Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Allt hægt í íslenska boltanum

Það er greinilegt að íslenski boltinn er óútreiknanlegur til marks um það skoraði Matt garner fyrir Eyjamenn í dag. Það er ekki á hverju keppnistímabili semslíkir hlutir gerast!!!!  En það breytir vþí ekki að sigurinn er góður og Eyjamenn nú búnir að hirða öll 6 stigin sem í boði hafa verið gegn Hafnarfjarðarliðunum það sem af er móti.  Fjórir útileikir búnir og liðið komið með 7 stig af 12 mögulegum og engin ástæða til þess að kvarta undan því. Svo gerist það um næstu helgi að menn fá heimaleik gegn fríksum lærisveinum Ólafs Kristjánssonar í Breiðablik, það verður kærkomið. Haukamenn hins vegar orðnir nokkuð fastir á þeim slóðum sem þeim var spáð og það gæti orðið erfitt að lyfta þessu á hærra plan þegar svo mikið hefur fjarað undan skútunni strax í upphafi móts.

 Til hamingju peyjar, og þá sérstaklega vinur minn Matt Garner hélt ég ætti ekki eftir að upplifa það að þú skoraðir aftur fyrir okkur.


mbl.is Eyjamenn lögðu Hauka 3:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upp með sokkana Eyjamenn

Það verður ekki auðvelt að glíma við lið Hauka. Þeim hefur ekki alveg gengið sem skyldi það sem af er móti en í öllum leikjunum hafa þeir verið inni í leiknum lengst af og eru þeir því sýnd veiði en ekki gefin.  Einbeitning, vinnusemi og leikgleði því algjört skilyrði.

Fjórði útileikurinn á þessu móti en svo fáum við heimaleik gegn sprækum Blikum um næstu helgi

Hvet Eyjaskeggja á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu til að fjölmenna á Vodafonevöllinn við Öskjuhlíð í Reykjavík og styðja peyjana til góðra verk nú sem endranær.  Áfram ÍBV alltaf alls............

 


mbl.is Meistaraslagur í Kópavoginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin mörk ekkert hægt að skora!!

Það er svo sannarlega rétt hjá Gunnlaugi að ef engin eru mörkin þá getur engin unnið! Menn verða að hafa mörk til þess að hægt sé að skora.

Er líka lítið hissa á því að hann segi að engin uppgjöf sé í herbúðum Vals. Það væri aumi klúbburinn ef að menn hefðu kastað inn handklæðinu strax!


mbl.is Gunnlaugur: Vinnum ekki leik án marka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert slegið af

Selfyssingar halda áfram að storma upp töfluna og slá ekkert af. Ferskir, frískir og spennandi undir stjórn Gumma Ben. Það verður gaman að fylgjast með þeim í sumar og megi þeim ganga vel í öllum leikjum nema gegn ÍBV Wink
mbl.is Selfoss skoraði þrjú gegn Haukum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brotin tvíslá í Firðinum!!!

Fimleikafélagið náði séri ekki á strik eftir að gömul tvíslá brotnaði snemma leiks! Það var eitthvað erfitt að koma sér af stað eftir þetta hjá fimleikafélaginu og þetta tap getur vegið þungt þegar uppi verður staðið rétt eins og þessi stig munu reynast ÍBV mikilvæg - 3 útileikir 4 stig og séns á fleiri stigum eftir helgi gegn Haukum. Spurning hvort að Heimir Guðjóns á ekki að hætta að láta sína menn leika sér í áhöldunum og einbeitta sér að einföldum dýnuæfingum hér eftir til að tryggja betri árangur.

Ég er aftur á móti mjög ánægður með mína menn, en það er langt í land, en stígandi virðist vera í leik liðsins og er hann aðeins fyrr á ferðinni nú en í fyrra. Þó sigurinn á Íslandsmeisturunum sé sætur þá má maður ekki missa sig.

Til hamingju peyjar áfram ÍBV alltaf allsstaðar....


mbl.is Frækinn sigur ÍBV gegn Íslandsmeisturunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sáttur

Þetta get ég alveg sætt mig við fyrst að dómaranum var svona í nöp við Yngva að hann varð að reka hann af velli!!!!  Valsmenn verða ekki auðsigraðir á Vodafonevellinum í sumar, ekki frekar en við á heimavelli, og því er fínt að ná í stig þarna. Eftir það sem á hafði gengið í leiknum er þetta sennilega frekar eitt stig unnið en 2 stig töpuð - þó vissulega hafi 2 stig tapast.

ÍBV liðið ekkert á heimleið, það mun dvelja áfram á fastalandinu og leika við fimleikafélagið á fimmtudaginn og svo við Haukamenn á Vodafonevellinum eftir næstu helgi.

Takk til þeirra fjölmörgu Eyjaskeggja sem mættu á völlinn í kvöld - það hjálpar að eiga öflugt bakland. 

Fer núna rólegur á koddann. Áfram ÍBV altaf allstaðar


mbl.is Tíu Eyjamenn hirtu stig á Hlíðarenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er skrýtið!

Afhverju var honum ekki bara bennt á KR eða Val t.d.? Steini hefði getað bent honum á það!!!

Ekki eru mörg ár síðan það stóð til að boða menn hér í Eyjum á fund með einhverjum svona austantjalds bisnessmanni með það fyrir augum að kynna honum félagið og í framhaldinu fá þaðan fjármagn, eða styrktarsamning. Það var reyndar eftir því sem ég best veit heiðarlegur bisnessmaður en af þessum fundi varð aldrei og verður sennilega aldrei. EN karl þessi er en í viðskiptum og að gera fína hluti skilst mér

Glæsileg leikskrá hjá þeim Grindvíkingum.


mbl.is Vildi kaupa Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ófarir annarra

Mér hefur alltaf verið sagt að ég ætti ekki að gera grín að óförum annarra. En hjá því verður samt held ég ekki komist að brosa að þeim, ja allavega út í annað. Það á svo sannarlega við í kvöld eftir frækinn sigur Selfyssinga á Vesturbæjarstórveldinu sem menn eru búnir að mæra upp í topp og örlítið hærra á stundum!!!

Til hamingju með fyrsta sigurinn í efstu deild Selfyssingar, hann er án nokkurs vafa kærkominn, og ekki leiðinlegt að landa honum í Frostaskjólinu, þar sem klárlega er mjög kalt þessa stundina. 2 heimaleikir búnir og aðeins 1 stig í hús.

Það eru nákvæmlega svona atvik sem gera fótboltann svo skemmtilegan.


mbl.is Gummi Ben sótti þrjú stig á KR-völlinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiptir ekki máli...

..hvort við vinnum Valsmenn á Hásteinsvelli eða að Hlíðarenda!!! Reikna má þá með því að liðið í kvöld eða fyrramálið, því menn vilja væntanlega æfa einhversstaðar áður en í leikinn verður farið.
mbl.is Leikur ÍBV og Vals færður í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blásið af - uppfærsla kl. 07.00

Tel nú líklegt að þarna verði blásið af,. Þá á ég við að leikurinn verði blásinn af. Best að gera það sem fyrst svo menn mæti ekki hingað og Magnús Þórisson, væntanlegur góður dómari leiksins, blási hann svo af þegar á Eyjuna fögru í suðri er komið. Þetta er mín afstaða núna klukkan 22.28 á fstudagskvöldi, kannski verður afstaðan breytt í fyrramálið en um það er ég alls ekki viss, efast um það reyndar. Fer í vinnu snemma í fyrramálið tek stöðuna á ný þá. - Áfram ÍBV alltaf.....

Jæja klukkan 7 að morgni. Meira öskufall búið að vera í nótt og umhverfið allt dökkt yfir að líta. Verð hissa ef að menn taka ekki þá ákvörðun að blása leikinn strax af núna í morgunsárið. Það er að birta aðeins yfir hér en allt umhverfið er ösku þakið og ég get ekki meint að það sé gæfulegt að setja leikinn á. Það á að fresta honum til morguns til að byrja með og sjá svo hvað setur. Það er ekki nóg að hafa bleytt allan völlinn, alltaf umhverfið í kring er þaki ösku og ekkert grín að fá þetta íöndunarfæri og augu. Ég veit sð það er leikmönnum, sem og áhorfendum, ekki heilsusamlegt að spila/dvelja úti við við þessar aðstæður!!

Smá viðbót þar sem að ekkert hefur rignt með þessu þá er nýfallna askan létt, er svona eins og ryk - fólk hefur séð þetta í sjónvarpinu - og nú er aðeins byrjað að hreyfa vind og því bara svona rykmystur yfir bænum. - eins og það fer vel í öndunarfærin. 

Hinn möguleikinn er að menn skipti og leikurinn verði færður á heimavöll Vals. En það gengur væntanlega ekki þvíí deildinni er lið sem fær ekki að leika heimaleikina í sínum heimabæ og þarf því að nota Vodafonevöllinn við Hlíðarenda!


mbl.is Aska yfir Hásteinsvelli í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband