Ekkert er nú jafnréttið!!!

Allt gert upptækt einn, tveir og þrír. Pínu lítið brugg og það horfið í eitthvert niðurfallið. En peningarónar þjóðarinnar fá að valsa um með bros á vör og stunda iðju sína áfram þó oft liggji málin jafn augljóslega á borðinu og blessað bruggið!!
mbl.is Kraumandi gambri í Grímsnesinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gott!!!

Ekki það að mér sé neitt sérstaklega uppsigað við neinn þarna í stjórn KSÍ en þá finnst mér að í svona samtökum eigi að eiga sér einhver mannabreyting hverju sinni. Einn til 2 aðilar að detta ut og aðrir að koma inn. Það á að vera hámarksseta í stjórn. og eftir það áttu að þurfa að víkja allavega eitt kjörtímabil en getur svo gefið kost á þér aftur. Nærð þá væntanlega inn aftur ef að áhugi þeirra er sitja þingið á aðkomu þinni að stjórn sambandsins er fyrir hendi. Finnst þetta nauðsynlegt til að halda ákveðnu flæði og ferskleika á starfi sambandsins. Þetta á að sjálfsögðu líka við um formannssætið líka. Hitt getur haft þau áhrif að þetta verið svona eins konar sjálfseignarstofnun einstakra aðila. Það er ekki gott og hreyfingin á fullt af góðu og frambærilegu fólki sem vel getur staðið í fremstu víglínu fyrir sambandið.
mbl.is Öll stjórnin tilbúin áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn verður óbarinn biskup....

....hvað þá forsætisráðherra!!!
mbl.is 4,3 milljarða gjaldþrot BNT
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vera nafni einhvers!

Gaman að sjá þetta. Alltaf heiður þegar einhver/eitthvað er skýrt í höfuðið á manni. Það er bara þannig. Er samt alveg viss um að Bono hefur ekki misst svefn yfir þessu.

Varðandi hljómsveitina og plötuna  þá er spurning hvort hægt er að segja að Joshua Tree sé ei n af fyrstu plötum U2 þar sem hún er nú 5 stúdíóplata þeirra - og sumir vilja meina 6 platan þar sem að tónleika platan Under a Blood Red Sky kemur þarna á milli War og The Unforgettable Fire.

Ég sténd reyndar í þeirri meiningu að Joshua Tree nafnið sé dregið af plöntunni en ekki þjóðgarðinum, en það getur svo sem verið rangt hjá mér. Plantan sennilega samt í miklum mæli í Joshua Tree þjóðgarðinum.

e.s. er reyndar búinn að panta eintak af kngulónni til landsins


mbl.is Kóngulóartegund nefnd eftir Bono
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafmögnuð stemning í kringum Icesave

Icesave málið dettur ekki niður dautt svo mikið er víst. Nú er búið að hleypa straumi á málið á ný: Verður gaman að sjá hvort þessi straumur nær að tendra ljós einshversstaðar annarsstaðar en hjá okkur hér á klakanum. - Við getum þá kannski nýtt okkur það í að rækta túlípana til útflutnings!!!!!

.....rosalega verð ég glaður þegar það er komin niðurstaða í þetta blessaða mál.


mbl.is Vilja rafmagn upp í Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðaleppar til eftirbreytni!!!

Það er ég smeykur um að viðkvæmt fólk fái fyrir hjartað þegar Kári Kristján tjáir sig! Allt samt vel meint hjá honum og fólk verður bara að tóna orðin niður í huganum en svona er Kári Kristján, og þannig hef ég alltaf heyrt hann tjá sig, og ég myndi ekki vilja hafa hann öðruvísi.

Takk fyrir framlagið Kári Kristján og þið hinir - stolltur af ykkur - nú er bara að slaka á í kvöld og svo tekur næsta verkefni við. Áfram Ísland


mbl.is Kári: Bara viðbjóður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður fengur!

Andri gæti orðið góður fengur fyrir KR verði hann heill á komandi sumrum. Sprækur strákur með mikla reynslu, vinnusemin og festan í lagi en vantar örlítið meiri aga í leik sínum en kannski að þjálfarateymið í vesturbænum takist að aga hann.

Lýst ágætlega á þetta hjá honum, fyrst að hann fór - er Guðs lifandi feginn að hann fór ekki í t.d. Val - en hann hefur gott af því að skipta um umhverfi og takast á við nýja hluti - óska honum alls hins besta en ekki liðnu hans. - hahaha


mbl.is Andri Ólafsson til KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neita að trúa þessu!!!

Ótrúlegt að ég skuli ekki hafa fengið vinning!!! Maður er nu orðinn svo leiður á svona skilaboðum - alveg sama á hvaða máta þau berast. Endalaust flóð af þessu og allskyns upplýsingar sem að maður á að senda og ég veit ekki hvað. Ég bara neita að trúa því ða fólk sé en að falla fyrir þessum "gylliboðum"
mbl.is Lögreglan varar við smáskilaboðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einfallt! Allt eða ekkert

Nú er allt undir og því um lítið annað að ræða en að gera sitt allra allra besta og sjá hvort það dugar til að klekkja á hinu magnaða franska liði sem við mætum í kvöld. Við verðum bara að vona að svo sé og að við förum áfram.  Áfram Ísland
mbl.is Aron: Menn munu skríða út af vellinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaður leikmaður

Algjörlega magnað eintak af leikmanni Guðjón Valur. Hann hefur nú aldeilis fært manni gleðistundirnar í gegnum árin. Slíkt er ekki metið til fjár ;)

Árangur landsliðisns hefur verið svo magnaður síðustu ár að það hálfa væri nóg. Finnst stundum eins og við gleymum hversu gott strákarnir hafa verið að gera það. Hugsið ykkur hvernig þessir fáu strákar og þeir er að liðinu standa gefa lyft þjóðinni á hærra plan þegar vel gengur. Lækkað bensínverð! sértilboð á ajónvörpum, pizzum, hamborgurum og ég veit ekki hvað - það er nú nokkuð ekki satt. Auðvitað verður við pínu svekkt þegar strákarnir okkar tapa, en oftar en ekki hafa þeir hrist það af okkur í næsta leik - kannski verður það svoleiðis á morgun - við vonum það besta. Áfram Ísland

e.s. sakna þess reyndar pínu að sjá ekki lengur tilboð á VHS-tækjum ;)


mbl.is Guðjón setti nýtt markamet á HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta líkar mér - peyji með metnað

Gleður mig að sjá að þetta sé gengið í gegn nú er bara fyrir pilt að standa sig hjá mávunum. Þokkalegur uppgangur hjá félaginu og eins og hann segir glæsilegur nýr leikvangur, sem en er verið að bæta við sætum á og svo er nýtt æfingasvæði framundan. Reksturinn virðist vera góður um þessar mundir og meðbyrinn mikill. Liðið er með mesta aðsókn hjá liðum fyrir utan úrvalsdeildina rúmlega 25.500 sem er nú sérdeilis fínt bara. Það þýðir í raun að það er nánast uppselt á hvern einasta leik.

Býð Emil velkominn í mávagerið og megi tími hans þar vera góður. Hlakka til að sjá hvernig honum gengur að fóta sig þarna.


mbl.is Emil samdi við Brighton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt fyrirkomulag!!

Þetta er nú með því betra sem ég hef heyrt lengi: „Við töpuðum ekki leiknum viljandi en við reyndum heldur ekki að sigra."

Hvað reyndu menn þá? Hefði verið skondið að sjá leikinn ef hovurgt liðið hefði viljað vinna - það hefði verið afar sérstakt. hissa á mönnum að bjóða ekki upp á slíkt í þessari riðlakeppni. Þetta fyrirkomulag náttúrulega afar sérstakt miðað við kerfið sem var og virkaði ágætlega og allir leikir gegn góðu iðunum gátu gefið þér stig í framhaldið. Það er mun heilbrigðarakerfi.


mbl.is „Við reyndum heldur ekki að sigra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisvert - einkar athyglisvert

Verð nú að viðurkenna að ég er ekki alveg að skilja þessa ráðstöfun hjá stjórn Southampton. Verðum við ekki að vona að stjórnarmenn dýrlinganna viti hvað þeir eru að gera þegar þeir láta dýrling fara og ætla að reyna að skapa nýjann? Adkins náð frábærum árangri með liðið. Liðið hefur verið að rétt hlut sinn í efstu deild síðustu misseri og því er e´g ekki að kaupa þetta þá svo að menn hafi sent þessa yfirlýsingu frá sér. - er reyndar sammála hugyndafræðinni þarna en hef hvergi séð Adkins hallmæla henni.

Southampton executive chairman Nicola Cortese said: “This decision has been made with the long-term ambitions of Southampton Football Club in mind.

"Whilst we acknowledge the contribution Nigel has made during the past two years, for the Club to progress and achieve our long-term targets a change was needed.

“Mauricio is a well-respected coach of substantial quality who has gained a reputation as an astute tactician and excellent man manager.

"I have every confidence that he will inspire our talented squad of players to perform at the highest possible level.

“He also shares my belief that the most successful clubs are built by nurturing young players through a development system that provides a clear path to the first team, thereby creating a culture that keeps them at the club for the long term.

"This is an approach he has employed with great success in the past and I look forward to him bringing that experience and expertise to Southampton.”

 

 


mbl.is Southampton skiptir óvænt um stjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband