Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Já og það ótrúlega er

að að þessu sinni er það ekki Guðjón sem sér um galdranna heldur virðist sem svo að fullt af seiðkörlum hafi sameinað krafta sína með það að leiðarljósi að ná töfrasprotanum úr hendi Guðjóns, mér sýnist hann reyndar en halda í hann en takið hefur veikst virkilega frá því í vor en vonandi nær hann styrkri hönd um sprotann á ný - hörmung að sjá Skagamenn í þessari stöðu.
mbl.is Guðjón: Þetta er göldrum líkast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hljótt í firðinum?

Hef grun um að hljótt sé í höfuðstöðvum Fimleikafélags Hafnarfjarðar þessa studina en gleðin þeim mun meiri í nágrenni víð Árbæjarsafnið þar sem Ian David Jeffs og félagar renna brátt í hlað með stigin 3 sem í boði voru. Fylkismenn komnir með buxurnar á hælana og ekki búnir að skora í deildinni síðan að síðustu fermingarveislurnar voru haldnar í landinu á þessu ári - gyrtu sig vel í brók og tóku á honum stóra sínum og tóku stigin með sér upp úr blessaðri fimleikagryfjunni - Skólastjórinn úr Áslandsskóla notaði kennaraprikið sitt til hins ýtrasta í dag og lítið eftir af því að leik loknum. Það skilaði sínu en ég er ekki svo viss um að Hafnarfjarðarbær borgi nýtt prik handa skólastjóranum, því þessi sigur Árbæinga gæti orðið til þess að Íslandsmeistaratitillinn komi ekki heldur í Fjörðinn árið 2008 - það skyldi þó aldrei vera! En skólastjórinn náði að sýna gamla fimleikatakta á bekknum, flikk-flakk of allt, þó aldrei hafi hann þótt sérstaklega liðugur!

En ekki afskrifa neinn ungi maður,er oft sagt vð mig,  nóg er eftir af mótinu  sem fær mig til þess að senda baráttukveðjur upp á Skaga og vona að samsveitungar mínir af landsbyggðinni, þessir sem spila í gulu og svörtu treyjunum fari að dæmi Árbæinga og gyrði sig duglega í brók það sem eftir er af Íslandsmótinu því annars á þetta eftir að enda á versta veg er ég hræddur um.

Er 2008 ár Keflvíkinga? Hver veit .........allavega er víst að 2008 er ekki ár Sepp Blatter! 


mbl.is Jóhann hetjan í sigri Fylkis á FH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

höfuð, herðar, augu og eyru

það verður að segjast eins og er að á stundumvirðast íslenskir dómarar uppteknari af því að dæma eftir því sem þeir heyra en sjá og það vill oft verða þeirra fall.  Menn verða að geta sett sig inn í leikinn og skynjað spennuna og umhverfið hverju sinni - þetta er leikur tilfinninga að miklu leyti.

Ég man nú eftir leikjum þar sem dómarar hafa verið frábærir en ég man betur eftir elikjum þar sem menn hafa alveg misst sig og oft fyrr það eitt að láta orðaskak og það sem menn heyra fara með leikinn.  Það gera allir mistök í hita leiksins alveg sama hver á hlut að máli svo einfallt er það annars væri nú lítið varið í fótboltann - svei mér þá.

Aftur á móti minnist ég þess ekki að hafa séð dómara viðurkenna mistök sín eða KSÍ taka undir að einhver annar en dómarinn hafi rétt fyrir sér í langan tíma. Dómarar gera mstök alvg eins og við hin og sum þeirra þurfa þeir ekki að viðurkenna þannig séð en önnur er í lagi að viðurkenna. Var það ekki hin ágæti leikmaður Pálmi Rafn sem hringdi í dómara um daginn og baðst afsökunar á einhverju sem að hann sagði þegar að hann sá að það var rangt - maður að meiri fyrir vikið - og takið eftir hefur örugglega unnið sér in nokkra punkta hjá dómarastéttinni með þessum vinnubrögðum - með svipuðum vinnubrögðum geta dómarar unnið sér inn virðingu leikmanna og annarra er að fótboltanum hafa gaman. - en það virðist bara ekki ætla að gerast á Íslandi.

Ég vil heldur ekki gleyma að frá mínum bæjardyrum séð er það fjármagn sem komið e í boltann hérna heima orðið hálfgert bull, sem taka þarf á,  og það ýtir undir skarkalann í kringum þetta allt saman og það ótrúlega er að þeir sem sitja sveittastir yfir þessu eru forráðamenn liðanna sem eru eins  og útspýtt hundsskinn út um allar trissur að reyna að safna peningum til þess að reka þetta dót. Næstir þeim í goggunarröðinni koma svo dómarar og þar langt langt í burtu koma svo leikmenn og þjálfarar sem margir hverjir hafa hreint aldeilis góðar tekjur fyrir vinnu sína, sem oft á tíðum jafnast á við það mikla sjálfboðaliðastarf sem stjórnarmennirnir vinna.

Jónas Hallgrímsson á Húsavík fór mikinn í orðum sínum á fótbolti.net ég er að mörguleyti ángæður með hann því það þarf aðeins að hrista upp í þesari umræðu og ég vildi gjarna sjá jafn sterk viðbrögð frá KSÍ varðandi ummæli Sepp Blatter í máli Ronaldo og þeir hafa tekið gegn Jónasi.

Ætla hérna í lokin að setja inn smá sem að ég setti inn um daginn varðandi dómarana okkar og þessa miklu umræðu sem orðið hefur um þetta fórnfúsa og nauðsynlega starf sem að þessir piltar sínni - við vitum öll að án þeirra væri enginn leikur:

Svo finnst mér ótrúlegt hvað menn eru oft viðkvæmir fyrir gagnrýni á dómgæsluna - auðvitað gera dómarar mistök, við hin gerum það líka tala nú ekki um leikmenn. Þessi mistök eru partur af leiknum og hafa alltaf mismikil áhrif á gang hans, bara aukaspyrna sem dæmd er úti á miðjum velli um miðjan fyrri hálfleik þar sem að kannski bara dómaranum fannst eitthvað eiga sér stað breytir gangi alls leiksins, þannig er það bara! Boltinn er stöðvaður allir stilla sér upp, finna sér stöðu, og svo heldur leikurinn áfram. Innkast sem aðstoðardómari flaggar í vitlausa átt getur haft þvílík áhrif - en come on þetta er partur af leiknum .... en við ætlumst til þess innst inni að liðið í svarta dressinu sé að gera sitt besta ......auðvitað geta þeir lagst hart á móti einhverjum aðila og lagt hann í einelti en trúum við því að dómarar og aðstoðardómarar séu svo illa innrættir?


mbl.is Um dómgæslu og dómaramál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bull er þetta

hvað er að þessu liði - þetta mál leysist ekkert í fjölmiðlum, það er eins og HK/Víkingur sé eina liðið sem hefur þurft að eiga samskipti við Útlendingastofnun og ekki verið sátt við útkomuna - það er ég hræddur að menn gætu stöðugt verið að blóta í blöðin ef þeir fá ekki allt í gegn varðandi útlendinga stofnun. Kannast nú við þetta eftir störf mín fyrir ÍBV visst er að ekki var maður alltaf sáttur við svörin sem að maður fékk, en hægt og róelga lærðist eþtta allt saman og menn lærðu að bera virðingu fyrir störfum hvers annars og við að fylgja reglum, eins og okkur ber og þá gekk þetta alt snurðulaust fyrir sig.

Ég ber virðingu fyrir þessu fólki sem starfar í Útlendingastofnun þetta er erfitt starf og getur verið ansi flókið. en ef allir leggjast á eitt og eru ekki tuðandi upp um alla veggi þá ganga málin mun betur fyrir sig, vona að þetta sé síðasta greinn um þessa blessuðu stúlku sem eflaust er ágætis leikmaður, vona að fólk grafi stríðstækin og leggist yfir að leysa málið farsællega það er engum greiði gerður með því að vera í einhverju orðaskaki um málið í fjölmiðlum.

Hún er farin úr landi nú er að koma henni aftur inn. Fyrst hún er bara hérna sem ferðalangur hlýtur þetta að leysast auðveldlega, finnst það reyndar mjög spes að hún sé hér sem ferðalangur og spurning er hvort ferðalangar eigi að fá leikheimild í íslensku deildunum - það verður KSÍ að skoða og segja til um.

Vonandi sjá forráðamenn og stuðningsmenn HK/Víkings stelpuna aftur í búningi félagsins.


mbl.is Telja að Útlendingastofnun fari með ósannindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er með þjálfunarmenntunina?

Er það ekki rétt munað hjá mér að þegar að lið rekur þjálfara þá þarf að ráða í staðinn menn með fulla þjálfaramenntun, þ.e.a.s. öll þjálfunarréttindi KSÍ - eru þeir bræður með þau?  En ef þjálfari segir sjálfur upp þá má lið ráða til sín þjálfara sem ekki eru með fulla menntun, og þá aðeins út tímabilið.

Er þetta ekki rétt munað hjá mér - er kannski búið að breyta þessu.


mbl.is Taka Arnar og Bjarki við liði HK?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki var þetta nú góður flautukonsert

Veit ekki alveg hvort að ég á að draga til baka það sem ég bloggaði um daginn um dómarana og þeirra störf, en svei mér þá eftir það sem ég hef heyrt frá mönnum í kvöld og séð í sjónvarpi að þá virtist Garðar Örn dæma meira með eyrunum en augunum og það er aldrei góðs viti - menn með dómara réttindi verða að átta sig á að menn segja hluti íhita leiksins og ekki er allt illa meint - sumt meira að segja bara tímabundið svekkelsi. Garðar  Örn átti greinilega ekki góðan dag í kvöld en það bitnar nú sennilega minnst á honum heldur öðrum. Þetta er nú svo sem ekki í fyrsta sinn sem að hann hleypur hreinlega á ostum og dæmir eins og tréhestur (hef reyndar aldrei séð tréhest dæma en maður tekur svona til orða. Er búin að hringja aðeins í kringum mig í kvöld og mörgum finnst nóg komið að miður góðri dómgæslu í sumar, vonandi er þeim kafla lokið.

 Nennir einhver að taka saman síðustu 3 ár hjá Garðari Erni og skoða hvað um margar brottvikningar er að ræða í leikjum hjá honum. Mér finnst alltof oft vera hasar í kringum hann - er ég kannski að rugla eitthvað?

 


mbl.is Skagamenn sáu rautt í 2:0-tapleik gegn KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háttvísi í hávegum höfð....

...eða eru dómararnir svona slakir?  Ljótar eru sögurnar sem að maður heyrir að sumir fái óendanlega sénsa til þess að ná þrekprófum flautublásara.  - En einhverjar sektirverða nú sendar út eftir næsta fund aganefndar
mbl.is Sex rauð spjöld í leikjum dagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grátbroslegt

Ég tek þessu sem hverju öðru gríni! ætla Valsmenn virkilega að fara ða kaupa fleiri leikmenn? það hlýtur ða vera næs að vera þjálfari á svona stöðum þar sem allt gengur út á ða kaupa leikmenn en ekki skapa, það er að verða lenska frekar en hitt ííslenskum fótolta að kaupa bara í allar stöður innan félags frekar en að þjálfarinn taki til hendinni og móti yngri leikmenn sem félagið er búið að vera að nostra við frá því í 7 flokki jafnvel  - hörmungarþróun, og þettaá nú við um nokkur liðin í deildinni....hvað varð um þjálfarana sem sköpuðu menn úr eigin röðum?  Ætla ekkert að tjá mig of mikið um þetta að sinni en finnst þetta létt grín og finnst hreint með ólíkindum hvað menngeta hent mörgum milljónum í þessa leikmenn, hugsið ykkur ef að félögin legðu bara hluta af þessu í að efla unglingabatteríið hjá sér með betri og markvissari þjálfun það kæmu öflugri leikmenn úr eigin garði, og grunnur félagsins yrði öflugri og reksturinn eflaust ekki eins erfiður - hver veit. 
mbl.is Valsmenn fá leikmann frá Randers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.