Færsluflokkur: Pepsi-deildin
7.6.2010 | 22:06
Alkul í Frostaskjólinu!!
Ég sem var að segja hvað mér fannst KR-liðið öflugt hérna í Eyjum um daginn og til alls líklegt. Svo er það bara skotið svona niður í næsta leik. 5 deildarleikir og enginn sigur hjá Vesturbæjarpiltum! Hvernig má það vera að lið sem kostar sennilega vel á annað hundrað milljónir að reka er ekki en komið með sigur í deildinni? Ég heyrði reyndar á laugardagskvöld orðróm um að það væri skjálfti í Frostaskjólinu en blés á það þar sem að mér fannst þeir spila vel hér í Eyjum lengstum og líklegri til frekari afreka í næstu leikjum - ja hérna hér hvað maður hefur lítið vit á þessu. Ég ætla svo sem ekkert að fara að hafa áhyggjur af KR-liðinu því ég held með ÍBV en velti því fyrir mér hvað sé eiginlega að þarna. Miðað við gengið hingað til þá virðist ekki vera nóga að vera með næstum sérstakan þjálfara á hverja 2 leikmenn og 2 góða leikmenn í hverri stöðu, þetta smellur samt ekki.
Reyndar kom til mín maður í dag og sagði af hverju eru menn svona hissa á gengi KR? Jú það eru góðir leikmenn þarna en flestir þeirra hafa aldrei unnið neitt!!! (hef nú svo sem ekkert lagst yfir þessa kenningu en fannst hún áhugaverð.)
Gleðst aftur á móti fyrir hönd Jeffsy vinar míns hjá Val - hann fer kannski að verða viðræðuhæfur eftir 2 sigurleiki! best að láta reyna á það á morgun.
En nú eru það Andri, Hjörvar og Hjörtur
![]() |
Sigurganga Vals heldur áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.6.2010 | 21:24
Fimleikafélagið gefur eftir
Það er ljóst að FH-ingar virðast eiga erfitt með að fóta sig í deildinni og svo virðist sem að ekki hafi tekist að kaupa réttu púslin fyrir þetta tímabil. Allavega er þá ekki búið að setja þau á réttan stað ef að þetta eru réttu púslin því menn virðast ekki ná að klára dæmið. Aðeins einn deildarsigur í síðustu 4 leikjum, 2 töp og eitt jafntefli. Þetta er eitthvað sem að maður á ekki að venjast frá FH síðustu ár en kannski er gengi þeirra að breytast í deildinni - hver veit, öll lið lenda í lægð. Var það ekki "stórveldið "KR sem t.d. vann ekki deildina í um 20 ár á sínum tíma? Hvað liði mörg ár frá stofnun FH þangað til þeir urðu fyrst Íslandsmeistarar? Lærisveinar Ólafs Þórðarsonar unnu tvo fyrstu leikina og hafa nú leikið 4 deildarleiki í röð án sigurs verð nú samt að segja að það er eitthvað sem að maður gat alveg eins reiknað með og nú vonar maður bara að þeir nái 5 leikjum í röð án sigurs því þeir eiga að mæta á Hásteinsvöll um næstu helgi!!!
Já og hvað er þetta með öll þessi spjöld í leikjunum þessa dagana?
![]() |
Þrjú rauð í fjörugu 2:2 jafntefli Fylkis og FH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2010 | 18:13
Glæsilegur sigur
Þetta eru 3 góð og dýrmæt stig gegn liði sem að maður reiknaði með á svipuðum slóðum og við svona miðað við fyrstu vangaveltur. Eins og staðan er nú eru hlutskipti liðanna æði misjöfn. Grindvíkingar eru neðstir án stiga og víst er að liðið kemur til með að standa í baráttunni fyrir tilverurétti sínum í deildinni í sumar. Ekki það að mótið sé búið en það hefur heldur betur komið leki að bátnum hjá þeim blá/gulu. Hvort of mikill sjór er kominn um borð nú þegar er ég ekki alveg viss um en kannski að Ólafur Bjarnason eigi dælubúnað til að halda skipinu upp.
ÍBV hefur aftur á móti haldið vel sjó það sem af er móti og miðað við styrk deildarinnar þetta árið, sem ég tel vera lakari en í fyrra, að þá gæti liðið alveg valdið usla á meðal þeirra efstu. En til þess að það gerist þá þarf liðið stöðugleika, og svo virðist sem það sé að takast. Nefni hér nokkra leikmenn sem mér finnst vert að nefna að þessu sinni. James Hurst bakvörður frá Portsmouth leikmaður sem er einfaldega of góður fyrir þessa deild, vona að brotthvarf hans muni ekki hafa of mikiláhrif á liðið. Eyþór Helgi er að standa sig vel. Tryggvi Guð. hefur fært liðinu ákveðna trú á sjálfan sig þrátt fyrir nag og að vera á niðurleið sjálfur. Andri Ólafs, á bekknum í dag, er þegar hann er heill einn af 10 bestu mönnunum í deildinn. Fengur sumarsins, so far, ef að þið spyrjið mig er klárlega Finnur Ólafsson, frábær leikmaður þar á ferð.
Góður sigur - góð stig - áfram ÍBV alltaf allsstaðar.
![]() |
Eyjamenn of sterkir fyrir Grindavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.6.2010 | 22:48
Öflugt lið
Fannst þessi sigur KR-inga nokkuð sanngjarn. Við hefðum getað komist í 1-0 en síðan var þetta að mestu eign KR þangað tila´lokakaflanum að Eyjamenn pressuðu þá stíft og fengu tækifæri. EN í fyrri hálfleik hefðu KR-ingar getað skorað 3 mörk. Þeir voru líka sterkari aðilinn í seinni hálfleik og það er í raun ótrúlegt að liðinu skuli hafa gengið svona illa í deildinni. Maður skyldi núna fyllilega spár manna um toppsætið - öflugt lið sem er til alls líklegt. Í raun er þetta það öflugt lið að allt fyrir neðan annað sætið í deildinni yrði skandall. Ætliþetta lið sé ekki 3 sinnum dýrara en ÍBV liðið.
Ég talaði um að leikurinn við Blika um daginn hefði mér þótt bragðdaufur það sama verður ekki sagt um þennan leik. Þessi nokkrum klössum ofar að gæðum og fjöri. Í kvöld sá maður tilþrif sem glöddu augað, hjá báðum liðum. Auðvitað vill maður að þau tilþrif séu bara sín megin en svo gott er það ekki alltaf. Dómarinn fannst mér ansi hliðhollur ÍBV þegar kom að spjaldagjöf hann hefði getað gefið okkur 3-5 spjöld en held að við höfum ekki fengið neitt en KR-ingar 2, sem mér fannst ódýrari helsur en sumt sem við komumst upp með. En Sanngjarn KR-sigur
Hlakka til að fara á völlinn í sumar ef að boðið verður upp á fleiri svona leiki en þa´væntanlega með sigri minna manna, allavega á heimavelli.
![]() |
Baldur: Skoruðum markið sem skipti máli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2010 | 22:08
Hvað segir Óli nú?
![]() |
Glæsilegur sigur Vals á Fylki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.5.2010 | 18:47
Bragðdauft
Ekki er hægt að segja að fyrri hálfleikurinn í dag sé eitthvað sem að vill sjá aftur. Mjög slakt og til marks um stemmninguna á þá áttu blikar held ég fyrst skot á markið alveg við 40 mínútu, man ekki eftir neinu fyrr og það var ekki eins og ÍBV hafi vaðið í færum . Seinni hálfleikurinn var mun betri Blikar komust sanngjarnt yfir og það var ekkert í gangi hjá mínum mönnum. Þróunin var sú að sigur Blika hefði kannski ekki verið ósanngjarn á þeim tímabpunkti en menn bættu í og jöfnuðu með svolítið sérstöku marki, sem é gætla ekki að reyna að lýsa. Það mun vonandi sjást í sjónvarpinu, virtist allt gerast mjög hægt en inn fór boltinn - sko Tryggva. Eftir þetta lifnaði aðeins yfir þessu en samt ekkert til að skrá sérstaklega í sögubækurnar.
Allt í lagi að fá jafntefli úr því sem komið var en menn verða að spila mun betur ef að menn ætla sér eitthvað í sumar. KR í bikarnum í vikunni það verður erfitt.
![]() |
ÍBV og Breiðablik skildu jöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.5.2010 | 13:03
Vó! sérstök ráðning!
Þetta þykir mér athyglisverð ráðning, en alls ekki slæm. Kom manni nokkuð á óvart en þarna er drengur góður á ferð og góð viðbót í íslensku þjálfaraflóruna, já og kannski spilar hann út tímabilið. Það sem ég velti fyrir mér er hvaða þjálfararéttindi Ólafur Örn er með. Fréttir sögðu var það ekki að Grindavík hefði sagt Lúkasi upp og samkvæmt reglum, ef ég man þetta rétt, þá þarf í staðinn að ráða þjálfara með fulla menntun í staðinn af því að hann var látinn fara en ef Lúkas hefði sjálfur sagt upp þá hefði menn geta ráðið hvern sem er. - þið leiðréttið mig endilega ef að þetta er eitthvert bull í mér
En ég fagna endurkomu þessa pilts í boltann og óska Grindvíkingum alls hins besta, nema í leikjunum gegn ÍBV
![]() |
Ólafur Örn ráðinn þjálfari Grindavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.5.2010 | 21:22
Gervileikur?
![]() |
Jafnt hjá Selfossi og Stjörnunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.5.2010 | 21:16
Hver þremillinn gengur á?
<Hvað gengur á hjá Grindvíkingum að þessu sinni? Það er hörmung að horfa upp á þetta. Vonandi fara menn að komast í gang þar á bæ. Þetta er eitthvað sem að ég kæri mig ekkert um að sjá. Vonandi hressast þeir í næstu leikjum, nema náttúrulega gegn ÍBV ;-) Mega alveg fara að hala inn stig.
Fyrsti sigur Valsmanna í sumar staðreynd, það hlýtur að kæta Gulla Jóns og félaga en ég er náttúrulega ekki sáttur við að sjá ða hann hafi hennt Ian Jeffs á bekkinn, en það er bara mín skoðun.
![]() |
Enn tapar Grindavík - en skoraði þó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.5.2010 | 15:31
Kjaftæði!!!
![]() |
Bjarni Guðjónsson: Sex stiga leikur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |