30.7.2014 | 06:19
Hvar er vasaklútur Gauta Þormars?
Afar sérstakur fréttaflutningur. Hélt að mbl.is væri yfir svona dapra fréttamennsku hafinn en svo virðist ekki vera. Þetta eru ekki svo háar tölur per haus þegar uppi er staðið. Hafa menn prófað að taka hótelherbergi í Reykjavík, ja eða annarss staðar, í 3 jafnvel 4 nætur? Hvað kostar það? Oft er þarna um að ræða hús með öllu innbúi fólks og aðgengi að öllum þeim þægindum sem fólk vill hafa í kringum sig. Ísskápar, grill, uppábúin rúm, salernis- og sturtuaðstaða, þægileg rúm og ég veit ekki hvað. Horfið á heildarmyndina.
Veit um hópa sem greiða allt frá 5750 per haus per nótt og upp í nokkuð meira og þarna er miðað við 3-4 nætur. Er ansi hræddur um að svona ódýr gisting finnist ekki í Reykjavík, ja nema í Laugardalnum og þá að þú takir með þér þitt eigið tjald.
Fínt að taka hausinn úr sandinum áður en menn fara að fabúlera um svona hluti. Kannski að pilturinn og félagar tjaldi bara þessa helgina.
En hvað sem öðru líður þó óska ég fólki góðrar skemmtunar um þessa helgi, sem og aðrar, og að allir komist heilu og höldnu í gegnum þessa daga. Alveg sama hvað þið takið ykkur fyrir hendur gott fólk þá segi ég: góða skemmtun
Hundruð þúsunda fyrir íbúð í Eyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.7.2014 | 09:56
Hjálp, hjálp hvar er framsókn
Hvað er eiginlega í gangi? Er búið að láta þingmenn og stuðningsmenn framsóknar vita? Þetta er náttúrulega ekki hægt. Skondið að þarna er líka sagt að kjötið standist þeirra kröfur - ok - eru það einhverjar eðalkröfur? Þetta eru jú pylsur sem við erum að tala um. Ekki eins og það sé einhver hágæða vara.
Ég er nú þeirrar skoðunar að menn eigi nú að fara að skoða þetta aðeins með innflutninginn og heimila hann í auknum mæli og hætta þessu ýkta verndarsjónarmiði sem er í gangi hér á landi.
Danskt kjöt í SS-pylsum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.7.2014 | 20:35
...við berjum hann bara!!!
...er alveg hættur að skilja þetta. Þarna kemur Stjáni inn á það að leikmenn Þórs sé grófir og gangi fram í leikjum sínum með óíþróttamannslegum hætti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég heyri þetta í sumar og ég heyrði af því ávinning um daginn að menn hefðu gengið ansi hart fram gegn KR-ingum um daginn en verið verndaðir á einhvern hátt af dómurum leiksins. Var það sama upp á teninginum í gær? Spyr sá sem ekki veit. Ég veit ekki með ykkur en ég hélt að í efstu deild karla, Pepsi-deildinni, væri það fimi með knöttinn sem réði ríkjum en ekki einhver bolabrögð þegar boltinn er jafnvel víðs fjarri - Hlakka til sjá Þórsarana koma til Eyja seinna í sumar, þ.e.a.s. ef að það má kalla þessa veðurhörmung sumar.
Áfram ÍBV alltaf allsstaðar
Skulum ekki telja upp alla sem voru lamdir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.7.2014 | 08:49
...sjúkur heimur
Hversu sjúkt er þetta orðið allt saman? Er einhver þarna úti sem getur skýrt þetta út fyrir mér? Hélt að þarna væri allt morandi í trúuðu fólki sem vissi að svona hörmungar leystu engan vanda en svo virðist ekki vera. EInhvern veginn tekst fólki alltaf að réttlæta fyrir sjálfum sér einhvern viðbjóð gegn náunganum ef því svo þóknast. Allt common sense fer út um gluggann og eftir stendur berskjaldað hatur í garð næsta manns og réttlætingin felst í því að sjá flísina í auga náungans en ekki bjálkan í eigin auga. - sorglegur á alla kanta þessi viðbjóður.
...að mæta svo til að sitja í stúku til að sjá viðbjóðinn er nú með því fáránlegra sem ég hef heyrt lengi.
Fylgjast með árásunum af Sderot-hæð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.5.2014 | 11:28
...er biskupinn ekki jarðtengdur?
Slæmt þykir mér að lesa þetta og sjá að hinn mæti og mikilsmetni prestur Ólafur Jóhann fái ekki stöðuna með stuðningi biskups. Án þess að kasta rýrð á aðra presta landsins þá verður ég að segja að ég held að fáir, ef nokkur prestur, hafi sungið sig jafn ljúflega inn í söfnuð sinn og Ólafur Jóhann hefur gert. Afskaplega heilsteyptur og skemmtilegur karakter þessi drengur og sóknarbörn hans eru svo sannarlega á þeirri skoðun líka.
Þykir ekki gott að sjá þetta mál fara í þennan farveg, þó hann sé kannski hinn rétti að mati biskups, en ég trúi því að sóknarbörnin munu hafa sitt í gegn og að biskup verði sáttur við þá niðurstöðu.
Biskup hafnar tillögu um séra Ólaf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2014 | 09:27
....og það heldur áfram!!!
Það er ekki aðspyrja að því þetta verður svona löng og ströng deila - það þarf nú að fara að huga að þessum rekstri á annan hátt ef þetta er orðin raunin - þetta er þjóðvegur okkar skerverja og þetta er engan veginn ásættanlegt. Þessi þjóðvegur er í boði ríkisins og því er spurning um það á þessum tímapunkti - já bara akkúrat núna - hvort að það á ekki bara að láta ríkið alfarið yfirtaka þetta og segja bless við aðra er að rekstrinum koma - varla versnar þetta!!!
Ég skil það vel þegar þjóðvegir verða ófærir af náttúrunnar völdum en að menn loki honum á þennan hátt er óþolandi
Þetta er gjörsamlega óásættanlegtástand það sér það hver maður, hver kona og hvert barn.
Herjólfsdeilan er enn í hnút | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2014 | 16:27
Hörmungin ein - vægast sagt, sýnum samstöðu
....ekkert að frétta þarna - og bæjarfélaginu blæðir.
Við höfum ekki vegi eða göng og þurfum því að hafa þetta í fullkomnu lagi.
Þið sem eruð á því að þetta sé ótækt óstand getið kvittað hér - trúi því ekki að landsmönnum sé einfaldlega bara sama um að svona sverfi að bæjarfélögum sama hvort það eru Vestmannaeyjar eða annað byggðarlag, endilega kvitta takk.
kær kveðja úr Eyjum
Mikið tjón fyrir Vestmannaeyjar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2014 | 17:59
Nú er nóg komið!
...nú þurfa menn að fara að finna flöt á þessu. Þetta er orðið ágætt í bili, takk fyrir
Er farinn að halda að þessar viðræður snúist meira um þrjosku en skynsemi og það kann ekki góðri lukku að stýra.
Langt í land hjá Herjólfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2014 | 16:15
...að vera úr takt
Ákallið hærra en ég átti von á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2014 | 23:54
Snillingar þessir peyjar
Fjórði sigur Eyjamanna í röð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2014 | 15:29
Ævintýri að eignast barn!!!!
Þetta er bara orðið meiri háttar mál að eignast barn og búa í Eyjum. Þetta er náttúrulega á engan hátt boðlegt, svo vægt sé til orða tekið. .....þetta er nú ekki vænlegt til eflingar byggðarlags eins og okkar ef þetta er í svona miklum lamasessi sem nú er. En til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn Aníta og Sigurður Oddur.
Við skulum svo vona að það rætist úr málum hérna í suður höfum á næstunni.
Þriggja tíma sjóferð með nýfætt barn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2014 | 07:57
...og við sitjum eftir!!!
Færeyjar, Noregur og ESB semja um makríl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.3.2014 | 08:33
Rugl er þetta
Vill rannsókn á máli Más | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)