Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Stjáni Guðmunds skrefi nær titlinum!!!!!

Gaman er að sjá að Keflvíkingar virðast ætla að halda haus út mótið - það yrði ekkert grátið á landsbyggðinni ef að titillinn færi til Keflavíkur
mbl.is Keflavíkingar lögðu Grindavík 3:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já já maður kenndi honum.......

.....ýmislegt þann stutta tíma sem að maður spjallaði við hann á mánudagsmorgninum á þjóðhátíð!!!! þaðborgaði sig greinilega að sparka í þessar dósir fyrir hann og biðja hann að herma eftir - Flott karlinn minn
mbl.is Ásgeir skoraði, ekki Kristján
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er rétt að segja Leifur hættur?

Er ekki réttara að segja Leifur látinn fara? Ekki valdi gamli körfuboltadómarinn að hætta, ekki það að þetta komi öllum spark unnendum á óvart því gengi Fylkismanna hefur engan veginn verið eins og búist var við í upphafi móts og á ýmsu virðist hafa gengið  í herbúðum liðsins. Leifur getur þá nú einbeitt sér að Áslandsskóla og að fylgjast með Everton og jafnvel tekið að sér að flauta í eins og einum og einum körfuboltaleik!!!

Ég óska Páli og Sverris Sverris góðs gengið með liðið og vona að Sverrir blási í Fylkisliðið einhverju af þeim krafti og gleði er hann var svo fullur af er hann lék með okkur Eyjamönnum á sínum tíma.


mbl.is Leifur hættur með Fylki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg seigla Fimleikafélagsins

Ja hérna var nánast búin að afskrifa stig til FH í þessum leik, en ótrúlegt seigla þeirra og kannski röng taktík hjá Fjölnis mönnum miðað við lýsinguna, þ.e.a.s. að reyna að hanga á sigrinum, gerði það að verkum að eitt stig fer í fjörðinn í kvöld og svo hrista KR-ingar en frekar upp í þessu með því að jafna á lokasprettinum gegn Keflvíkingum, eftir að Keflvíkingum tókst að komast í 2-1 - það virðist sem svo að spennan verði fram á síðustu umferð og Valsmenn koma ferskir inn í topp baráttuna núna með góðum sigri á útivelli gegn Breiðablik sem hafði ekki tapað síðan Guð má vita hvenær. Hvað er þetta með Grindavíkinga og heimavöllinn, getur einhver svarað því? Sá sem var að lýsa leik Þróttar og Fylkis á Rás 2 hafði ekki frá miklu að segja, það sem gladdi mig var að Bibbi Páls, Þróttari,  er kominn aftur eftir erfið meiðsli - en lýsingin var svo bragðdauf af leiknum að það minnti helst á jarðaför, það virðist ætla að reynast Fylkismönnum erfitt að losa sig úr fallbaráttunni og þeir færðust nær með þessu jafntefli því HK-menn virðast allir vera að koma til og er gaman að sjá kraftinn sem virðist vera kominn í þá, spurningin er bara hvort það er ekki of seint - við sjáum hvað setur.  ....kemur færslunni kannski ekkert við en áfram ÍBV
mbl.is FH vann upp þriggja marka forskot Fjölnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissi nú ekki....

um afleiðingar úthlsupsins að öðru leyti en að það varð mark - en verð að segja að þetta úthlaup hjá Fjalar mínum var alveg afleitt svo ekki sé meira sagt - enda kostaði það mark. FYlkismenn heppnir að sleppa með stigið og Skagamenn orðnir neðstir - uss það verður agaman að sjá hvort ÍA eða HK tetkst að draga Fylki niður fyrir sig á lokasprettinum.
mbl.is Fjalar rotaði Kristján í annað skipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já eða bara getuna!!!

Nei ætli menn hafi ekki bara verið en að máta AstonVillab úningana sem að menn komust yfir á fimmtudaginn? Þar töpuðu menn fyrir liði semaldrei fór úr syrsta gír og nú tapa menn á heimavelli fyrir liði semávallt leggur hjartað á línuna og gefur allt sitt - og eins og Heimir þjálfari segir þá er ég viss um að það var það sem að vantaði hjá leikmönnum Fimleikafélagsins þ.e.a.s. að gefa sig 100% íverkefnið - það er í þessu eins og öðru ef að menn leggja sig ekki 100% fram þá næst ekki árangur, einföld staðreynd.  - en þetta hleypir en og aftur meiri spennu í mótið og allt í einu eru piltarnir úr bítlabænum komnir aftur á toppinn en nú er að sjá hvort hárvillingarnir af suðurnesjum nái að halda sjó og landa sigri í Frostaskjólinu!!! - ekki myndi mér leiðast það.
mbl.is „Vantaði viljann til að vinna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skagamenn að kveðja????

Það virðist allt stefna í að Skagamenn og HK kveðju Landsbankadeildina í ár - því miður í tilfelli Skagamanna alltaf slæmt þegar að lið sem að maður kallar landsbyggðarlið yfirgefur deildina - nú er bar að vona að það verði ÍBV og Selfoss komi upp í stað þeirra er verða svo ólánssöm að falla. Þó að ég skuli alveg viðurkenna að það gæti verið pínu kómískt að fá liðið á gerfigrasinu úr Garðabænum upp um deild - það yrði náttúrulega bara léttgrín að fara að fá þessi gerfigraslið íefstu deild - þó svo að slíkir hlutir séu að gerast í löndunum í kringum okkar, þá hljótum við að geta spilað bara á gamla góða malarvellinum ef út í það er farið.

Ég óska félaga Stjána til hamingju með sigur sinna manna og ég hlakka til að sjá hvernig framhaldið á deildinni kemur til með að verða. Eitt virðist þó ljóst þetta áriðog það er að Íslandsmeistaratitillinn fer ekki í Frostaskjólið, þrátt fyrir miklar fjárfestingar - kannski kominn tími á að spila á sama liðinu 2 ár í röð svo menn naí að kynnast! - og eins og það sé ekki nógu slæmt í hugum KR-inga heldur er um þessar mundir líka bæði Valur og Fram ofar á  töflunni, gæti trúað að það sé pirrandi - En það verður að segjast eins og er að þó svo að Valsmenn séu en að klóra í að halda titlinum þá eru nú líkurnar meiri en hitt á því að annaðhvort FH eða Keflavík taki dolluna þetta árið!  EN það eru nokkrir leikir eftir en


mbl.is Stórsigur Keflvíkinga gegn lánlausum Skagamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er bara að koma sér út í Eyjar

Trúi ekki öðru en þetta gæðablóð ætli að mæta til Eyja um helgina og trylla lýðinn með break dansinum sem að hún hefur gert það gott með síðustu 2 hátíðir!!!!!!
mbl.is Margrét Lára með fimm í sigri á Fjölni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi hjá Valsmönnum?

Þeir virðast vera komnir í sífellt þras um hvað aðrir eru að borga í laun, er ekki allt í lagi heima hjá þeim, ekki sins og menn séu að spila ókeypis hjá þeim, þær kröfur hafa þeir sjálfir samþykkt. Það kæmi mér meira að segja ekkert á óvart að Valsliðið hafi þangað til kannski nú með þessum sölum sínum og kaupum KR á Bjarna að þá hafi Valsmenn verið að borga hærri laun en KR-ingar svei mér þá.

Valsmenn eru alltaf að kynda undir það núna að aðrir séu svona eða hinsegin. Ég veit ekki betur en að það séu sömu forkálfar þarna og gerðu harða atlögu að Atla Jóh. þegar að hann var hjá ÍBV, samningsbundinn - hlutu þeir sekt fyrir og máttu prísa sig sæla með að Blika kærðu þá ekki því þá hefði dómurinn væntanlega orðið einhver því þarna hefðu þá sömu menn en verið við sama heygarðshornið.  Er ekki nær að einbeita sér bara að sínu verkefni heldur en að vera eins og litlir krakkar í sandkassa að klína þessu eða hinu á einhvern.


mbl.is Valur dró tilboð til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóru gegn hinum smáu!

Þetta er en ein staðfestingin að það dregur í sundur með liðunum í landinu. Stóru liðin í borg ótta og myrkurs og nágrenni geta orðið keypt upp allt það besta af landsbyggðinni og því hallar stöðugt á liðin sem ekki eru á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er svo sem þekkt frá öðrum lönum þar sem að nokkur lið nánast einoka þessa hluti, við virðumst vera að horfa á það gerast hér líka. Reyndar eru Keflvíkingar að reyna að bíta frá sér í þessu sem stendur og hafa svo sem reynt það áður en yfirleitt hefur það verið gert eingöngu á skuldasöfnun semer eitthvað sem að gengur ekki hjá íslenskum knattspyrnuliðum með ekki stærra bakland, það virðist einnig eriga við um Fylkis menn sem eitthvað virðast hafa misreiknað sig í þessu miðað við þær sögur sem berast úr Árbænum, Þða veit ég líka af eigin reynslu að Eyjamenn geta ekki farið að taka þátt í neinum háskaleik fari þeir upp um deild. Ætli KR hafi ekki borgað Skagamönnum fyrir Bjarna Guðjóns svona um það bil ferðakostnað meistaraflokks ÍBV á einu tímabili! - óábyrgt en ég hugsa að svo sé.

En það þýðir ekkert að velta sér um og upp úr þessu það verður gaman að sjá hvernig Bjarna kemur til með að ganga í Vesturbænum og það verður gaman að sjá hvað gerist í leik KR á næstu dögum.


mbl.is Bjarni genginn í raðir KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband