Færsluflokkur: Pepsi-deildin
12.9.2010 | 20:47
Ja hérna hér, spennan magnast
Varla byrjað og þá var þetta búið!!!! ja eða svo hélt maður 2 skot á mark og staðan orðin 0-2 KR-ingar í fluggír og aðeins 270 sekúndur liðnar af leiknum!!! Eyjamenn bara á hælunum, en hægt og rólega komumst mínir menn inn í leikinn en KR-ingar alltaf skæðari í sínum sóknum samt. Þeir skoruðu mark/mörk sem var dæmt af, áttu skot í stöng. En Eyjamenn voru samt með meðvitund. Þannig leið hálfleikurinn.
Síðari hálfleikur hófst og Eyjamenn fóru í gír og KR-ingar sátu þá eftir um stundarsakir. 1-2 frábært mark hjá Eyjamönnum, undirbúningurinn til hreinnar fyrirmyndar. Víti í vaskinn. Tryggvi Guð brenndi aftur af víti gegn KR þessi var ekki góð séð þaðan sem ég stóð. 2-2 kom svo og Eyjamenn með í leiknum og líklegri ef eitthvað var. En svo fengu KR-ingar víti, fyllilega sanngjarnt sýndist mér, og við vorum komnir aftur í eltingarleikinn og svo skoraðu Guðjón Baldvinsson sitt annað mark, sem var gullfallegt í vinkilinn fjær, óverjandi.
Allt í lagi Eyjamenn töpuðu, ekki eins og það sé í lagi, en leikurinn var skemmtilegur á að horfa og en og aftur sýndu KR-ingar mér það að þeir eru besta liðið sem hingað hefur komið í sumar. Þeir eru í sæti 1 og 2 yfir bestu liðin sem hingað hafa komið að mínu mati. Samt hefðu Eyjamenn geta tekið stigin í dag ef hlutirnir hefðu þróast aðeins öðruvísi, en það gerðist ekki og því fór sem fór. En það er svo sem ekkert hægt að fara í fýlu þó KR-ingar hafi hirt stigin, þeir nýttu færin og út á það gengur leikurinn.
Spennan í deildinni í hámarki og nú þurfa KR og Blikar að gera jafntefli í næstu umferð, já eða KR-ingar að sigra og ÍBV að vinna rest og þá eru Eyjapeyjar meistarar - svo einfalt er það.
Get samt ekki látið hjá líða að minnast á hreinlega afleita frammistöðu stöð2sport. þeir voru búnir að auglýsa að þeir ætluðu að sýna þennan toppslag í beinni en snérist svo hugur og fóru en og aftur að sýna Fimleikafélagið og það í 11 skipti í 19 umferðum sagði einhver á vellinum - er það ekki alveg með ólíkindum en eitt árið sýna þeir Fimleikafélagið eins og Stöðin sé í þeirra eign. Hörmuleg frammistaða svo ekki sé meira sagt.
![]() |
KR-ingar lögðu Eyjamenn 4:2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.9.2010 | 17:07
Dulin mótmæli?
Getur verið að Kristinn sé þarna meðal annars að mótmæla framkomu KR í liðinni vegna ummæla gagn vart Erlendi dómara sem settur var á leik Eyjamanna gegn KR? Jú jú orðavalið er varkárt og látið líta út fyrir að hann vilji vera óháður liðum í efstu deild.
Eigum við sem sagt að trúa því að nú sé hann búinn að klippa á öll tengsl og beri þangað engar taugar? Er það líklegt? Finnst ykkur það?
Ef ég á að svara þessu fyrir mig þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að hann dæmi leiki hjá KR strax frá byrjun næsta tímabils. Heiðarlegur maður Kristinn og fær dómari og ekki þekktur fyrir að láta spila með sig og því fagna ég þessum félagsskiptum hans. EN veit einhver hvert félagsskiptagjaldið var?
![]() |
Kristinn hættur að dæma fyrir KR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.9.2010 | 09:22
Hetjur, skúrkar og tannrótarbólga
Allt undir á morgun - hvorki meira né minna - eins og það hefur reyndar verið áður í sumar. Nú koma sebrahestarnir úr Frostaskjólinu til Eyja. Alltaf gaman þegar þeir koma á beit á iðagrænum Hásteinsvellinum, Kári Þorleifs vallarvörður samt ekki alltaf sáttur við það! Í mínum huga eru þeir besta liðið sem hefur komið í heimsókn í sumar, í bikarnum, og því verður gaman að sjá hvernig þetta fer á morgun. Við hljótum að blása til sóknar því allt annað en sigur er tap!!!! KR-ingar hljóta að sækja líka eins og brjálaðir menn, verða vonandi búnir að gleyma tuðinu út í dómarann sem þeir hafa verið að blása út síðustu daga. Tap hjá þeim og þeir eru úr leik, en sigur og þeir halda í vonina. Vona að veðrið verði ákjósanlegt. Synd að Landeyjahöfn er ekki í notkun því mann var fariðað hlakka til að fá hingað fullt af ferskum KR-ingum
Hvað er þetta sem stendur svona þarna neðanmáls í greininni: Þetta og fleira í fjögurra síðna íþróttablaði Moggans - Hvað er í gangi? eru menn dottnir niður í aðeins fjögurra síðna íþróttablað? Ég er ekki hissa þó að þessi blöð standi illa ef menn draga úr því efni sem hvað mest er lesið - klaufar.
Þarf svo að reyna að muna að panta tíma hjá tannlækninum á mánudaginn!
Áfram ÍBV alltaf allsstaðar og um alla eilífð
![]() |
„Við getum komist í dýrlega stöðu“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.9.2010 | 21:37
Til hamingju stelpur
Glæsilegt hjá ÍBV stelpunum. Góður sigur og nú er bara að vinna Þrótt í lokaleiknum og tryggja sér þannig sigur í deildinni. Nú er bara að halda þessum mannskap og byggja ofan á vaxandi árangur síðastliðinna tímabila.
Til hamingju stelpur, Jón Óli og aðrir er að þessu koma.
![]() |
ÍBV í úrvalsdeild á nýjan leik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2010 | 13:50
Jafntefli eða sigur FH...ja eða KR sigur!!!
Þetta verður skemmtileg rimma. Hvorugt liðið vill tapa og jafntefli er eitthvað sem að liðin vilja helst ekki sjá þannig að þetta ætti að geta orðið ansi fjörlegt.Ég ætla að leyfa mér að spá því að það verði rmikið fjör bæði á pöllunum sem og inn á vellinum og þetta verður 5 marka leikur. Þarna eigast við liðin sem flestir spáðu 1og 2 sæti í deildinni í sumar en gengi þessara risa hefur ekki verið sem skyldi. Ekki eins og manni hafi leiðst það svo sem. Mótið er nú ekki búið en.
Ég sé þetta náttúrulega bara frá bæjardyrum míns líðs, ÍBV. Ég myndi alveg sætta mig við að þessi leikur færi jafntefli, já eða FH sigur þeir eru jú neðar í töflunni. Þá næði ÍBV einmitt góðu forskoti á KR en næsti leikur á Hásteinsvelli er einmitt gegn þeim svart/hvítu úr Vesturbænum.
Þrátt fyrir að mótið sé ekki búið og alls ekki ljóst hverjir verða meistarar og ég veit ekki hversu minnugt fólk er. Þá langar mig svona í leiðinni að minna á að Heimir þjálfari ÍBV sagði í upphitunarþættinum á RÚV fyrir mót að það yrði eitthvert óvænt lið Íslandsmeistari en það var einmitt á þeim tímapunkti þegar menn rifust um deildina eins og í henni væru bara 2 lið, KR og FH, og engir aðrir ættu séns. Hver veit nema að Heimir verði sannspár þegar uppi verður staðið. Ég vona það svo sannarlega, ég held með mínu liði, að sjálfsögðu, en gæti alveg sætt mig við það ef að svo færi að Blikar yrðu meistarar en 2 liðin .....ja mér er slétt sama um þau að þessu sinni.
En mótið er ekki búið og allt getur gerst.
![]() |
FH með gott tak á KR í Frostaskjólinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.8.2010 | 20:17
Karakter í Eyjaliðinu - takmarkað miðaframboð!
Það verð ég að segja að þessi sigur sýnir nú að það er karakter í ÍBV-liðinu en alls enginn í Fylkisliðinu, en það hefur svo sem verið nokkuð áberandi frá því í 3 eða 4 umferð. Slæmt er að missa Albert í bann, held að aðrir sleppi að sinni, en það er nú þannig að það kemur maður í manns stað og við byrjum væntanlega 11 inná gegn KR þegar vesturbæjarstórveldið kemur hingað til Eyja í vöfflur eftir landsleikjapásu. - Það verður fjör.
Að lenda undir í Árbænum og verða manni færri en vinna sig til baka inn í leikinn og knýja fram sigur segir okkur hversu langt liðið er komið frá því í fyrra þegar við töpuðum þarna 5-0 ef ég man rétt, ja nema Fylkisliðinu hafi farið svona aftur? - Bara flott strákar.
Veit ekki hvað ég á að segja en samkvæmt því sem ég heyrði síðast þá var þetta sennilegast síðasti leikur James Hurst með liðinu í ár og því ekki amalegt að kveðja með marki, menn leiðrétta mig þá ef þetta hefur breyst. Strákurinn byrjaði með þvílíkum látum og maður hélt vart þvagi yfir ágæti hans en hann hefur aðeins gefið eftir, sennilega séð að hann var alveg nógu góður til að standa sig, en hann verður að breyta þeirri hugsun ef að hann ætlar sér að ná eitthvað áfram í bransanum.
Blikar líka með góðan sigur svo þeir neita að gefast upp, en svo er það KR-FH á morgun það verður forvitnilegt að sjá hvernig sá leikur fer. Gaman væri líka ef Selfyssingar myndu knýja fram sigur gegn Valsmönnum á morgun. Þá væri þetta orðið ein allsherjar spenna á toppi og botni.
Varðandi KR-leikinn þá skilst mér að það verði takmarkað miða framboð til handa KR-ingum og að þeim verði aðeins úthlutaðir 50 miðar á leikinn, en talað hafði verið um að þeir ætluðu að fjölmenna til Eyja. Greinilegt er því að þeir geta ekki fjölmennt miðað við þessar fréttir!
![]() |
Eyjamenn unnu einum færri, áfram efstir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2010 | 22:40
Afar sérstök yfirlýsing!
Jú víst er menn búni að rífa félagið upp að mörgu leyti en á mörgu hefur samt gengið hjá þeim. Sumt hefur verið gott, eins og titlarnir sem unnist hafa en margt hefur verið miður faglegt.:
Frétti ekki Njáll Eiðs í beinni að hann yrði ekki áfram?
Menn fengu sekt fyrir að vera að tala viðsamningsbundinn leikmann.
Willum Þór sem skrapp erlendis til að ljúka FIFA-Pro þjálfaragráðu í samráði við félagið kom heim til þess eins að taka pokann sinn. Hvað skyldi það hafa kostað félagið? Sögur flugu um að það hefði þurft að borga Willum upp samninginn man ekki hvort það voru 1 eða 2 ár.
Í fyrra áður en móti lauk voru menn búnir að semja við núverandi þjálfara Valsmanna, Gunnlaug Jónsson, og það var blásið út út um allt þegar Selfyssingar voru á leið í mikilvægan leik. - Þetta var afar sérstak - ja allavega frá mínum bæjardyrum séð.
....svo kemur að þessari yfirlýsingu sem þarna er birt en þar segir orðrétt: Við erum einnig þakklátir Willum Þór Þórssyni sem þjálfaði meistaraflokk karla þegar Valur varð bikarmeistari 2005 og Íslandsmeistari 2007. Við þökkum einnig núverandi þjálfarateymum meistaraflokks karla og kvenna fyrir samstarfið, þeim Frey Alexanderssyni, Þórði Jenssyni, Orra Sigurðssyni og Ragnheiði Jónsdóttur hjá kvennaliðinu og þeim James Bett, Friðriki E. Jónssyni, Birni Zoega, Sævari Gunnleifssyni og Halldóri Eyþórssyni hjá karlaliðinu. Að endingu viljum við þakka leikmönnum kvenna- og karlaliðs Vals í knattspyrnu fyrir frábært samstarf og hvetjum liðin áfram til árangurs.
Þarna er öllum þakkað sem þarna hafa starfa síðustu ár nema núverandi þjálfara meistaraflokks karla Gunnlaugi Jónssyni. Þetta þykja mér afar sérstök vinnubrögð. Maðurinn sem að þeir báru á Gullstól inn í KFUM félagið að Hlíðarenda fyrir ári er í dag í hugum þessara manna greinilega núll og nix. Ja hérna hér. Eitthvað hlýtur að hafa gengið á fyrst þetta er framkoman og samkvæmt þessu finnst manni líklegt að það hafi verið rétt að menn hafi á bak við tjöldin verið að reyna að losa sig við Gunnlaug rétt eins og Hjörtur Júlíus kom inná í morgunþætti Rásar 2 í fyrradag, eða var það í gær - skiptir kannski ekki öllu. Það verður fróðlegt að heyra hvaða sögur maður heyrir á næstunni.
En það vona ég að það birti til hjá stuðningsmönnum Vals á næstu misserum, þeir eru varla sáttir við þetta ástand.
![]() |
Yfirlýsing frá fjórmenningunum - Trúnaðarbrestur á milli aðalstjórnar og knattspyrnudeildar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.8.2010 | 20:27
Þá er komið að því!
Kannski að Fylkismenn prófi í næsta leik, gegn Eyjamönnum, að leyfa andstæðingunum skora fyrst og sjá hvort það verðir til þess að þeir nái ða knýja fram sigur. - hver veit nema að það skili árangri.
En að öllu gamni slepptu þá er aldeilis komið fjör í toppbaráttuni í blessaðri Pepsi-deildinni. Nú verða mínir menn hreinilega bara að vinna Fylki um helgina er ansi hræddu um að ef það gerist ekki þa´verði hikstið meira. KR svo heima í næsta leik þar á eftir. En víst er að þetta verður spennandi eitthvað áfram. KR - FH líka framundan fyrir landsleikjahlé já og Grindavík - Breiðablik er það ekki.
Það verður stuð, stuð, stuð um helgina.
![]() |
Öruggur sigur KR í Árbænum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.8.2010 | 23:02
Er Börkur trúverðugur?
Rifjast nú upp fyrir mér gömul mál varðandi samskipti Vals í öðrum málum varðandi leikmenn og þjálfara. Þurfum ekki að fara lengra aftur en til síðasta hausts þegar svo mikið lá á að landa Gunnlaugi Jónssyni sem þjálfara að hann fékk ekki einu sinni að klár tímabilið með Selfyssingum í friði.
Ætli það sé eitthvað í gangi á bak við tjöldin? Kannski er kominn tími á að skipta um stjórn hjá Valsmönnum, kannski er það rót vandamálanna hjá félaginu.
25.8.2010 | 23:00
Er Börkur trúverðugur?
Rifjast nú upp fyrir mér gömul mál varðandi samskipti Vals í öðrum málum varðandi leikmenn og þjálfara. Þurfum ekki að fara lengra aftur en til síðasta hausts þegar svo mikið lá á að landa Gunnlaugi Jónssyni sem þjálfara að hann fékk ekki einu sinni að klár tímabilið með Selfyssingum í friði.
Ætli það sé eitthvað í gangi á bak við tjöldin? Kannski er kominn tími á að skipta um stjórn hjá Valsmönnum, kannski er það rót vandamálanna hjá félaginu.
![]() |
Yfirlýsing frá Val: Ekki leitað til annarra aðila |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt 26.8.2010 kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)