Nú er kominn tími til.....

.....að ná að opna blessaða Landeyjahöfnina, þó ekki væri nema vegna þess að ég er farinn að hugsa mér til hreyfings - því sól hefur hækkað á lofti -  og önnur af tveimur plönuðum ferðum ársins til meginlandsins er framundan. En samt er nú mikilvægara að höfnin opni fyrir aðra en mig. Hér hefur nokkuð verið lagt undir hjá mörgum vegna nokkurra væntinga um aukin ferðamannastraum í kjölfar opnunarinnar í fyrra.  Þarna má kannski segja að um forsendu brest sé að ræða, ekki ósvipaðan þeim er varð er erlend lán fólks hækkuðu við fallandi gengi blessaðrar krónunnar - margir vilja þó meina að hvorutveggja hafi verið vel fyrirsjáanlegt, en að sjálfsögðu eru skiptar skoðanir um það!
mbl.is Siglt í Þorlákshöfn fram yfir páska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

18 3ja stiga körfur

Loksins sást til sólar í Phoenix, en ekki var nú birtan mikil fyrr en í framlengingu. Channing Frye setti niður 9 3ja stiga í 14 skotum, í heildina 18 3ja stiga í 24 skotum. Ekki slæmt það. Frye með 33 stig. Jared Dudley með 5 3ja stiga og 26 stig í heilidna og Grant Hill með 21. Nash með 16 stoðsendingar á 34 mínútum. Loksins sigur og svo er bara að reyna að sigra Spurs heima á morgun og ljúka þar með tímabilinu með 2 sigrum.

14 tap Timberwolves í röð

QUOTABLE: "I expect to be back."
-- Steve Nash on his future with the Suns. He has one year left on his contract. There has been speculation he would request a trade.

NOTABLE: Hill played in his 312th game for the Suns since joining them in the 2007-08 season. That means he's played in more than 95 percent of their games. He is set to play in his 80th game Wednesday, in the season-closer vs. the Spurs. That will mark his third straight season of 80-plus games. At 38, he will become the oldest NBA player to do so.

 


mbl.is Miami tryggði sér annað sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær árangur

Það hefur kannski ekki verið haft hátt um þessar ungu stúlkur í U-17 ára landsliðinu en þær hafa svo sannarlega staðið fyrir sínu. Þær hafa verið að sigra þjóðir sem alla jafna hafa verið taldar mun sterkari en við í tuðrusparkinu. Nú er bara að sjá hvernig þeim tekst upp í Sviss á sumri komanda.

Til hamingju með þennan frábæra árangur.


mbl.is Besti árangur íslensks landsliðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað hefði verið skandall

 2 atriði þarna

Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir að Ísafjarðarbær hafi fallist á að leggja út fyrir kostnaði við slátrun dýranna. Hann reiknar með að dýrin verði send í sláturhús í þessari viku.

- annað hefði verið skandall

Bændurnir sem urðu fyrir tjóninu gera kröfu um að tjónið verði bætt að fullu. Ekki er búið að ná samkomulagi um það. Hugsanlegt er að þeir verði að sækja bætur fyrir dómstólum.

- Neita að trúa því að bændur þurfi að sækja bætur sínar fyrir dómstólum vegna þeirrar vanrækslu sem þarna átti sér stað. En það er kannski bara að verða íslenska leiðin að láta sækja allt til dómstóla

 


mbl.is Ísafjarðarbær borgar slátrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært!!!

.....ja eða er ESB eins og Framsóknarflokkurinn? Þeir kannski vilja okkur ekki inn en vilja samt halda áfram að ræða málin!!! Ræðum endilega saman en við viljum ekki sjá þá á meðal vor.
mbl.is Icesave-kosning hefur ekki áhrif á aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að gera í buxurnar!!

Sólin er löngu sest í Phoenix svo mikið er víst. Staðan orðin 38 sigrar - 42 töp - ekki gott. 2 leikir eftir Timberwolves í kvöld heima og Spurs heima á miðvikudaginn og þá er tímabilið búið. Ekki mikið til að fagna í vetur hjá okkur. Nash náttúrulega eins og áður verið í brúnni og reynt að halda leiknum gangandi en það er ekki nóg að hann spili vel aðrir verða að standa sig. Reyndar var Marcim Gortat - pólska sleggjan - góð búbót eftir skiptin á miðjutímabili. En ætla svo sem ekkert að fara að greina liðið hér í þaula - geri það kannski eftir að við erum búnir með leikina alla - En segi það hér að ég vona að Nash spili áfram en mér sýnist á öllu að hann vanti einhverjar 600 stoðsendingar til að ná 5 sætinu af Oscar Robertson og 800 stk til að ná Magic Johnson í því fjórða. Nash þyrfti svo sennilega að spila næstu 2 tímabil ef að hann ætlaði sér að ná þriðja sætinu af Mark Jackson, en Nash er ekkert að fara að ná í skottið á gamla Suns spilaranum Jason Kidd eða hvað þá heldur meistara John Stockton sem endaði ferilinn með rúmlega 15.800 stoðsendingar, fyrst er nú að ná 10.000 stk.
mbl.is Fimmta tapið hjá Lakers í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En eitt vígið fallið?

Jæja þá er eignarhaldið á en einu liðinu farið úr landi. Það er orðin ansi stór hópur liða sem er í eigu erlendra fjárfesta eða fjárfestingarhópa. Gott eða slæmt ég verður alltaf umdeilanlegt. Ég ætla ekki að fara að telja upp öll þessi lið en þarna eru nú t.d. öll efstu liðin í deildinni. United, Chelsea, Man City og nú Arsenal. Það verður gaman að sjá hvort þetta mun hafa miklar breytingar í för með sér hjá Arsenal. Margir aðdáendur Arsenal hafa sagt að þeim lítist vel á Kroenke, og þá oftast út frá því sem fólk heyrir um hann frá USA og þeirri staðreynd að hinn áhugasami aðilinn var/er rússi sem virðist einhvern veginn ekki hafa alveg hreint borð.
mbl.is Eignast nærri 63% í Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nonni minn!!!

Getur vel verið að margt sé til í þessu hjá þér og oft hefur þér nú ratast rétt orð á munn, en vona að eitthvað af því sem þú segir þarna rætist ekki, helst allt.  Ég vil fá að heyra í nafni þínum Steinssyni í USA og hvað hann hefur að segja um málið. Ef þið verðið sammála þá hoppa ég á vagninn af fullum hug.   En auðvitað er hætt við að við fáum einhver spörk í kjölfarið á þessu nei-i

..reyndar hefur maður verið að heyra af miklum erfiðleikum fyrirtækja í borginni vegna erfiðleika í samskiptum við útlönd, já og bankana íslensku. Þau fyrirtæki hafa þraukað en en það þrengir svo sannarlega að eftir því sem mér er sagt. En ég bý í samfélagi sem er bara rétt að byrja að kveinka sér og er ekki dómbær á það sem gengur á í borginni.


mbl.is Jón: Eykur á einangrun Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að reka sig á!!!

Verður ekki bara að leyfa hverjum og einum að reka sig á og sjá svo hvort þeir læra af reynslunni. Er ekki ágætt að hafa bara þann háttinn á?  Björn Valur oft á flugi sem og forsetinn. Þó mér finnist nú stundum forsetinn missa sig í orðagljáðri þá fannst mér hann bara ágætur meðan ég nennti að horfa í dag.   .....en við þurfum ekki að missa okkur strax við munum fá viðbrögð að utan, bæði jákvæð og neikvæð - og í raun hafa þau þegar byrjað að berast svo um munar ......málið fer svo bara í þann farveg sem við völdum og skuldir þrotabúsins duga fyrir kröfum.

Held að við ættum í dag að hafa meiri áhyggjur af því að semja regluverk okkar hér innanlands þannig að við þurfum ekki að upplifa svona rugl aftur.


mbl.is Forsetinn ruglar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningin kærð?

.....vegna framkvæmdagalla?

Í kosningalögum stendur:

 81. gr.
Þá er kjósandi hefur tekið við kjörseðlinum fer kjósandi með hann inn í kjörklefann, þar sem kjósandinn má einn vera, og að borði því er þar stendur. Á borðinu skulu vera ekki færri en tvö venjuleg dökk ritblý er kjörstjórn lætur í té og sér um að jafnan séu nægilega vel ydd.

....í kjörklefanum hjá mér var aðeins einn blýantur!!!  Er alveg viss um að þetta hafi engin áhrif á úrslitin en klárlega ekki samkvæmt lögum, ég hef heyrt fleiri tala um þetta, þ.e.a.s. einmanna blýant í kjörklefa. Þetta samræmist ekki kosningalögum.


mbl.is Hvatning fyrir stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur hann en og aftur

Ég veit ekki hvað öðrum finnst en stundum finnst mér eins og honum finnist sviðsljósið heilla.
mbl.is Forsetinn boðar blaðamannafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar launahækkanir!

Skilaboðin verða skýr eftir helgi verði samkomulagið fellt, eins og er 99,9% öruggt þó eftir eigi að telja eitthvað. Samtök atvinnulífsins munu leggjast alfarið gegn launahækkunum sama hversu háar þær eiga að vera. Farið verður aftur á 0 reit og hér verður dansaður polki, með tilheyrandi brölti, fram í september eða október við að reyna að koma einhverjum vitrænum samningum á. Hreint og klárt.
mbl.is Funda strax eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningin kærð?

.....vegna framkvæmdagalla?

Í kosningalögum stendur:

 81. gr.
Þá er kjósandi hefur tekið við kjörseðlinum fer kjósandi með hann inn í kjörklefann, þar sem kjósandinn má einn vera, og að borði því er þar stendur. Á borðinu skulu vera ekki færri en tvö venjuleg dökk ritblý er kjörstjórn lætur í té og sér um að jafnan séu nægilega vel ydd.

....í kjörklefanum hjá mér var aðeins einn blýantur!!!  Er ekkert viss um að það hafi áhrif á úrslitin en klárlega ekki samkvæmt lögum, og ég hef heyrt fleiri tala um þetta.


mbl.is Kjörfundi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband