Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Nú rifta menn samningi....

....og eru ekki reglurnar hjá KSÍ þær að ef að stjórn lætur þjaálfara fara að þá þarf að ráða þjálfara með fulla menntun í staðinn, en að ef að þjálfarinn segir upp sjálfur þá má ráða menn án réttinda út tímabilið.   Var þetta ekki svona - myndi gjarna vilja að einhver kæmi með svör við eþssu - er ekki einhver innanbúðar sem getur svarað þessu eins og maður þarna úti.


mbl.is Guðjón hættur með ÍA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú ég hélt að Pétur Pétursson

væri að taka við - eitthvað eru mínar heimildir af öðrum toga.

 ..en ég vitna í pistil minn síðan í gærkvöldi um það hvernig mér finnst eiga að taka á þessu. En svo getur verið að samningurinn við Gauja sé auðlesanlegur - menn hljóta að taka tillit til heildarhagsmuna félagsins þegar svona ákvörðun er tekin.


mbl.is Taka Arnar og Bjarki við þjálfun Skagamanna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velti fyrir mér...

...hvort fimleikafélagið taki dolluna?

...hvort að ekki hefði verið réttara hjá HK að hleypa eigin blóði í liðið í stað þess að kaupa Kekic í liðið. Tek fram að ég sá ekki leikinn og veit ekkert hvernig hann stóð sig, finnst hitt bara rökréttara HK mennhafa verið að vinna ágætis unglingastarf síðastliðin ár og sú áhersla sem lögð er á það hlýtur að vera ætluð til þess að búa til leikmenn til að bera kyndilinn, ég veit að það eru þarna efnilegir strákar.

...hvort Tryggvi verði markakóngur?

 


mbl.is FH skoraði fjögur gegn HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur á byrjunarreit!

Nú held ég að Skagamenn þurfi að fara aftur á upphafsreit og stokka allt upp hjá sér til að hleypa lífi í þetta. Þeta lið er ekki lakara en mannskapurinn sem að þeir voru með í fyrra en andinn virðist ekki vera til staðar. Menn þurfa að setjast niður og byrja að teikna upp á nýtt. Lausnin er held ég ekki að reka þjálfara - held að fáir þjálfarar ef nokkur á Íslandi séu líklegri en Guðjón til þess að geta hrist upp í hrúgunni. Eru ásarnir íliðinu að standa sig? Menn geta skoðað útlendingana t.d. eru þeir að standa sig? Ef ekki má þá ekki senda einhvern heim og hreyfa þannig jafnvel við öðrum - skilst á mínum heimildarmönnum að t.d. þessi Cingel sé ekki að spila vel! hafa menn þá eitthvað við hann að gera? Er ekki plássið alveg eins vel nýtt þá í að gefa einhverjum með Skagahjarta tækifæri, ég veit að hópurinn er smár en samt.  - Svo reyndar hefur verið of mikið um meiðsli og leikbönn hjá þeim sumt af því er örugglega heimabakað og það þarf að laga.

Þjálfari kostar sitt - og jafnvel líka að láta hann fara - En hann tók að sér verk og því á hann bara að halda þeirri vinnu áfram, ég man ekki betur en að m.a.hann hafi talað um að það ætti að taka einhver ár í að byggja upp! - man einhver eitthvað annað?  Guðjón á þá bara að halda ótrauður áfram sínu starfi, menn spiluðu yfir væntingum í fyrra en fá harðari móttökur núna en eru ekki alveg að klára að takast á við það. Skagamenn hafa klárlega einn besta leikmann landsins í Bjarna Guðjóns og í kringum hann ættu menn að geta blásið til sóknar. Skagamenn eru reyndar ekki með stóran hóp þessa stundina, og það sem er að koma í gegn eru kannski ekki bestu leikmenn landsins en ég efast aldrei um hugarfarið hjá uppöldum leikmönnum á Skaganum, reyndar eru til undantekningar.

Aftur í grunninn og blása svo til gagnárásar og þetta á ekki aðeins við um kn.ráð, þjálfara og leikmenn þetta á líka við um stuðningsmenn Skagaliðsins þeir hafa nú oftar en ekki verið 12 maðurinn.

Ef ekki er þörf á að þjappa sér saman núna þá hvenær?

Væri gaman að heyra hvað Skagamönnum finnst.

Já og Blikarnir halda áfram að styrkja stöðu sína og menn eru hættir að tala um að Blikar blómstri aðeins á vorin, nú er en að lengjast í þessu hjá þeim, enda þeir með fínt lið.


mbl.is Blikar kafsigldu Skagamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjáni! Ég bað um sigur!!!

...en ég sætti mig svo sem við þetta. 1 stig er skárra en ekkert eins og einhversstaðar stendur, svo er aldrei að vita nema að önnur úrslit verði hagstæð íþeim leikjum sem eftir eru í umferðinni.

Líka leiðinlegt að ná ekki að klára eftira ðhafa verið með forskot svona lengi en það verður víst að þrauka út leiktímann ef að vel á að fara.

Njóttu helgarinnar Stjáni minn.


mbl.is Kristján: Sjálfstraustið alltaf að vaxa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa Keflvíkingar það sem til þarf....

.....eða kveður Pálmi Rafn með stæl.

Já það verður forvitnielgt að sja´hvernig þessi elikur kemur tilmeð að fara. Einn besti leikmaður Íslandsmótanna undanfarin ár Pálmi Rafn að leika sinn síðasta leik með valsmönnum, í bili allavega, og vill væntanelga klára þetta með sæmd og hjálpa Valsmönnum með að halda uppi pressu á FH-inga og Keflvíkinga og svo á sömu stundu er þetta kjörið tækifæri fyrir Kflvíking að sýna á sér klærnar og að þeri seú vikrilega klárir í baráttuna umtitilinn, sigur í dag sýnir svo ekki verður um villst að þeir eru klárir í baráttuna - ég vona innilega að peyjarnir hans Stjána taki þetta og það með glans.

Gæti verið að Pálmi Rafn komi til leiks með hálfpartin hangandi hendi þar sem að hann er nú að fara að yfirgefa liðið og taka til starfa hjá nýjum vinnuveitendum - það hefur oft reynst mönnum hættulegt og menn spila einfaldlega illa á þeim stundum.


mbl.is Kveðjuleikur Pálma Rafns með Valsmönnum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öllu tjaldað

Það er greinilegt að Keflvíkingar leggja allt undir í baráttunni við að landa Íslandsmeistaratitlinum og þessi liðsstyrkur er náttúrulega alveg frábær. Jóhann Birnir hefur nú margan gengið í gegnum ýmsilegt í boltanum og spilað víða - frábær leikmaður og fínn karakter og ég hef ekki trú á neinu öðru en að hann styrki lið Keflívíkinga verulega - Spurningin er bara sú hvort hann er spilarinn sem að Stjáni Guðmunds þarf til þess að halda toppsætinu út mótið og koma þar með dollunni til Keflavíkur en þeir unnu hana síðast þó nokkru áður en litasjónvarpið kom til landsins.

Vona að Stjána og félögum gangi áfram vel.


mbl.is Jóhann Birnir til Keflavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HHHHHmmmmm

Ekki er ég svo viss um þessi skipti - jú víst hafa þau átt sér stað -  en ég er bara alls ekkert viss um að þau virki og er heldur ekki viss um hvort hann færir það sem þeir þurfa til að hrista af sér slenið - en ég gef honum tækifæri á að láta mig iðrast þessara orða.
mbl.is Kekic búinn að skipta yfir í HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi drengur á þetta svo sannarlega....

...skilið

Verið einn besti, ef ekki bara besti leikmaðurinn á Íslandi síðustu 2-3 ár. Frábær leikmaður á Íslenskan mælikvarða og nú er að vona að hann stígi en eitt skrefið upp á við og standi sig með sama sóma í Noregi - Gangi þér vel -


mbl.is Pálmi Rafn á leið til Stabæk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara körfuboltabær!

Skyldi strákunum hans Stjána takast að halda haus og klára mótið? Verð að segja ða mér leiðist ekki árangur Keflavíkur þetta árið, alveg kominn tími á að eitthvða nýtt lið leiði mótið og mér væri slétt sama þótt að þeir kláruðu þetta bara. Alltaf gaman þegar að landsbyggðarlið nær að bíta frá sér og megi verða framhald á því. EN það er nú meia en nóg eftir af mótinu og kannski að menn missi sig með því að fara á ÞJóðhátíð eða eitthvað álíka um verslunarmannahelgina og missa andann af þeirri helgi lokinni eða að menn ofmetnast og verður hált á svellinu þegar fram líða stundir en ég vona svo sannarlega að svo verði ekki.  Vona að Stjáni hafi hemil á sínum mönnum

HK menn eiga en í miklum erfiðleikum, og ég er á því að stjórnin þar hafi gert stór mistök með því að segja Gunnari upp, ekki bara af því að ekki gekk sem best heldur líka af því að þeir virðast ekki hafa haft hugmynd um hvað þeir ætluðu sér í framhaldinu - því miður - En kannski að HK rétti sinn hlut þegar líður á mótið, þó ekki virðist miklar líkur á því þessa dagana.

Hið rauða lið Grindavíkur er ekkert að gefast upp frekar en liði Reykjavíkur þróttar og víst er að Skagamenn þurfa að fara að taka á honum stóra sínum ef ekki á illa að fara fyrir þeim gulu og glöðu.

Þeir grænu í Kópavoginum minna mig alltaf á gamla Týsbúninginn - grænn og fallegur - og það er í raun það eina sem ég hef um þá að segja að svo stöddu en verð að viðurkenna að ég vil að Óli Kristjáns hafi Olgeir eyjapeyja alltaf í byrjunarliðinu. 

- Nú bíð ég bara eftir að ÍBV mæti Leikni í fyrstu deildinni á fimmtudaginn.


mbl.is Keflvíkingar í efsta sæti eftir sigur á Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband