Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Fimleikafélagið snéri sig

Eitthvað hefur þetta ekki verið dgur FH-inga tap, rautt spjald, 4 gul spjöld, þannig að ekki hefur eþtta allt gengið að óskum hjá þeim í kvöld, en Bjarni Hólm og félagar landa þarna 3 góðum stigum í hús. Spurningin er svo hvernig framhaldið verður hjá þessum tveim liðum. Víst er að margur sparkunnandinn gleðst yfir hiksti FH-inga því margir hafa þeir talið að Fimleikafélagið yrði jafnvel yfirburðalið í deildinni, en kannski verður ekki svo.Hafa ber þó í huga að FH-ingar voru manni færr ansi lengi.
mbl.is Sætur sigur Keflavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekkert lið ósigrandi

Svo einfallt er það - vona að lærisveinum Stjána Guðmunds gangi vel í kvöld. Rétt eins og ég vona að ÍR-ingar taki sinn leik í kvöld svo að Guðlaugur Baldursson vinur minn sofi eittvað í nótt!!!!
mbl.is Hólmar Örn: FH-liðið er ekki ósigrandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klárt vanmat....

....á mínu liði ÍBV - ég held að ef að við vöndum okkur í sumar og losnum við ýmsa óvænta kvilla þá verðum við nær 5 sætinu en því 10. - Ég tjái mig ekki að öðru leyti um þessa spá að svo stöddu en finnst mennn blása full mikin vind í segl Breiðabliks og Fram og jafnvel Grindavíkur.
mbl.is Þrótti og Stjörnunni spáð falli í Pepsi deild karla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segir Marel þá?

Einns og ég bloggaði um um daginn þá geta svona vangaveltur orðið málið óendanlega og upp úr því hefst ekkert nema leiðindi. Það sem er á hreinu er að Marel er ekki elngur á launaskrá Blika og mun ekki klæðast grænu treyjunni í sumar, þetta vitum við og ég er ekkert viss um að við kærum okkur um að vita meira. En þetta segir okkur kannski bara það að sjárhagsstaða Breiðabliks, líkt og margra annara liða, er ekki góð.
mbl.is Marel hafnaði launalækkun í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum þykir sinn fugl.....

......

Er þetta ekki bara normið, hversu oft heyrir maður ekki sögur um ósamræmi á milli orða leikmanns og ráðsmanna í íþróttahreyfingunni. Það hefur nú oftast nær lítið upp á sig að vera að æsa sig yfir svona ummælum, menn verða að sýna fram á skotheld rök og gögn til þess að sanna svona af sér og ég er ekki viss um aðilar þessa máls vilja leggja öll gögn á borðið til að sýna fram á hvor aðilinn hafi rétt fyrir sér.


mbl.is „Haugalygi að ég hafi ekki samþykkt launalækkun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki fréttirnar um Jóhann!!!

Hvað er annars rétt í þessu mál varðandi þennan spræka dreng.
mbl.is Jóhann Berg semur og semur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skondið með þetta allt saman!!!

Öll liðin í umvörpum að svekkja sig á samningum við útelndinga og segja þeim upp. Raunin hérna í Eyjum var nú alltaf svoleiðis á meðan ég var í stjórn knattspyrnudeildar að nær undantekningarlaust var ódýrara að fá leikmenn erlendis frá til liðs við félagið en að sækja leikmenn upp á land, menn sömdu náttúruelga um að mönnum yrði borgað í íslenskum krónum því að félagið var rekið á þeim nótum og í íslensku umhverfi - við sömdum aldrei í öðru en kannski er þetta að breytast kannski verður ekki eins dýrt í framhaldinu að fá innlenda leikmenn, það væri ekkert verra.

Þetta hlýtur að snúast um rekstur félagsins en ekki um það hvort að menn eru að semja við útlendinga eða íslendinga.  EN ég verð að segja að ég er mjög ánægður með þessa afstöðu þessara félaga sem verið hafa að taka til hjá sér síðustu daga, ég tek ofan fyrir þessum mönnum og konum enda held ég að menn hafi ekki heimild til þess að steypa liðum í einhverjar ógurlegar skuldir á einu bretti sem félagið, þa´kannski undir stjórn annarra þarf svo að glíma við og blæða fyrir, ég hef tekið þátt í svoleiðis aðkomu og það var síður en svo gaman, en var að sjálfsögðu krefjandi verkefni, sem ekki sér en fyrir endan á.


mbl.is Valsmenn endurnýja ekki samninga við erlenda leikmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna

maður heyrir af svona hugmyndum, já og reyndar framkvæmdum, í austantjaldslöndunum öðru hvoru og ítalir voru nokkuð áhugasamir um þetta en að mönnum skuli detta þeta í hug í Ísilenska boltanum er náttúrulega mjög sérstakt að því er mér finnst - en ég verð að hrósa leikmanninum sem og félagi hans fyrir skjót viðbrögð og KSÍ fyrir að taka vel á þessu. Vonandi þarf maður ekki að heyra af svona atviki í íslensku íþróttalífi oftar.
mbl.is Samskipti leikmanna til rannsóknar hjá KSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur til fortíðar....

....er það fyrsta sem að mér datt í hug þegar að ég heyrði þetta en viðurkenni samt alveg að Ólafur Þórðarson er alls ekki verri kostur en margir aðrir sem eru á lausu í þessum geira. En það virðist ekkert vera í hendi en sem komið er og því getur allt gerst í raun og veru - kannski að Maggi Gylfa taki þetta bara þegar uppi verður staðið !! - hver veit
mbl.is Ólafur næsti þjálfari Fylkis?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð færsla hjá pilti

Staða Hearts virðist öll vera í lausu lofti þessa dagana, leikmenn fengu t.d. eki borgað á tíma í síðustu viku, og því ekki vitlaust að koma heim á klakann. Hann þarf ekki nema eitt ár á bekknum ef að hann leggur sig fram og svo gæti hann orðið aðalmarkvörður. Kannski að Willum sé í kjölfarið á nýjum samningi farin að huga að framtíðinni hjá liðinu og er það vel ef svo er.


mbl.is Haraldur kominn heim á Hlíðarenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.