Ekki sitja heima!

stjornlagathing_1044349Ágætu Landsmenn

Þann 27. nóvember n.k. , á laugardaginn, verða haldnar einstæðar kosningar í sögu lýðveldisins. Þá verður kosið til stjórnlagaþings. Eitthvað sem ekki hefur verið gert áður. Kjósa á fólk til þess að takast á við það verkefni að fara yfir stjórnarskrá lýðveldisins. Mikið  og krefjandi verkefni.

Við hljótum öll að vilja taka þátt í að velja það fólk sem okkur líst best á til að takast á við þetta mikilvæga verkefni. Það er því afar mikilvægt að þú kjósandi góður látir ekki þitt eftir liggja og mætir því á kjörstað og tjáir hug þinn. Þetta eru persónukosningar og því öðruvísi kosningarfyrirkomulag en fólk hefur áður kynnst hér á landi, þess vegna er gott að::

  • Undirbúa sig heima og velja sér frambjóðendur af vefnum eða eftir prentaða bæklingnum sem dreift var í hús. Skrifið svo ykkar frambjóðendur á æfingakjörseðilinn sem þið fenguð einnig sendan heim.
  • Raðið eins mörgum frambjóðendum og þið frekast treystið ykkur til, eða treystið, frá 1 til 25,  en munið eftir því að skipa þeim í forgangsröð; hún skiptir meginmáli.
Ég leita eftir stuðningi ykkar . Skoðaðu hvað ég hef fram að færa. Ég treysti á að þú látir ekki þitt eftir liggja.

 - Ekki klikka á að kjósa.

Gilli Hjartar - 3612

mbl.is Um 5.500 kosið utan kjörfundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki klikka á að kjósa

Ágætu Landsmenn

50 milljónir?

Ætli maður megi ætla að hátt í 50 milljónir Bandaríkjamanna lifi undir fátæktarmörkum? Það er nú nokkuð há tala. Hver ætli fjöldinn sé í sumum þessum löndum sem við berum okkur saman við? Í höfðatölu samanburði við t.d. USA, hvar ætli við stöndum? Betur? Verr?
mbl.is Fátækt eykst í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Genasametning?

Erum það bara við Íslendingar eða eru allir í þessum leikjum varðandi Facebook
mbl.is Mörg íslensk fyrirtæki brjóta reglur Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ísland að verða eins og Írland?

Í greinni segir meðal annars eftirfarandi. Legg það svo í hendurnar á hverjum og einum að dæma fyrir sig:

- Erum við að fara á horfa fram á, svo ég orði það umbúðalaust, lágstétt fátækra Íra?

„Gjáin á milli ríkra og fátækra á Írlandi hefur alltaf verið sláandi. Ójöfnuðurinn er því þegar sláandi á Írlandi. Við vitum ekki hvað mun gerast á Írlandi.“ 

Traust á stjórnmálamönnum er ákaflega lítið. Mikið af ungu fólki er að flytjast af landi brott. Við eigum eftir að sjá hvernig fjárlögin líta út en það er morgunljóst að sá niðurskurður sem rætt er um mun óhjákvæmlega hafa alvarleg áhrif á félagslega samheldni á Írlandi.

Írska stjórnin sagði á sunnudag að hún þyrfti að sækja 15 milljarða evra fyrir 2014. Hún hyggst gera það með því að draga úr útgjöldum um 10 milljarða evra og með því að sækja 5 milljarða evra með skattahækkunum. Þetta verður mjög erfitt en felur þó í sér tækifæri til að breyta hlutunum á Írlandi og vonandi komumst við út úr þessu sem betra þjóðfélag.“

....og svo þetta:

....Aðspurð hvort hún telji að Írar beri að kasta evrunni og taka upp írska pundið á ný segir Byrne að fáir ef nokkrir Írar haldi þeirri skoðun á lofti. „Reiðin beinist ekki að Evrópusambandinu heldur að írskum stjórnvöldum,“ segir Byrne.

Já það eru ótæk stjórnvöld víða.

mbl.is Gífurleg óvissa á Írlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stutt stopp

Þetta var stutt stop  hjá Ásgeiri hér á Eyjunni í suðri. Þakka hans framlag í okkar góða árangri síðasta sumar og óska honum góðs gengis í Kópavoginum. Það verða greinilega nokkrar breytingar hjá okkur Eyjamönnum fyrir næsta keppnistímabil, eins og oft áður. Vona ara að uppskeran verði góð næsta sumar.
mbl.is Ásgeir Aron samdi við HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið besta má ....eða hvað

Sitt sýnist örugglega hverjum um þetta eins og annað. Heiðar Már umdeildur aðili heyrir maður víða. Getur hann verið drátturinn á að svar berist frá Seðlabanka Íslands? Ætli þessi fjárfestahópur væri búinn að eignast Sjóvá ef hans hefði ekki notið við í hópnum?   ....en hvað gerist nú með Sjóvá?
mbl.is Segja sig frá kaupum á Sjóvá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein bíómynd hugsið ykkkur

Þetta eru svakalegar tölur. við svona skyndireikning þá erum við að tala um að þessi nýja Harry Potter mynd verður ekki lengi að hala inn sem nemur niðurskurðinum á fjárlögum ríkisins. Það segir okkur kannski hvað við erum lítil íraun en í okkar augum er vandamálið risavaxið. Það er t.d. talað um að tónleikaferð U2 sem nú stendur yfir muni hala inn sem um nemur 100 milljörðum króna. Hugsið ykkur 4 menn með hljóðfæri að flytja sínar tónsmíðar!!!! 
mbl.is Bíógaldur Potters
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miklir snillingar

Það er ekki ofsögum sagt að þarna séu tveir af merkustu leikmönnunum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Scholes hefur mér alltaf þótt flottur spilari. Einn af þeim sem að þú veist alltaf nákvæmlega hvað þú færð út úr. Hann hefur þetta drápseðli sem er svo gott að hafa í góðum miðjumönnum, og á það svo til að birtast þegar síst skyldi og skora flot og mikilvæg mörk.  Giggs aftur á móti er í mínum bókum einn af mínum þremur uppáhaldsleikmönnum sóknarlega í þessari blessuðu deild, hinir eru Shearer og Henry. Einhver flottasti leikmaður United frá upphafi. Snillingur mikill og skemmtanagildið sem hann hefur fram að færa er óumdeilt og hefur glatt fleiri augu en talin verða á einfaldan hátt. Auðvitað er aldurinn að færast yfir þá, eins og aðra, en af hverju ekki aðlengja við þá um eitt ár. Þeir munu kannski ekki spila eins mikið en áhrif þeirra á leikmennina sem eru að koma í gegn eru óumdeilanleg.
mbl.is United vill framlengja við Giggs og Scholes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin birta!

Sólin ætlar alls ekki að staldra of lengi við fyrir ofan 50% þetta tímabilið! Ja ok þeir eru bara komnir með 13 leiki en búnir að tapa 7. Steve Nash reydnar eitthvað tæpur og var hafður á bekknum allan leikinn. Goran Dragic kom inn í hans stað og stóð sig vel 17 stig og 10 stoðsendingar. Grant Hill með 23 stig en ljóst er að menn voru ekkert svakalega heitir fyrir utan línuna því menn settu ekki niður nema 5 þriggja stiga skort af 21 einu.   ....vona að menn fari nú að ná kannski eins og svona 3 sigurleikjum í röð.
mbl.is Parker fór fyrir Spurs í enn einum sigurleiknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.....ja hérna hér

Hingað inn í prentsmiðju kom áðan maður sem réð sér varla fyrir kæti því liðið hans, Arsenal, var hreinlega að rúlla upp erki-óvinunum í Tottenham. 2-0 sagði hann - segi það og skrifa. Frábært. Svo fór hann héðan út með það sem hann hafði komið hingað til að sækja, já og með bros á vör.

Núna sest ég niður og kveiki á tölvunni! Leikurinn búinn og hann endar með sigri erki-óvinanna Í Tottenham 3 mörk gegn tveimur. Það verð ég að segja að ég er ánægður að maðurinn er búinn að sækja það sem hann átti að sækja!!!  ...ekki vil ég fá hann hér inn núna, nenni ekki að hlusta á þann fúkyrðaflaum sem því myndi fylgja!!!

mbl.is Frábær endurkoma hjá Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn af ásunum

Grétar Rafn er ekki bara einn af ásunum í íslenskri knattspyrnu heldur einnig í liði Bolton þar sem hann nýtur mikillar virðingar enda spilari sem alltaf gefur sig 100% í hvern leik. Hann kvartar ekki og kveinar eða neitt í þeim anda. Þetta kann fólk að meta í Englandi, og víðar, þegar kemur að því að velja sér uppáhaldsleikmenn. Það er nú t.d. þetta sem hefur gert Hemmi Hreiðars að þeirri stjörnu sem hann er. Þetta eru ekki endilega mestu tæknitröllin í skúffunni en þeir leggja sig alla fram fyrir sig lit og aftar en ekki skilar það árangri. Held að við getum reiknað með því að ef fjárhagsvandræði Bolton halda áfram að hrjá félagið og til greina kemur að selja Grétar Rafn þá held ég að sú sala verði aðeins til liðs sem er stærra en Bolton, minni lið hafa einfaldlega ekki efni á honum.
mbl.is Grétar gæti spilað 100. leikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú legg ég til að.....

....vefsíðustjóri mbl.is setji upp bara sér fréttadálk fyrir Herjólf á forsíðu mbl.is og þar verði bara þessar stöðugu uppfærslur svo að maður þurfi ekki alltaf að vera að lesa þær sem part af aðalfréttum mbl. Þetta held ég að væri fín lausn á meðan þessi óvissa öll er í gangi.

Eruð þið ekki sammála?

mbl.is Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband