Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Enginn Suðurlandsskjálfti í kvöld

40 sekúndur liðnar og Eyjamenn komnir í 1-0 með marki Tryggva Guðs. Uppfrá því  var þetta eiginlega aldrei í hættu. nema hvað strákarnir af Suðurlandsundirlendinu byrjuðu seinni hálfleikinn nokkuð vel og pressuðu nokkuð en Eyjapeyjar náðu þremur ágætum sóknum fyrstu 15 mínúturnar og úr þeirri 3ju skoraði Tonny gott mark. Þar með var þetta endanlega búið. Tryggvi setti svo eitt í viðbót áður en honum var skipt útaf - seigur karlinn. Bætti þarna fyrir mislukkaða vítið gegn Vesturbæjarstórveldinu. Ég er alltaf jafn hrifinn af Finni finnst hann búinn að vera frábær í sumar og vonandi heldur hann því áfram. James Hurst lék í kvöld sinn síðasta leik með liðinu á tímabilinu - honum ber að þakka framlag hans framlag til liðsins, ótrúlegt að þetta skuli bara vera 18 ára kvikindi - efnilegur piltur. Áhyggjuefni Eyjamanna er að Tonny fékk spark sem virtist valda snúningi á hné og við því mátti hann ekki eftir þau meiðsli sem að hann varð fyrir í vetur en vonandi hristir hann það af sér. Hann fór reyndar á sjúkrabörum af velli. Liðið lék bara heilt yfir mjög vel og það er gaman að sjá að allir sem einn leggja sig 100% fram, það er enginn að svindla í því verkefni. - Nú er bara að halda haus.

Selfoss liðið olli mér vonbrigðum voru nokkuð slakari en en ég bjóst við. Ég velti því fyrir mér á köflum hvort að þeir bæru bara svona mikla virðingu fyrir liðinu sem lengstum hefur kannski verið svona eins og fjarlæg fyrirmynd fyrir sparkunnendur á Selfossi. Á nú samt erfitt með að trúa því að virðingin sé svo mikil. En þeir þurfa svo sannarlega að bíta í skjaldarrenndur ef ekki á illa að fara hjá þeim í sumar. Ef minni mitt er rétt áttu þeir ekki skot að marki ÍBV fyrr en á 30 mínútu er Ingó Tóta skaut að markinu (það er þó 12 mínútum fyrr en Fylkir um daginn) Það vantaði einhvern neista í liðið.

Ég vil þakka þeim fjölmörgu stuðningsmönnum Selfoss sem lögðu leið sína á völlinn - gaman að fá gott fólk í heimsókn. Stuðningsmennirnir stóðu sig miklu betur en liðið. Skemmtilegur hópur.

Nú sofnar maður góður á eftir, fer ferskur í vinnu og í ræktina í fyrramálið - svo eru það Úrúgvæar kl. 1400, opið hús á 21. Svo væntanlega sjónvarpssófinn með Matt Garner og kannski Yngva Bor á sunnudaginn yfir England - Þýskaland. Tvennt var það í viðbót sem gladdi mig í kvöld. Fyrir leik kom Maggi Tryggva sundþjálfarinn mikli í spjall en hann hafði skellt sér helgarferð til Eyja á leikinn og að heimsækja sitt fólk og svo kom Gunni Sig, gamli markmaðurinn okkar og nú næstum aðalmarkvörður Fimleikafélagsins,  og settist hjá mér í seinni hálfleik, það var gott og skemmtilegt spjall - en svo rauk hann í Jónsmessugolfmótið rétt áður en leik lauk!!!!


mbl.is Tvö frá Tryggva og ÍBV á toppnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur!!!

Aftur töpum við fyrir KR, nú í deildinni. Sá nú ekki leikinn og hef ekki fengið margar skýrslu um þennan blessaða leik. Fékk SMS um að við hefðum bakkað um of í lokin og því hefði þetta mark verið þvingað inn. EN við fengum víti, sem Tryggvi því miður lét verja frá sér. Spurningin er hvort markmaðurinn átti að hafa verið rekinn útaf fyrir brotið á undan, þegar vítin var dæmd. Hlakka til að sjá það í sjónvarpinu. Ætli dómararnir séu nú að snúast gegn okkur á ný?

En þetta er svekkjandi en svona er þetta bara og það þýðir ekkert að hengja haus. Leikur á Hásteinsvelli við Selfoss á föstudaginn, Shellmótið framundan einnig þannig að það verður haugur og hellingur af fólki á leiknum.´

Áfram ÍBV alltaf, allstaðar og út um allt!


mbl.is Baldur tryggði KR sigur gegn ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

6 í röð

Komnir 6 leikir í röð í deildinni hjá Fylki án sigurs. Hafa hikstað duglega eftir annars glæsilega byrjun - 2 sigra. Þetta er kannski ekki eitthvað sem að maður átti von á en svona er þetta nú samt. Fylkismenn haf því þokast hægt og rólega nær botninum - v´afyrir dyrum?

Gaman að sjá að Olgeir  skuli hafa skorað fyrir Blika - alltaf vægar taugar til Olgeirs enda vil ég meina að hann sé Eyjapeyji. Blikar aftur á móti virðast vera nokkuð stöðugir en vantar samt einhvern neista til að stinga sér á bólakaf í stigalaugina en kannski kemur það er líða fer á sumarið? Engu að síður góður sigur á erfiðum útivelli


mbl.is Öruggt hjá Blikum í Árbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú byrja menn aftur....

...að velta stöðu Loga Ólafssonar fyrir sér. Árangur hans með KR það sem af er móti er hrörlegur, svo ekki sé meira sagt 6 stig í 7 leikjum. Skal alveg viðurkenna að KR-ingar eru besta liðið sem komið hefur á Hásteinsvöll það sem af er sumri, en það virðist samt eitthvað mikið vera að . Fimleikafélagið nældi þarna í kærkomin stig og virðast vera að nálgast sitt gamla form á meðan KR-ingar halda áfram að hiksta. EN rétt er að hafa í huga að mótið er langt langt frá því að vera búið. Allir hafa verið að vinna alla og því er aldrei að vita hvað gerist.
mbl.is FH hafði betur gegn KR í fjörugum leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svífur vængjum þöndum.....

Það er aldeilis flug á félaga Ian Jeffs þessa dagana. Mér finnst hann reyndar í röngu liði hér á landi, eina treyjan sem fer honum vel er ÍBV treyjan en það er gaman að sjá að honum gengur vel. Það er einnig nokkuð gaman að sjá að Gulli Jóns virðist vera að ná meiru út úr Valsliðinu en spekingarnir sem stjórnuðu Hlíðarendapiltum í fyrra. Til hamingju Jeffsy - Kannski að Capello hringi - he he


mbl.is Valsmenn unnu Selfoss 2:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara flott

Þarna er ég ánægður með Grindvíkinga, sína mikinn og góðan karakter og bíta vel frá sér. Gaman að sjá að þeir eru komnir á blað, það var orðið hvimleitt að horfa á hvernig þeim hafði gengið framan af. Til hamingju Grindvíkingar, svo er bara að halda áfram að hala inn stig. Það er ég hræddur um að brúnin á gömlum leikfélaga mínum Þorsteini Gunnarssyni formanni kn.ráðs Grindavíkur hafi lyfst vel í kvöld.
mbl.is Ondo tryggði Grindavík fyrstu stigin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flug eða fall af stalli?

Þetta er athyglisverður leikur í kvöld. Verður gaman að sjá hver niðurstaðan verður. Bæði lið að vonast eftir að komast á eitthvert flug í deildinni og því mikið undir. Fimleikafélagið hefur ekki verið svipur hjá sjón miðað við síðustu ár. Þóttu reyndar mjög góðir gegn Fylki og spurning hvort menn halda flugi gegn KR-ingum. KR-ingar áttu frábæran endasprett gegn Fram og vilja náttúruelga halda áfram að hala inn stig til að þeir sitji ekki eftir því spiluðum leikjum fjölgar og staða þeirra er ekki góð sem stendur.

Þetta er spurning um flug eða fall af stalli. Verður hörkuleikur og ég ætla að leyfa mér að spá 1-2 þ.e.a.s. að KR-ingar vinni þennan leik.


mbl.is Uppgjör FH og KR í Kaplakrika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyllilega sanngjarnt

Fyri hálfleikur framan af frekar svona jafnræði með liðunum, ekkert sérstakt síðan sóttu Eyjamenn í sig veðrið og voru sterkari út hálfleikinn - allt sem kom í teig Eyjamanna kláraði Albert Sævarsson í markinu, sem átti óaðfinnanleganleik í öllu sem hann gerði í dag, nema kannski tveimur útspörkum,  varði vel þegar á þurfti að halda. Fyrstu 10 mínúturnar í seinni voru flottar, sóknir á báða bóga, og bæði lið gátu tekið forustuna. Svo náðu Eyjamenn aðeins betri tökum á leiknum. Fylkismenn missa mann útaf - sanngjarnt eða ekki, sá það bara ekki. Eyjamenn bættu aðeins í og náðu betri tökum og skoruðu verðskuldað, markið skoraði Þórarinn Ingi sem átti góðan leik í dag. Eyjamenn gáfu síðan aðeins tækifæri á sér á síðustu mínútunum en ekki nóg til að Fylkismenn næðu að jafna og Eyjamenn gátu svo bætt við í blálokin en gerðu ekki.

Sigurinn fyllilega sanngjarn. Fylkismenn komu mér svo sem ekkert sérstaklega á óvart nema með tuðinu í sér sem var á köflum fullmikið og það er væntanelga ástæðan fyrir því að þeir fengu stundum spjöld fyrir brot sem að Eyjamenn fengu jafnvel ekki spjald fyrir. Ótrúlegt en satt að þetta er annar leikurinn í röð þar sem að mér finnst dómarinn taka strangar á aðkomuliðinu en ÍBV ég man bar ekki eftir að slíkt hafi gerst frá því í kringum 1997-2000 svei mér þá - oft hafa dómararnir verið komnir með spjöldin á loft á mína menn bara um leið og þeir reima á sig takkaskóna!!!

Athyglisvert líka að Fylkismenn eru ekki búnir að vinna núna í 5 deildarleikjum í röð eftir 2 sigra í upphafi móts. Til að vera leiðinlegur þá verð ég að segja að á köflum í dag var ekkert að frétta hjá þeim, en það vonandi lagast fyrir þeirra hönd.

3 stig toppsætið í bili og áfram ÍBV alltaf alls staðar


mbl.is Eyjamenn komnir á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar kom að því!

Sagði það um daginn eftir sigur KR-inga á Eyjamönnum í bikarnum að þetta lið þyrfti ekki að hafa áhyggjur þetta hlyti að fara detta fyrir þá, reyndar kom tap gegn Val þarna inn í. En þetta er ósköp einfallt, þetta lið er skipað altof góðum leikmönnum til þess að standa í ströggli. Nú geta liðin fyrir ofan KR farið að líta um öxl, hver veit nema vesturbæjarstórveldið fari að sparka í afturendan á þessum liðum? Þetta hlýtur að létta þeim lífið , ja allavega um stundarsakir. Hlakka til að sjá hvað þeir gera gegn Fimleikafélaginu í næsta leik - það verður slagur um 3 stig

Það sem gerðist með þessum sigri er að Haukar og Grindvíkingar eru komnir í enn óþægilegri stöðu. Þó að mótið sé ekki nema 6 leikja gamalt þá er nú þear orðið þungbúið í herbúðum beggja liðaþó svo að ekki sé öll von úti. -síður en svo.

Nú tekur við HM fram á sunnudag kl. 16 þegar eigast við á Hásteinsvelli ÍBV og Fylkir. Altaf gaman þegar Óli Þórðar mætir með sitt lið til Eyja.


mbl.is Fyrsti sigur KR í fimm marka leik gegn Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heima er bezt!!

Ja en samt gæti nú verið gaman að prófa að búa erlendis!!! Ánægður með þessa ákvörðun pilts. Sigur á velli og á vonandi eftir að bæta sig verulega, ÍBV til tekna.
mbl.is Eiður samdi við Eyjamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.