Færsluflokkur: Pepsi-deildin
7.8.2009 | 00:00
Of mikil pressa?
Rangur undirbúnningur? Röng taktík? Liðið einfaldlega ekki nógu hungrað? Liðið ekki nógu gott? Hvað sem veldur þá skil ég svekkelsi Óla ágætlega .........þetta kemur kannski bara næst!!!!!
EN það verður ekki tekið af kappanum að hann er búinn að ná miklu meira út úr þessu liðið heldur en flestir reiknuðu með, vill að sjálfsögðu meira eins og aðrir metnaðarfullir þjálfarar.
![]() |
Ólafur Þórðarson: Er alveg hundfúll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.8.2009 | 21:20
Hefur einhver rekist á.......
....töfrasprotann?
Það er ótrúlegt gengi Valsmanna þessa dagana - væri gaman að fá yfirlýsingu frá stjórn knattspyrnudeildar afhverju skipt var um þjálfara? Það er ekki eins og það hafi náð að bæta eitthvað leik liðsins. Það hlýtur eitthvað mikið að vera að þarna. ef sagt þetta margoft áður þetta er sennilegast dýrasta lið landsins, og ég er viss um að Valsmenn spyrja sig hvað hefur eiginlega gengið á.Menn hljóta að eiga von á svörum frá formanni og stjórn deildarinnar. Ætli gengi Valsmanna verði með svipuðum hætti út mótið? Mér er svo sem slétt sama bara a við náum að ná í eitthvað af þeim3 stigum sem verða í boði þegar að við mætum þeim- Ég býð Valsmenn velkomna í botnbaráttuna, kannski að þeir geti unnið hana!!!!
![]() |
Grindvíkingar nældu í mikilvæg stig gegn Val |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.8.2009 | 07:55
Eitt lítið skref...
...í rétta átt fyrir Þróttara, já og til hamingju með afmælið Þróttarar. Þessi sigur gerir botnbaráttuna skemmtilegri - ekki spurning.
Það sem gladdi mig er að 2 Fjölnismenn votu reknir af velli og eru því í banni þegar þeir gulu og bláu úr Grafarvoginum koma til Eyja á sunnudaginn. Það er leikur sem að við Eyjamenn verðum að vinna, til að bæta stöðu okkar í deildinni.
![]() |
Þetta er ekki búið enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.8.2009 | 09:48
Dómgæsla
Er ég eitthvað að lesa skilaboðin skakkt eða er umræðan um slaka dómgæslu mun háværari í ár en undanfarin ár? Á mínum heimavelli, Hásteinsvelli, fer varla fram keppni í tuðrusparki án þess að dómarinn sé nánast lagður í einelti og þetta virðist vera að gerast á nánast hverjum velli. Auðvitað hefur í gegnum tíðina engin dómari sloppið við einhverjar glósur á Hásteinsvelli en nú er þetta orðið mun meira og fólk virðist vera farið að taka svekkelsið með sér heim og blöðin, vefmiðlar, bloggarar og almenn umræða um slaka dómgæslu er mun meira áberandi - og svona virðist þetta vera orðið á öðrum völlum líka. - Vona bara að þegar dómari á dapran dag að það bitni á báðum liðum en ekki bara öðru.
En nú er það svo að dómgæslan er ekki alltaf slæm, langt í frá en ekki verður maður mikið var við umræðuna um það sem vel er gert þó einstaka aðili nefni það. Gætum við ekki bætt okkur þar?
![]() |
Hasar á Hlíðarenda í Reykjavíkurslag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.7.2009 | 08:49
Athyglisverð skipti
![]() |
Matthías í Val og Ólafur Páll til FH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.7.2009 | 23:24
Jæja Steini Halldórs.
Nú er tækifæri - kærkomið til að reyna að rétta skútuna við. Ég sem hélt að Gunnar myndi klára tímabilið, en það verður ekki úr þessu. Er verið að ráða Steina og Eystein út tímabilið, eða bara í nokkra leiki? Kannski að Þróttarar taki kipp eftir verslunarmannahelgi, hver veit?
Skrýtið að vera að leyfa þjálfaranum ná í alla þessa leikmenn ef hann á svo að hætta, efði viljað sjá hann klára mótið eins og ég hef áður sagt, þó þeir tveir þekki vel til innan liðsins er ekki víst að það skili neinu, þegar tekið er við undir þessum kringumstæðum hjá félaginu.
![]() |
Gunnar hættur sem þjálfari Þróttar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2009 | 15:54
Ha ha ha - ókeypis auglýsing
Þetta er náttúruelga ekkert annað en ókeypis auglýsing. En ég velti fyrir mér afhverju karlinn var látinn fara Selfyssingum? Hélt að hann hefði verið að gera þokkalega hluti. Veit það ekki ég ræddi við hann þegar ég var hjá ÍBV um að koma að þjálfa en þeirri umræðu var sjálfhætt - hvort sem það var rétt eða rangt mat hjá okkur.
Ég er bara þeirrar skoðunar að Gunnar Odds. sé rétti maðurinn hjá Þrótti, hins vegar er ég ekki viss um þær kröfur sem settar eru á árangur hjá liðinu, Þróttur er ekki stórlið og hefur að því er mér skilst dregið úr kostanði all verulega og þá gerast hlutir eins og að lið veikist og nær ekki eins góðum árangri, þó vissulega sé hægt að ná góðum árangri þó menn hafi skorið niður.
![]() |
Zoran til í að taka við Þrótti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.7.2009 | 08:55
Heima er bezt.....
![]() |
Haraldur hafnaði tilboði frá Crewe |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.7.2009 | 16:33
Styrkur...og vel það
![]() |
Haraldur heim með ólétta konu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.7.2009 | 08:23
Atli Yo allt í öllu!!!!
![]() |
Leikur kattarins að músinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |