Bjartsýnir.....

...eigendur, verð ég að segja. Held samt að menn kljúfi ekki þessa veggi á bjartsýninni einni saman. Ég ef smeykur um að íslensku fjölmiðlarnir séu flestir við það að leggjast af. Hef ekki þessa ofurtrú. Var ekki búið að gefa út tölurnar fyrir Morgunblaðið? Var ekki góður hagnaður þar? ...reikna nú ekki með að heyra neitt um Fréttablaðið þó vissulega væri gaman að fá af því fréttir, þ.e.a.s. hvernig reksturinn þar blómstrar.  Það varð nú hagnaður á Sjónvarpsvísi í fyrra en ekki var hann mikill, en hagnaður þó.  Smile
mbl.is Tap á rekstri DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gulir og graðir........

.....í teignum!!!! Ætli það verði vörumerki Skagamanna í sumar?  Spáði þeim sigri í deildinni, verður gaman að sjá hvað gerist á Skaganum.  Hlakka til að sjá hvernig fer fyrir vestan á morgun þegar ÍR-ingar koma í heimsókn.......
mbl.is Fjölnissigur á Selfossi og ÍA vann 3:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölda fullnæging?

Er ekki í nokkrum vafa um að þetta mannvirki stendur undir væntingum, og magnað er það að sjá svona á skjánum. Hlustaði á fólkið sem var tekið tali núna rétt áðan á RÚV og það var eins og að  hlusta á fjölda fullnægingu. En það er gott að fólk er ánægt. Það yrði náttúrulega til háborinnar skammar ef að þetta væri eitt allsherjar klúður, og það fyrir allan þennan pening. Einhvern tíma mun maður sennilega stíga fæti þarna inn.

Til hamingju þið sem viljið taka á móti hamingjuóskum, en mér heyrist ansi margir snúa sér undan þegar þeim er óskað til hamingju.


mbl.is Harpa tekin formlega í notkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að ná peningum út úr fólki!

Já já fá menn til að veðja á einhvern sem ekki er talinn líklegur ti að ná einhverju hefur oft verið talið sniðugt, og því skyldi það ekki vera svo í þessu tilfelli?   ...held að við vinnum ekki en ég hef þá trú að Finnska lagið endi á topp 5. Mér líkar það lag.
mbl.is Sjáumst í Reykjavík 2012
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halló, halló!!!

Er þetta nú ekki too much?

Höfnin hefur verið að pirra margan og greinilegt er að fólki hefur ekki verið gefnar réttar upplýsingar. Það held ég að sé á hreinu. Aldrei sá ég neitt haft eftir skipstjórnarmönnum og það er jú þeir sem sigla skipinu fram og til baka. Ekki þeir hjá siglingastofnun. Ekki þeir hjá bænum. Ekki þeir á Skandia. Ekki farþegar.  Skortur á réttum upplýsingum er vandamálið.

Svo í kjölfar þessara láta allra má spyrja sig hvort Eyjamenn hafi verið sjálfum sér verstir varðandi þessa samgöngubót? Man ekki betur en að það hafi staðið til á sínum tíma að gera þarna stærri og öflugri höfn, með t.d. stærri görðum. Menn hér voru nú ekki hrifnir af því og vildu minnka og minnka höfnina þannig að hún tæki bara Herjólf og engan annan. Vildu ekki eiga á hættu að þarna yrði "góð höfn" sem jafnvel aðrir gætu notað. - minnir að pólitíkin hafi farið í málið, og á er náttúrulega voðinn vís!!! Man ekki betur en að í umræðunni hafi t.d. sprottið upp sú hugmynd um að hafa höfnina þannig að á görðunum væri jafnvel hlið sem væntanlega hefur átt að vera eins og bílskurðshurð og opnast aðeins þegar "eigandinn" kæmi heim.  ......ætli við séum búin að vera að gjalda í vetur fyrir m.a. annars þessar hugmyndir manna?

 


mbl.is Herjólfur fer aukaferðir á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir stjórarnir .........

...á bekknum vinir. Enda þetta mál ofurlítið sérstakt!!!!
mbl.is Wenger og Ancelotti standa með Ferguson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsó splæsó

Gaman að heyra hvað það gengur betur hjá þeim stöllum í sænsku deildinni þetta árið. Sérstaklega hef ég gaman af því hvað Margrét Lára er komin á flug. Það verður gaman að sjá hvernig þær koma stemmdar til leiks með landsliðinu og hvernig landsliðinu mun ganga í næstu leikjum. ....er ekki frá því að það sé kominn góður meðbyr í kvennaboltann á ný A-liðið búið að vera á flugi og U-17 ára liðið í geimskoti og komnar í undanúrlsit EM - bara flott
mbl.is Sigurmark frá Margréti Láru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Best væri þó....

...að afnema þessa djö. verðtryggingu með öllu. Hafa þetta bara sem orð í orðabók en ekki verkfæri til að níða af þjóðinni skóinn.
mbl.is Möguleikar metnir á að draga úr vægi verðtryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það held ég......

...að sumir hoppi hæð sína í fullum herklæðum af fögnuði yfir þessu. Víst hefur king Kenny náð að hleypa lífi í félagið síðustu misseri. Félagið alla vega virkað á lífi en ljóst er að mikil tiltekt stendur fyrir dyrum á Anfield Road. Vonandi tekst vel til þar. Við vitum öll að king Kenny getur stjórnað liðum og náð fínum árangri spurningin er hins vegar hvort að ..............hann fer aftur á taugum!!!
mbl.is Dalglish ráðinn stjóri Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að opna pakka afmælisbarnsins!!!

3 stig í hús, og gott að vita til þess að Þórarinn Ingi fær að borða heima hjá sér næstu daga því móðir hans sagði við mig í dag á skóladeginum í GRV að það væri eins gott að það kæmi eitthvað út úr þessum leik annars yrði pilti ekki hleypt að matarborðinu á Brimhólabrautinni á næstunni!!!

Fékk nokkur símtölin meðan á leik stóð um að við værum ekki að fóta okkur sem skyldi en allt kom fyrir ekki við náðum að skora en Valsmenn ekki. Ég tók gamla pakkann á þetta og horfði ekki á ÍBV-liðið á skjánum þegar um útileik í beinni er að ræða.  Spáði okkur reyndar 0-2 sigri en hefði sætt mig við 1 stig.

........en frábær sigur peyjar - vel að verki staðið - Áfram ÍBV alltaf allsstaðar

Valsmenn til hamingju með daginn, en maður fær ekki alltaf það sem mann langar í í afmælisgjöf, það þekkjum við öll.


mbl.is Eyjamenn stálu stigunum á Hlíðarenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valsmenn en og aftur!!

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Valsmenn eru sakaðir um þessi vinnubrögð. Ef eitthvað sannast í þessu þá hlýtur að koma að refsingu í garð Valsmanna, og það einhverri meiri en smásekt. Hlakka til að sjá hvernig þessu máli vindur fram. En það þarf enginn að efast um að hug Ingólfs Sigurðssonar í garð KR, það var nóg að lesa pistilinn á fotbolti.net í gær.  Ekki kannski beint sú afmælisgjöf sem Valsmenn hefðu viljað fá en við hverju máttu búast í afmælisgjöf frá erkifjendunum?

....en til hamingju með daginn Valsmenn


mbl.is Valsmenn hafna kvörtun KR-inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saddir af kökuáti

Það held ég að Kristján Guðmunds verði að passa sína menn fyrir leik. Í Valsliðinu eru nokkrir sem eru þekktar kökuætur og ég er hræddur um að ef að þeir detta of djúpt í afmælisgírinn fyrir leik þá verða þeir ekki líklegir til stórræða í leiknum sjálfum. Hef trú á að það gerist og spái því 2-0 fyrir ÍBV Smile
mbl.is Gleyma afmælinu þegar flautað er á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður gaman að sjá þegar....

....Hughes verður kominn í hvíta búninginn. Ekki verður leiðinlegra að sjá þegar hann og Hermann verða báðir í liðinu þegar líður á mótið - liðið verður ekki árennilegt þá.  Hughes reyndar en meiddur og því ekki líklegt að hann spili með okkur í dag en hann ætti að verða klár mjög fljótlega. Kannski jafnvel gegn Blikum á sunnudaginn.  Áfram ÍBV
mbl.is Bryan Hughes: Var spenntur að sjá Eyjar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband