið í Keflvíkinginn. Allt truflað 2-1 fyrir okkur - 3 stig í hús - risa knús!!!!

Það getur svo sem vel verið að menn sjá eitthvað annað af þessu atviki þegar það er skoðað í upptökum en þaðan sem ég sat þá fannst okkur er þar sátum að báðir hafi átt að fá gult en dómarinn ræður.  Svo þegar ég skoða hérna skýrsluna eftir á og sé öll spjöldin sem Keflvíkingar fá að þá er ég hissa en á ný virðast dómarar vera frekar hliðhollir hvítabúningnum á Hásteinsvelli. Það er allavega mín tilfinning. Það var ekki þessi mikli meinti brotavilja munur á liðunum. En hversu oft hef ég ekki æst mig yfir því þegar við höfum verið dpjaldaðir í spað af þeim á öllum völlum. James og Andri verða því í banni gegn Fram, en þeir virðast vera vængbrotnir þessa dagana og það er vænlegt fyrir okkur. 


mbl.is Eiður tryggði ÍBV sigur á Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullorðins!

Það stefnir allt í að þetta geti orðið hörkuleikur. Liðin í 2 og 3ja sæti að berjast um að ná sér í betri stöðu fyrir seinni umferðina. Með sigri ná mínir menn fjögurra stiga forskoti á Keflvíkinga, og eru þá ekki með þá alveg ofan í hálsmálinu. Eftir því sem ég veit best þá eru allir heilir hjá Eyjamönnum og liðinu því ekkert að vanbúnaði. Það verður lagt í hann á Hásteinsvelli kl. 19.15 og stefnan ser sett á að í kvöld verði liðið með 3 stigum meira en þegar það sofnaði í gærkvöldi.

Spjaldagrýlan hefur aðeins kíkt við hjá okkur og margir leikmenn á 3 gulum spjöldum og því hætta á því að menn fari að kalla yfir sig leikbönn, Hurst þegar kominn í bann gegn Fram,  og það er þá þegar menn geta misst fótanna þegar leikmannahópar eru ekki stórir. Maður vonar því það besta og að spjöldin verði ekki mörg á næstunni.

Af Keflvíkingunum þá hlakka til að sjá Bjarna Hólm og Jóhann Birni á vellinum í kvöld, slétt sama um alla hina Smile


mbl.is Stórleikur kvöldsins er í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfitt en.....

Þetta virðist ætla að vera gríðarlega erfitt hjá nágrönnum mínum Selfyssingum að hala inn stig í framhaldi af góðri byrjun liðsins í deildinni. Það voru greinilega bara falsvonir sem þá fóru af stað. 6 leikir í röð og ekkert stig. Það þarf heldur betur að hrista það af sér ef ekki á ílla að fara. Gríðarlega mikilvægur leikur hjá þeim næst gegn Grndvíkingum á útivelli. Sigur gefur smá svigrúm til að draga andann en tap gerir það að verkum að Grindavík fer upp fyrir þá og menn þá komnir í fallsæti. Það yrði slæmt. Vonandi hressast leikmenn Selfoss í næstu leikjum.
mbl.is Kristinn kom Blikum á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð úrslit

Ekki get ég sagt að manni leiðist þessi úrslit. Gott að halda báðum þessumliðum fyrir aftan sig, því sterk eru þau svo sannarlega. Við eigum Keflvíkinmga næst á Hásteinsvelli - það verður sem sagt toppslagur og þar gefst okkur möguleiki á að komast 4 stigum á undan þeim. Nú er aðeins spurning um hvernig elikur Blika og Selfyssinga fer. Jú og víst verður forvitnilegt að sjá hvað gerist í slag gömlu stórveldanna Fram og Vals. Bæði lið í toppbaráttunni.
mbl.is Jafntefli hjá Keflavík og FH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð 3 stig

Þetta gengur nú aldeilis vel í boltanum þessa stundina. Ekki amalegt að ná í 3 stig á blessuðu Gúmmíinu í Garðabæ. Komnir aftur í efsta sætið og nú held ég að við ná að halda því lengur en síðast, held nefnilega að hvorki Breiðablik né Keflavík vinni í þessari umferð. 5 heimalieikir í röð framundan, Keflavík, Fram, Valur, FH og Haukar. Ekki útileikur aftur fyrr en 16 ágúst egn Blikum. Það verður gaman að sjá hvað það færir okkur að eiga alla þessa heimaleiki framaf Þjóð´hátíð og svo Hafnarfjarðarliðin í vikunni eftir Þjóðhátíð. Svo læðist að mér sá grunur að ÍBV liðið fái óvæntan liðsstyrk núna þegar glugginn opnast, það verður ekki til að kæta andstæðinga okkar!!!!

En hvað er þeta með öll þessi spjöld í dag? Já eða bara á ÍBV liðið yfirhöguð? Ég sem var að tala um um daginn að dómararnir hefðu verið okkar frekar hliðhollir þetta árið, allavega hér heima.

EN Hurst kominn með 4 gul í deildinni og Andri, Denis, Eiður Aron, Eyþór Helgi, Finnur, Matt Nicholas Paul og Tryggvi allir með 3 - gætu því dottið nokkrir í bann í sama leiknum.


mbl.is Eyjamenn efstir eftir sigur á Stjörnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Standa þétt við bakið á Loga.....

...en hversu lengi í viðbót? Stig úr leik er ekki góður árangur hjá sennilega dýrasta liði landsins. veit ekki hversu lengi geta unnað við slíkan árangur. Mér finnst þetta samt svolítið skrýtið að menn skuli ekki landa fleiri stigum því KR-ingar eru klárlega besta liðið sem komið hefur hingað til Eyja í sumar, en það er víst ekki nóg að spila bara vel í Eyjum.
mbl.is „Stöndum þétt við bakið á Loga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni Jójó ...

...til hamingju með piltana þína. ÍBV næst. Verður gaman að sjá hvað Atli frændi gerir þá já og ekki má gleyma fóstursyni Eyjanna Tryggva Sveini Bjarnasyni - þetta gæti orðið skemmtilegur leikur. Gaman að sjá að Atli hefur komið sterkur inn í leikinn, það gleður mig mjög. Hvet alla til að fjölmenna á Stjörnuvöllinn eftir viku. - Miðasala er þó ekki hafin!!!.

Fimleikafélagið eitthvað andlaust? Ég sem hélt að þeir væru að vakna.


mbl.is Bjarni: Sætasti sigurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.