Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Menn og mýs - Til hamingju....

FH-ingar...lið sem sýnir þessa seiglu á þetta svo sannarlega skilið. En Keflvíkingar hljóta að naga sig í öll þau bök eru þau sjá - ætli það verði önnur 35 ára bð eftir því að liðið komist í þessa stöðusem að það var í fyrr í dag? Það var gríðarleg mikið lagt í sumarið í Keflavík, eins og reyndar á nokkrum öðrum stöðum, og það verður gaman að sjá hvernig menn tækla framhaldið.

EN til hamingju FH-ingar og sérstaklega þið Eyjapeyjar Tryggvi Guðmunds og Gunni Sig.


mbl.is FH Íslandsmeistari 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá verður kátt í kotinu!!!

Það er gott til þess að vita að þetta er gengið í gegn því þá fær maður áfram þessu skemmtilegu peyja í heimsókn bæði hingað heim og niður í prentsmiðju - flottir peyjar og það er oft ansi gaman hjá okkur. - Glæsilegt
mbl.is Siggi og Gústi áfram í ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3 í bann og frábær kosning

Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Atli Heimisson og Bjarni Rúnar Einarsson leikmenn ÍBV voru allir dæmdir i einsleiks bann í dag af aganefndinni og munu því missa af fyrsa leik okkar í efstu deild næsta sumar. - viðbót dags 24 september -eins undarlega og það kann að hljóma þá hefur mér nú verið tjáð að menn taki ekki með sér leikbönn vegna gulra spjalda milli ára. - mér finnst þetta vitlaust en breyti því ekki með þessu bloggi -

Langar annars að óska þjálfara og leikmönnum ÍBV til hamingju með góða kosningu í kjöri fotbolti.net á liði ársins, en lið ársins í fyrstu deildinni var annars eftirfarandi:

Markvörður:
Albert Sævarsson (ÍBV)

Varnarmenn:
Daníel Laxdal (Stjarnan)
Andrew Mwesigwa (ÍBV)
Dusan Ivkovic (Selfoss)
Matt Garner (ÍBV)

Miðjumenn:
Dean Martin (KA)
Andri Ólafsson (ÍBV)
Henning Eyþór Jónason (Selfoss)
Augustine Nsumba (ÍBV)

Sóknarmenn:
Sævar Þór Gíslason (Selfoss)
Atli Heimisson (ÍBV) 

Þjálfari ársins: Heimir Hallgrímsson

Leikmaður ársins: Atli Heimisson

Efnilegastur: Viðar Örn Kjartansson, Selfossi

 


mbl.is Dennis Siim í tveggja leikja bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert frekar en við á rokinu!!!!

Er nú samt en á því að þetta er nú ekki alveg það sama og að spila á venjulegu grasi en menn gera víst hvað sem er orðið til að draga íþróttina á lægra plan - en hvað getum við sagt þó að við eigum 3 auka grasvelli þá er 5 völlurinn okkar malarvöllur!!!!  Nei nei það er kominn tími á að láta reyna á þetta, enda þetta komið til að vera. Heyrði nú haft eftir einum í bænum að það gæti gengið illa að fá leikmenn því margir þeirra vilja helst ekki spila á plastinu en Stjarnan er ríkt félag og það hefur lengi loðað við menn að peningurinn er skynseminni yfirsterkari þegar kemur að tuðrusparki og öðrum íþróttum - vona samt að Stjörnumönnum gangi vel á næsta ári en samt ekki eins vel og ÍBV.

En svo að við teygjum þetta en frekar að þá hljóta menn að hagnast á gervigrasinu þegar kemur að rekstrarkostnaði - ekki satt!


mbl.is Högnumst ekki á gervigrasinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já já já koma svo Stjáni

Kannski Framarar hjálpi til núna á eftir - hver veit en ef ekki þá verður þetta væntanlega spennandi leikur gegn FH umhelgina en tilþess að það verði íhonum virkileg spenna þá þarf FH að vinna, en til hamingju með þennan sigur Kristján sigur gegn FH og málið er í höfn - ekki satt.
mbl.is Kristján Guðmundsson: Þetta sýnir hvað strákarnir ætla sér að gera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki búið en menn orðnir heitir!

Gengi Keflvíkinga er gott þessa dagana og ekkert annað en gott um það að segja og kannski verða nú verandi Íslandsmeistarar í körfu- og fótbolta frá sama bænum - hver veit!

Vona að Keflvíkingar standi í lappirnar það sem eftir er af mótinu. Kristján þú lemur þína menn áfram vinur

Það verður kannski þannig að landsbyggðarlið verða sigurvegarar í tveimur efstu deildunum í karlaboltanum í sumar og Laugi Baldurs að gera sérdeilis fína hluti með ÍR í annarri deild, og hann er náttúrulega frá Borgarfirði eystri - en þangað á margt gott fólk ættir sínar að rekja - og hann fékk sína eldskírn hjá okkur í ÍBV þannig að vði landsbyggðarruddar teljum okkur eiga nokkuð í þessum árangri - he he  - en það er nokkuð víst að lokaumferðirnarí efstu deild verða spennandi rétt eins og í 1 og 2 deild.


mbl.is Kristján: Gríðarlega erfitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Margrét Lára

Alltaf gaman þegar að Eyjafólk er að hirða titla hér og þar og ekkert síður þegar drottningar eins og Margrét Lára landa þessu hægri vinstri - gott að hún er ekki undir kvótakerfi eins og er á bátnum hja Pabba hennar þá næði þetta íþróttafólk ekki að blómstra svona - ríkið sæi nú til þess að það yrði jarðað. Til hamingju Margrét mín og þið Valsstúlkur þið eruð vel að þessu komnar og vonandi genur ykkur vel í nætsu umferð í evrópkukeppninni.

Svo er nú Hallbera Guðný Gísladóttir, skagastúlka líka ættuð úr Eyjum, og kannski fleiri veit það ekki, en pabbi Hallberu er Gísli Gíslason formaður knattspyrnuráðs ÍA en mig minnir að það sé pabbi hans (eða afi) sem var kallaður Trani í Görn ef að ég man þetta rétt - Gísli gaf einmitt knattspyrnufélaginu Týr mynd á ´sinum tíma frá fyrstu árum Týs og prýðir sú mynd bókina um sögu Týs.

Eyjamenn hér - Eyjamenn þar - það eru hreinlega Eyjamenn allsstaðar


mbl.is Valur Íslandsmeistari 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska deildin í vörn

Verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út en það er greinilegt að vinsældir boltans eru ekki það miklar að menn leggi í að keppa við einhverja leiki í fyrstu umferð í riðlakeppni einhvresstaðar úti í heimi, alveg er ég viss um að það verður sama liðið sem mætir á völlinn á hvorum tímanum sem er og það er athyglisvert af sjónvarpsstöðinni að senda ekki frekar út meistaradeildarleikinn bara seinna og halda sig við þá leiktíma sem vanalega er í íslensku deildinni - spes en segir okkur kannski hvað okkar deild er í raun lítil í hugum okkar sjálfra - þó svo að sumir blási sig nú út yfir íslensku deildinni.


mbl.is Fram og FH spila seint
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður forvitnilegt að sjá næstu skref.

Það verður gaman að sjá hvað besti leikmaðurinn í sögu íslenskrar kvennaknattspyrnu, Margrét Lára, tekur sér fyrir hendur. Hún mun ætti nú að hafa einhver þokkaleg lið í handraðanum eftir vaska framgöngu síðustu ár. Hvaða lönd ætli séu efst á óskalistanum? Svíþjóð kannski það besta í dag eða Þýskaland.
mbl.is Margrét Lára: Minn tími á Íslandi búinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valsmenn virðast ekki ráða við.....

....liðin í neðstu sætunum!!! Í sumar hafa Valsmenn tapað 6 deildarleikjum - tvisvar fyrir HK, einu sinni fyrir Fylki og einu sinni fyrir ÍA - og þeir fengu bara 1 stig úr viðureignum sínum við ÍA - hin 2 töpin voru gegn Keflvík úti og FH heima. Það má því kannski segja að Valsmenn séu að tapa baráttunni umtitilinn gegn þeim liðum sem eru í neðstu sætunum - þetta er svolítið athyglisvert og hvað ætli valdi þessu? Taktík? hugarfar? .....er einhver þarna með svör?



mbl.is Arnar Gunnlaugs: Hefðum átt að vinna 3:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband