Færsluflokkur: Pepsi-deildin
14.1.2012 | 15:04
Að toppa á réttum tíma!!!
Flottur sigur hjá Skagamönnum - gaman að sjá að það er líf í þeim gulu og glöðu. Fimleikafélagið væntanelga enn bara í teygjuæfingum á mjúkri dýnu á þessum árstíma!!!! Spurning hvort að bæði þessi lið toppi á réttum tíma í sumar? ....samt gaman þegar þetta fer af stað, maður fær smá fiðring í tærnar. Söknuðurinn í sumar verður að það verður ekkert norðanlið í efstu deild - því miður en annað hvort Akureyrarliðið kemst vonandi upp í haust.
Verður forvitnilegt að sjá hvernig endar hjá mínum mönnum gegn Grindavík.
![]() |
Skagamenn léku FH grátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.12.2011 | 08:27
Bara jákvætt.....
![]() |
Gunnar Már til liðs við ÍBV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2011 | 11:18
Frabaer tidindi
![]() |
Spear samdi við Eyjamenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2011 | 19:19
Nei, nei, nei
Þetta er ekki rétt - fyrirsögnin er röng - stúkan verður byggð við Hásteinsvöll en ekki á honum!!!!!!
ÍBV byggir stúku á Hásteinsvelli
.....að öðru leyti fagna ég þessari ákvörðun.
![]() |
ÍBV byggir stúku á Hásteinsvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2011 | 13:17
Skandall!!! - vægt til orða tekið
Er alveg orðlaus yfir þessum félagaskiptum. Einn Ásinn úr ÍBV liðinu fer yfir í eitthvert miðlungslið úr efri byggðum Reykjavíkur. Metnaðarlaust með öllu hjá 2 aðilum af þremur. Eini metnaðurinn sem þarna er sýndur er af hálfu Fylkismanna. Verð nú samt að þakka Finni fyrir margan frábæran leikinn í ÍBV búningnum, fengur Fylkismanna er mikill.
Stundum koma upp aðstæður sem erfitt er að keppa við - því miður, það á við í þessu tilfelli.
![]() |
Finnur samdi við Fylkismenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2011 | 18:12
Fylkismenn ekki blankir
Það verð ég að segja að Fylkismenn geta ekki verið aura litlir ef þeir telja sig geta boðið í Finn Ólafsson. Búinn að vera einn af ásunum í liði ÍBV síðustu 2 ár. Í mínum huga einn af sennilega 8 mikilvægustu leikmönnum deildarinnar þegar horft er til vinnuframlags og virkni innan liðs - svakalega vanmetinn leikmaður. Leikmaður sem lið ættu að slást um að fá til sín ef hann væri með lausan samning.
Verður forvitnilegt að fylgjast með framvindu þessa máls.
![]() |
Fylkir gerir ÍBV tilboð í Finn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.11.2011 | 17:19
Flottir strákar!
2 flott lið. Gaman að þetta samstarf skuli lifa. Ekki grunaði mig það þegar maður kom þessu á á sínum tíma. Hafði gaman af því í gær þegar ég heyrði í Þórarni Inga að hann átti ekki orð til að lýsa aðstöðunni sem er hjá þessu litla liði. 6 grasvellir, gerfigrasvöllur lítið knattspyrnuhús og þessi ágæti heimavöllur. Vona að þessar elskur njóti dvalarinnar
![]() |
Þrír Eyjamenn við æfingar hjá Crewe |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2011 | 08:29
Þá er það frá!
Jæja þá geta Grindvíkingar farið að taka næstu skref í sínum málum. Nú er það leikmannamarkaðurinn. Miðað við sögur af slæmum fjárhag deildarinnar verða men væntanelga rólegir í þeirri deild. Ja nema að Þorsteinn Gunnars fari með rétt mál og staðan sé ekki eins slæm og aðrir vilja vera láta!!!
Þetta kemur allt í ljós - langt er í fyrsta leik í næsta Íslandsmóti. Það verður gaman að sjá hvernig Guðjóni gengur að hleypa lífi í þá þarna suður með sjó. Það verður líka gaman að sjá karlinn aftur með lið í efstu deild.
![]() |
Guðjón ráðinn til Grindvíkinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.11.2011 | 08:31
Íslenska útrásin stendur enn yfir!!!
Þó svo að dregið hafi úr útrás íslenskra draumóramanna í peningaheiminum þá er ekkert lát á útrás íslenskra tuðrusprkara. með heyrir af strákum hér og þar sem eru að reyna fyrir sér eða hafa áhuga á því. Sumir hafa frestað undirskrift samning við sitt félag er mér sagt til þess að eiga tækifæri á að bregða sér erlendis. Gallinn við marga í gegnum tíðina er að þeir hafa ofmetið eigið ágæti, og það all svakalega stundum. En ég verð þó að viðurkenna að það virðist vera svo með marga þeirra að þá dreymir bara um að komast út - prófa að spila erlendis. Skil vel þennan draum þeirra, en menn ættu ekki að gera sér of miklar vonir. Er þó á því að þeir gætu allir farið og spilað erlendis en það er ekki víst að því fylgja alltaf það sem þeir halda. Hvorki fjárhags- né félagslega.
En Daníel Laxdal mmyndi ég gjarna vilja sjá tækifæri á erlendri grundu.
![]() |
Daníel bíður eftir svari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.11.2011 | 11:15
Glæsilegt ...eða hvað
Stuðningsmannaklúbbur Brighton á Íslandi: Mávar yfir Íslandi fagnar þessum góðu orðum þessa mæta pilts. Vonum að þetta gangi upp hjá honum og hann fái samning þarna í janúar. Allt satt og rétt sem hann segir um klúbbinn. Vona að þetta gangi upp hjá honum.
....svo væri nú ekki verra fyrir ÍBV ef hann yfirgæfi KR og Íslensku deildina, en það er aukabónus
![]() |
Kjartan Henry spenntur fyrir Brighton |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |